Æskan - 01.02.1983, Blaðsíða 39
En skipseigendur urðu reiðir, þeg-
ar strákur kom heim og ráku hann og
kóngsdótturina úr landi. Fóru þau yfir
W Englands og voru þar í fjögur ár.
^au voru nú heitbundin orðin.
8' þau unnu fyrir sér með ýmsu móti.
Meðal annars saumaði kóngsdóttir-
in mikið af fallegum knipplingum
sem þau seldu fyrir gott verð. - Eitt
sinn komu til þeirra tveir menn og þá
kom upp úr kafinu að annar þessara
manna var bróðir stúlkunnar, en hinn
gamall kærasti hennar, - keisara-
sonur meira að segja.
9. Þegar mennirnir höfðu keypt
knipplingana vildu þeir fá stúlkuna
með sér út í skip sitt, en hún sagði að
strákurinn hefði frelsað hana frá Aröb-
um og hún væri nú trúlofuð honum.
10- En með brögðum gátu þessir
tveir menn komið kóngsdótturinni út í
óátinn og ýtt frá landi. Skip þeirra lá
fecðbúið úti á legunni. -
11- Þá kom allt í einu maður róandi í
báti sínum og tók hann strák og flutti
út í skipið. Þetta var einmitt maðurinn,
sem strákur hafði eitt sinn keypt sem
þræl og síðan gefið frelsi. Skipið sigldi
til hafs. -
12. Eftir margra daga siglingu, koma
þeir að eyðieyju. Karlmennirnir fóru í
land, til þess að ná í vatn og ávexti.
Hinir tveir ókunnu menn sættu lagi og
reru fram að skipi, en skildu strákinn
eftir. Stuttu síðar sá strákur, að skipið
sigldi á brott.
STEINNINN
sem milljónir
manna hafa
kysst
í Kaba, musterinu fræga í Mekka, er helgur steinn, sem allir pílagrímar kyssa, og er
hann máður af kossum milljóna þeirra er hafa kysst hann.
Steinninn er svartur að lit; hann er múrfastur í suðausturhorni musterisins. Segir sögn-
in að erkiengillinn Gabríel hafi komið með hann af himnum, fengið Abraham hann og
sagt honum að setja hann þar, sem Hagar hafi reist drottni altari í óbyggðunum. Arabar
segjast vera komnir af Ismael, syni Hagar, og má því nærri geta að þeir haldi upp á
þennan himnastein. Ekki vita menn hvað lengi steinninn er búinn að vera þarna, en hann
var kominn þarna þegar Múhameð hóf trúboðsstarf sitt fyrir þrettán öldum, og var frægur
um alla Arabíu löngu fyrir daga Múhameðs. Það er rétt að hann hafi komið af himnum
ofan, því þetta er loftsteinn. Hefur helgi hans vafalaust komið upp við það, að sést hefur
þegar hann féll úr lofti.
39