Æskan - 01.02.1989, Síða 12
Myndin Heimir Óskarsson Texti: Karl Helgason
Skátaþáttur
„Nei, við höfum ekki verið neitt voða feimin. . . “
Efri röö: Nolli, Elsý, Ægir Þór Neöri röö: Gísli, Elísabet, Sigríöur Þórdís
12 ÆSKAU
„Fullorðiðfólk ímyndar sér oft að það
sé auðvelt að vera krakki. Þið vitið að
svo er ekki.
Það eru margir sem treysta á ykkur:
mamma, pabbi og systkini, vinir,
staifsfólk skólans og samfélagið í heild
treystir á ykkur varðandi ótal margt.
Skátunum og Kiwanishreyfingunni
finnst að þið eigið að vera viðbúin deg-
inum í dag, vera viðbúin því að gera
það sem krakkar þuifa að geta gert nú
á dögum:
Séð um ykkur sjálf þegar þið eruð
ein.
Hjálpaðfjölskyldunni varðandi ýmis
vandamál.
Komið í vegfyrir slys.
Gætt yngri systkina ykkar.
Ef þið eruð viðbúin deginum í dag
verðið þið jafnframt stolt af því sem þið
getið gert til að hjálpa fjölskyldu og
vinum - og allir verða stoltir af ykkur."
Þannig hefst verkefnabókin „Veruffl
viðbúin“ sem Bandalag íslenskra skáta
gaf út í tilefni dagskrár með sama heiu
en að henni stóðu skátar og Kiwanisum-
dæmið á íslandi.
Eflaust hafa margir lesenda Æskunnat
horft á sjónvarpsþætti, ýmsir tekið þátt i
verkefninu - bókin var send ölluiu
börnum í níu og tíu ára bekkjum og
verkefnið kynnt þeim - eða fylgst með
umræðum foreldra sinna og systkina sent
voru í hópi þátttakenda. Þó að þessir
aldurshópar hafí setið fyrir núna á verk-
efnið erindi til bæði yngri og eldri barna
en þeirra.
Vonandi hafið þið veitt verkefninu at-
hygli því að margt má af því læra.
Annað mál er að allir fullorðnir þegnat
þjóðfélagsins mættu gjarna hugleiða og
vinna að því verkefni að foreldrar ættu
kost á og kepptu að því að annað þeirra
væri jafnan heima ef ung börn eru þar-
En það ræðum við á öðrum vettvangi. • ■
í sjónvarpsþáttunum, sem Hermann
Gunnarsson stjórnar, koma fram seX
ungir krakkar. Okkur fannst tilvalið að
taka þá tali og inna þá eftir hvernig þevm
líkaði þessi „vinna“ og hvað hefði komið
þeim á óvart við sjónvarpsupptökurnar-
„Þetta hefur verið mjög gaman. Neij
við höfum ekki verið neitt voða feimin-
Við erum líka svo mörg að það reymr
ekki eins á hvert einstakt okkar. Við er-
um kannski lítið eitt kvíðin og hrædd við