Æskan

Árgangur

Æskan - 01.02.1988, Blaðsíða 31

Æskan - 01.02.1988, Blaðsíða 31
Uga °8 lét sem hann hefði ekki skilið tnóðgunina. Lárus virti þann ókunnuga yrir sér með ódulinni fyrirlitningu. vona talaði enginn með fullu viti um lry8g í hans eyru. ~ Þetta er frændi minn úr Keflavík, Sagði Diddi sem hafði fylgst með þeim jj1^, undarlegt glott á andhtinu. Hann eitir Nonni. Pabbi hans á sjoppu í Keflavík. Nonni gekk að Trygg til þess að virða ann betur fyrir sér. Þegar hann beygði f'g nióur að honum sleikti Tryggur á n°num höndina. ~ Hvers vegna er ekki búið að skjóta petta hræ fyrir löngu? spurði Nonni og len á Lárus. Lárus þagði. Hann var kominn á þá s oðun að kenna þyrfti þessum mont- j'assi mannasiði. Nonni var ívið hærri en ann með sítt, ljóst hár og hvít útstæð eyru- Annað slagið strauk hann í burtu fennsli úr annarri nösinni. Lárus var e.| i vtss um hvort hann réði við hann ef 1 áfloga kæmi en hann var tilbúinn að Iata reyna á það. Skyndilega stjakaði Nonni þjösnalega V‘ö Trygg sem hljóp ýlfrandi nokkur s fef í burtu. Lárusi var nóg boðið. ann rauk á Nonna sem hafði átt von á . 1 °8 vék sér undan með þeim afleið- jjtgum að Lárus greip í tómt og féll á en. Tryggur gelti grimmdarlega og ^eraði gular tennurnar. Diddi forðaði sér PP að húsveggnum til þess að vera ekki tyrir. Lárus var eldsnöggur á fætur og gerði ra arás og í þetta sinn náði hann taki á °una sem var of seinn að víkja sér und- n °g þeir veltust um garðinn í heiftar- egUm áflogum. Tassið ykkur á blómabeðinu hennar ommu, hrópaði Diddi. Hún verður U aus ef þið skemmið blómin! við ^ ^3nn eins getað reynt að tala karlinn í tunglinu. Þeir ultu fram og — aftur um blómabeðið eins og þeir hefðu af því sérstaka ánægju. Átökin voru í jafnvægi þar til Nonni greip handfylli af mold og þeytti í andlit Lárusar sem blindaðist andartak. - Fantur, öskraði hann. Nonni svaraði honum ekki heldur not- aði tækifærið og settist klofvega ofan á hann og tók að þjarma að honum. En þegar neyðin er stærst er hjálpin næst. Tryggur gamh greip til sinna ráða. Hann réðist á Nonna viti sínu fjær af hús- bóndahollustu og gerði tilraun til að bíta í rassinn á honum. Nonni velti sér ofan af Lárusi í ofboði. - Hundurinn ætlar að drepa mig! hljóðaði hann upp. - Mamma! Mamma! kallaði Diddi og barði í eldhúsgluggann. Tryggur er orð- inn brjálaður! En Tryggur var langt frá því að vera eins snar í snúningum og hann hafði ver- ið á sokkabandsárum sínum og í ofanálag var sjónin ekkert til að hrópa húrra fyrir enda missti hann gjörsamlega af rassin- um á Nonna en beit í staðinn upp heila tylft af morgunfrúm. Heiftin ólgaði í Lárusi, hann spratt upp úr blómabeðinu og barði í blindni til Nonna. Hnefinn lenti á nefinu á honum og blóð tók að vætla út um nösina sem áður hafði verið farvegur nefrennslisins. - Mamma! öskraði Diddi af öllum hfs og sálar kröftum. Nú er Lárus orðinn brjálaður líka! Allur vígamóður var runninn af Nonna. Hann þreifaði varlega á nefinu og horfði vantrúaður á blóðlitaða fmgur sína. Lárus beið með kreppta hnefana. Nonni leit á hann og hnykklaði brýnnar. - Mér blæðir, sagði hann. Augu Lárusar boruðu sftg inn í hann. Hann stóð tilbúinn fyrir framan Nonna í miðju blómabeðinu líkt og heimsmeistari í hnefaleikum. - Ég get kennt sjálfum mér um þetta, sagði Nonni eftir langa þögn og rétti fram höndina. Eigum við ekki að vera vinir? Lárus tók hikandi í útrétta höndina. Hann bjóst alveg eins við því að þetta væri eitthvert bragð. En Nonni lét sér nægja að heilsa honum þéttingsfast og á eftir greip hann fyrir nefíð til þess að stöðva blóðrennslið. Tryggur dillaði róf- unni sáttfús. Diddi gekk hikandi til þeirra. - Þið eruð ekki með öllum mjalla, sagði hann og virti fyrir sér úttraðkað blómabeðið. Mér verður örugglega kennt um þetta. - Reyndu að slappa af, maður, sagði Nonni. Diddi hristi höfuðið. - Ég bara trúi þessu ekki, sagði hann. Það er ekki eitt einasta blóm heilt í öll- um garðinum. Lárusi varð litið yfir grindverkið. - Strákar, sjáiði, sagði hann. Þeir horfðu allir í sömu átt. Mamma Didda kom gangandi eftir Sjávargötunni með grænt innkaupanet úttroðið af grænmeti og hún hélt með annarri hend- inni í gula loðhúfu sem hún var með á höfðinu eins og hún væri hrædd um að missa hana. Þeir tóku til fótanna og svo ótrúlegt sem það var varð Tryggur með alla sína gigt og sjónleysi langfyrstur þeirra til að hverfa. - Felum okkur á bak við Grænhól, sagði Lárus andstuttur á hlaupunum og þeir tóku stefnuna út úr þorpinu. Þegar þeir voru lagstir bak við Græn- hól gjörsamlega sprungnir og með hlaupasting bergmálaði hvell rödd á milli húsveggjanna í þorpinu: - Diddiii!! Hvar felur þú þig, óþekkt- arormurinn þinn?!!! 31
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.