Æskan - 01.02.1988, Side 41
H-*r*r ^raman standa nokkrir í þvögu og
lna eftir að fá afgreiddar samlokur,
anglokur, snúða og mjólk. Flestir nem-
enda sitja við borð eða í stiga og þeir sem
a|s fengið morgunmatinn sinn gæða sér
a nonum og spjalla við félagana. Aðrir
reYna að næla sér í ofurlítinn blund svo
a lítið beri á. Stórar, skemmtilega
teiknaðar andlitsmyndir af fyrrverandi
nemendum skólans, sem nú eru orðnir
Plóðkunnir tónlistarmenn, vekja athygli
0 kar. Þar má h'ta ásjónu Gunnars Þórð-
arsonar, Rúnars Júlíussonar, Engilberts
Jensens og Þóris Baldurssonar - svo að
emhverjir séu nefndir. Ný og vinsæl
ægurlagatónlist berst frá hátölurum -
av° að sannarlega eru myndirnar vel við
jeft í þessu umhverfi. Við veltum fyrir
0 . r hvort einhver andht í salnum eigi
hr að prýða þessa veggi í framtíðinni.
i ^ur hafði nefnilega verið sagt að mik-
Værj af ungu og frambærilegu tónlist-
1 skólanum. Nokkrir gáfu sig á tal
1 okkur, kváðust vera einlægir velunn-
arar Æ-skunnar og báðu okkur um að
, a viðtal við sig, meira þó í gamni en
alvöru.
^ Að heita má allt æskulýðsstarf í Kefla-
Vlk fer fram í skólahúsnæðinu. Eftir
ennslu er ætluð ein til ein og hálf
ukkustund til þrifa. Síðan kviknar aft-
nr líf í skólanum og þar er ýmislegt sér
1 gamans gert fram til miðnættis.
nítn að hafa gengið um húsnæðið og
ynnst skólastarfinu með eigin augum
^auð yfirkennarinn okkur inn á skrif-
°tu sína. Áhugi okkar beindist að tölvu
ns - enda tæki sem ritstjórar Æskunn-
fá ^ma Vl^ a^a daga. Með því að ýta á
a takka getur yfírkennarinn fengið all-
r uPplýsingar sem hann þarf á að halda
um skólastarfið og nemendur. í þessari
0 vu semur hann líka öll bréf sem hann
ar að senda vegna starfs síns. Hann er
em sé al-tölvuvæddur!
*SKANi
Margir á föstu
í þessari heimsókn tókum við tali
þrjá fulltrúa í stjórn nemendafélagsins,
þau Guðbjörgu Glóð Logadóttur, Mar-
gréti Knútsdóttur og Ólaf Knútsson - en
sá síðastnefndi er formaður nemendafé-
lagsins. Þau létu vel af félagslífmu og
sögðu það hafa verið með miklum blóma
í vetur. Opið hús er tvisvar í viku en þá
geta krakkarnir farið í borðtennis, billj-
arð, teflt, spilað á spil, hlustað á tónlist
og dansað. Diskótek eru haldin annan
hvern föstudag. Ýmsir klúbbar lifa góðu
h'fi og þeir sem njótra mestra vinsælda
eru íþróttaklúbbur, Ljósmyndaklúbbur,
Blaðaklúbbur (Skólablaðið Stakkur),
Tölvuklúbbur og Fjallgönguklúbbur.
„Diskótekin hefjast kl. átta og eru til
hálf-tólf,“ sögðu þremenningarnir. „For-
eldrar 6. bekkinga vilja ekki hafa þau
lengur og við hin verðum að sætta okkur
við það.“
- Hafið þið skólahljómsveit?
„Já, hún heitir Sextán bleikar blöðrur
og er mjög góð. Hún kom m.a. fram á
síðustu jólaskemmtun sem var haldin í
Félagsheimihnu Stapa.“
í samtali við krakka kom einnig fram
að 9. bekkur er að safna fyrir ferðalagi til
Frakklands í vor. í fyrra fór helmingur
bekkjarins þangað en hinir fóru til Akur-
eyrar. Til að greiða farmiðana sem mest
niður er ýmislegt gert í fjáröflunarskyni.
Krakkarnir bera út blöð, halda basar og
flóamarkað og selja dagatöl fyrir þroska-
hefta svo að eitthvað sé nefnt. Einn liður
í undirbúningi ferðarinnar er að skrifast
á við franska krakka til að átta sig enn
betur á því hvað er í vændum.
Við spyrjum þremenningana hvar
krakkarnir komi saman á kvöldin þegar
ekkert er um að vera í skólanum.
„Við erum mikið á Hafnargötunni
þegar veður leyfir í von um að rekast þar
á kunningjana. Við stöndum oft í hópum
á götuhornum og tölum saman. Ef verið
að sýna athyglisverða mynd í kvik-
myndahúsinu förum við þangað.“
- Að síðustu: Eru margir á föstu í
Holtaskóla?
„Já, það eru allmörg pör. Krakkarnir
byrja að vera saman í 6. bekk. Nei, vin-
áttan er ekki lengur innsigluð í síðasta
laginu, vangadansinum, eins og áður var
á skólaböllum. Ekki er óalgengt að vinir
eða vinkonur komi á laggirnar nýjum
samböndum,“ segja þau Ólafur, Guð-
björg Glóð og Margrét.
„Mig langar bara aftur í grunnskóla,“
segi ég við Kalla þegar við rennum frá
skólanum nokkru seinna og tökum
stefnuna norður á bóginn - til Reykja-
víkur.
En það er ekki um það að ræða; við
fengjum ekki inngöngu. Okkar bíður
ærinn starfi í höfuðborginni við að koma
frá okkur nýju tölublaði af Æskunni.
Huggun er að við erum þó enn í snert-
ingu við þetta ógleymanlega og frjóa ald- ^
ursskeið: Æskuárin.