Æskan

Árgangur

Æskan - 01.02.1988, Blaðsíða 19

Æskan - 01.02.1988, Blaðsíða 19
Morten harket Halló Poppþáttur! Vitið þið hvar Morten Harket söngvari A-Ha á heima? (Ég veit að hann býr í Noregi). María Steindórsdóttir, Hellisgötu 15, 220 Hafharfirði. Marteinn Harket er fluttur til Eng- lands. Póstáritun hans er: The A-Ha Fan Club, Winterland Productions, 37 Soho Square, London WIV 5DG - England. Vissir þú. t • . . . að öll helstu poppblöð Bret- lands völdu Afmæli með Sykur- molunum í hóp bestu laga ársins 1987? Lagasmiðurinn (Melody Maker) gekk m.a.s. svo langt að tilnefna Afmæh besta lag ársins og þið getið skemmt ykkur við að rifja upp þau útlendu popplög sem ykkur finnast koma til greina sem keppinautar Afmælis. Til gamans má geta þess að Æskan valdi Afmæli besta lag ársins 1986 í áramótauppgjöri og spáði því að auki í haust er leið að Lagasmið- urinn myndi kjósa Afmæli besta lag ársins 1987. Segið þið svo að Æskan viti ekki hvar hjartað slær! INýgræðingapopp Kæri Poppþáttur! Það væri gaman ef þið gætuð haft fleiri kynningar á nýgræðingum í poppinu, bæði íslenskum og erlend- um. Svo mættuð þið hafa mánaðar- legan vinsældalista og nótur nýrra laga. Birna G. Jónsdóttir, Álfhólsvegi 108, Kópavogi. Við þökkum ábendingarnar. Við hefjumst strax handa við að kynna nýgræðinga í poppinu eins og þú get- ur séð annars staðar hér í Poppþætt- inum. En hvað átt þú við með vin- sældalista í blaðinu? Eiga lesendur að velja mánaðarlega vinsælasta lagið? Eða vinsælustu hljómsveitina? Eða vinsælasta poppþátt útvarpsins? Eða. .? Það væri gaman að heyra skoðanir fleiri á þessari hugmynd. *SKANi "v 3 y i sM Bono, söngvari U2 . . . að hlustendur Rásar 2 völdu Tré Jósúa (The Joshua Tree) með U2 bestu plötu ársins 1987? í annað sætið settu hlustendurnir Dögun með Bubba , Ekkert sem sólin (Nothing Like The Sun) með Sting í 3. sætið, Loftmynd með Megasi í það fjórða og Um undraleiðir hingað (Strangeways Here We Come) með Smiths í fimmta sætið. Björk, söngkona Sykurmolanna . . . . að lagið Stillt í botn (Pump up the Volume) með M.A.R.R.S., hefur selst best smáplatna í óháðum verslunum (samanber óðháði vinsældalist- inn) ef marka má útreikninga bresku poppblaðanna. í öðru sæti er lagið Afmæli (,,Ammæli“) með Sykurmolunum. . . . að stærðarhlutföll íslensku plötufyrirtækjanna á síðasta ári, hvað varðar íslenskar plötur, er þannig: 1. Steinar hf. (18 plötur útgefnar eða í dreifingu), 2. Gramm (16 plötur), 3. Skífan (14 plötur) og 4. Taktur (12 plötur). . . . að Poppþáttur Æskunnar tel- ur eftirtaldar plötur vera þær bestu árið 1987: Dögun með Bubba, Leyndarmál með Grafík, Goð með S.h. draumi og Loft- mynd með Megasi. . . . að Poppþáttur Æskunnar tel- ur Motorcrash með Sykurmolun- um besta lag ársins 1987. . . . að svolítill losarabragur hefur verið á Foringjunum að undan- förnu. Jakob Magnússon, fyrrum bassaleikari MX-21 og Grafíkur, var tekinn í Foringjaliðið á meðan hann beið eftir að Og svo skein sól tæki til starfa með hækkandi sól. Um svipað leyti opnuðu Þórður yfirforingi og Jósep hljómborðsleikari Rokkbúðina Þrek við Grettisgötu. §19
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.