Æskan - 01.02.1988, Blaðsíða 29
!■ Hvemig cr að eiga heima í Keflavík?
Sesselja Ómarsdóttir B ára:
Það er alveg frábært. Ég hef átt
heima hér og í Garði til skiptis, tvisv-
ar sinnum á hvorum stað. Pabbi
minn er úr Garði en mamma frá
Keflavík. Ég kann vel við krakkana
hérna. Íþróttalífið er gott. Ég æfi
sund fimm sinnum í viku. Það er
mikill áhugi á sundi hérna.
Eyþór ðrn Haraldsson 13 ára:
Ég hef átt hér heima í 6-7 ár og kann
vel við mig. Félagsstarfið í skólanum
er mjög gott. Ég fer oft í fótbolta og
körfubolta með félögunum og svo
þykir mér gaman að fara í kvik-
myndahús. Ferðalög eru líka eitt af
aðaláhugamálum mínum. - Eftirlæt-
is-námsgreinin m£n er stærðfræði en
stafsetningin er leiðinlegust.
*SKANi
Helgi Birkir Þórisson 12 ára:
Ég hef átt heima hér frá fæðingu. Ég
á marga vini og æfi knattspyrnu,
körfubolta, handbolta og golf á sumr-
in. Nei, ég á enga kærustu. Ég var
hins vegar í hálft ár með stelpu þegar
ég var í 5. bekk. Það eru margir
krakkar á mínum aldri á föstu.
Kennararnir í skólanum eru mjög
góðir.
Sigríður Jenný Svansd.13 ára:
Það er alveg ágætt að eiga heima í
Keflavík. Ég á marga vini af báðum
kynjum. Ég hef átt hér heima mest-
alla ævi. Ég átti heima í Flórída í
Bandaríkjunum í þrjú ár og fluttist
aftur hingað í haust. Jú, það var dá-
lítið erfitt að hefja aftur nám í ís-
lenskum skóla eftir að hafa misst úr
þrjá bekki. - Áhugamál mín eru tón-
list, lestur unglingabóka og kvik-
myndir.
Laeila Jensen 13 ára:
Ég hef átt hérna heima alla tíð og
kann mjög vel við mig. Félagslífið er
ágætt í skólanum og gott og fjölbreytt
íþróttalíf. Helstu áhugamál mín eru
hestar, sætir strákar, skíðaferðir - og
svo syndi ég oft. Ég fer í opið hús,
diskótek og aðrar skemmtanir í skól-
anum.
Trausti Freyr Reynisson B ára:
Ég er einn af mörgum sem hafa dval-
ist hér alla ævi. Þetta er mátulega stór
bær og Holtaskóli er góður. Áhuga-
mál mín eru að vera á hjólabretti,
setja saman flugvélamódel og hirða
um hamstra. Bestu vinir mínir heita
Eyþór Örn og Jón Davíð. Við förum
stundum í Bláa lónið og syndum. -
Ég ætla að verða tannlæknir í fram-
tíðinni - og græða peninga - eða raf-
virki.