Æskan - 01.02.1988, Síða 14
mikil og góð. Eitt kvöldið komu þátttak-
endur frá þeim saman og héldu Norður-
landavarðeld. Meðal skemmtiatriða var
söngur blandaðs kórs íslendinganna og
vakti hann óskipta athygli og hrifningu.
Veður var gott á mótinu. Heima-
mönnum þótti miður þegar sólar naut
ekki og hitinn fór niður í 25 stig! Við
þökkuðum okkar sæla fyrir „svalann“ þá
stöku daga. Einn daginn um kvöldmat-
arleyti hvessti þó illilega og rigndi.
Þrumur og eldingar þutu og dundu og
vindur varð 70 hnútar. Tjöld losnuðu og
hlutir fuku um svæðið. En þetta tók
fljótt af og upp úr hádegi daginn eftir
varð vart séð að fellibylur hefði gengið
yfir!
Að kvöldi 9. janúars var mótinu slitið
með lúðraþyt og viðhöfn. Við hlutum að
tygja okkur til heimferðar þó að okkur
þætti leitt að skilja svo fljótt við nýja vini
og hverfa af fallegum stað. Við vorum
raunar tveim dögum lengur á staðnum
við að taka saman og ganga frá. Á milli
lágum við í sólbaði, kepptum í vatnsslag
og skoruðum á Brasilíumenn í knatt-
spyrnuleik. Við sigruðum örugglega,
með einu marki gegn engu, og leggjum
til að þessi viðureign verði látin duga í
bráð. Það er ekki víst að öllum hðum
takist eins vel upp í leik gegn samlönd-
um Peles, Sókratesar og annarra heims-
frægra snilhnga!
/ þrautabraut í Áskorendadal.
Við vorum svo í viku á áströlskum
heimilum í nágrenni Sidneyjar og dvöld-
umst í tvo daga í Lundúnum á heimleið-
inni.
Ferðin tókst vel og var ánægjuleg og
lærdómsrík. Minningar eru margar og
góðar - líka frá undirbúningnum. Það er
kostnaðarsamt að fara svo langa leið og
því var tekið upp á ýmsu til að safna far-
areyri. Tiltækin voru mörg hver ótrúleg-
Ein skátasveitin skreið á fjórum fótum
frá Borg í Grímsnesi til Reykjavíkur og
önnur ýtti sérútbúnu baðkeri frá Borgar-
nesi til höfuðborgarinnar! Áheitum var
safnað vegna þessara ferða og peningar
lagðir í ferðasjóð.
Það er ungu fólki ómetanleg reynsla
að fá tækifæri til að kynnast menningu
og lífsviðhorfum æskufólks frá mismun-
andi þjóðlöndum hvaðanæva úr heimin-
um. í lifandi starfi að sameiginlegum
áhugamálum skiptu litarháttur, þjóðfé-
lagsstétt, tungumál, aldur eða kyn ekki
máli því að viljinn til samstarfs og gagn-
kvæms skilnings var hátt yfir shkar
hugsanir hafinn.
Okkur sem tókum þátt í þessari ferð
er torvelt að skilja hvað það er sem knýr
þjóðir til ófriðar og stríðsreksturs þegar
íbúarnir eiga svo margt sameiginlegt. Þo
að við eigum heima á ólíkum menningar-
svæðum og lönd okkar heiti mismunandi
nöfnum þá stefnum við öll að því að gera
h'f okkar á jarðkúlunni örlitlu betra í dag
en það var í gær.
Byggt á grein eftir Vilhelm Gunnarsson.
ÓDÝR VASAÚTVÖRP FRÁ KR.
HLJÓMBORÐ í ÖLLUM
VERÐFLOKKUM
EINNIG MIKIÐ ÚRVAL AF
MUNNHÖRPUM
.200 (VATNSVARIÐ)
HLJÓÐFÆRAVERZLUN
POUL BERNBURGf
RAUÐARÁRSTÍG 16 - 105 REYKJAVÍK
SÍMI (91)20111