Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.03.1989, Qupperneq 8

Æskan - 01.03.1989, Qupperneq 8
Það var að koma vor í Grænaskógi. Tröllabörnin voru orðin þreytt á skólanum. Og kennararnir voru líka þreyttir á tröllabörnunum. Teikningar: Míu ára börn í Grundaskóla á Akranesi ‘i'*: w: > C, K? : l . CJ r' Framhaldssaga eftir Kristínu Steinsdóttur Sólin skein glatt upp á hvern dag og skógurinn var að grænka og snjórinn að hverfa. Tröllin voru afskaplega óþæg í tímum. Tröllapabbi var alveg að gefast upp. Tröllin létu illa í skólanum og tröllabörnin hans, þau Tóti, Tumi, Títa, Tolli, Tala, Todda, Tófa, Tommi og Tyrfingur, létu líka illa heima. Eini ljósgeislinn var Tómasína litla. Hún var bara ekki eins og önnur tröll. Tröllabörnin sögðu að hún væri leiðinleg af því að hún vildi ekki slást og láta illa. Hún nennti því ekki og henni fannst það ekkert gaman. - Mér finnst ekki að öll tröll þurfi að láta illa, sagði hún bara þegar hin tröllin vildu fá hana til að vera með í prakkara-strikum. Svo fór hún út að leita að blómum. Hún var hugfangin af blómum og fallegum litum. Einu sinni sem oftar þegar hún var úti við að skoða blómin hitti hún lítinn álfa-strák. og klappaði honum. - Neeeeiiiii, svaraði Skotti og skalf enn meira. - Ertu kannski veikur? Tómasína skoðaði Skotta hátt og lágt og þreifaði Hann hét Skotti. Skotti sat uppi í tré og þorði ekki niður því að Rebbi beið undir trénu og ætlaði að hrekkja hann. Rebbi flýði þegar hann sá Tómasínu því að hann er dauð-hræddur við tröll, meira að segja litlar tröllastelpur, eins og allir vita. En Rebbi vissi ekki hvað Tómasína var góð tröllastelpa. Skotti var ægilega hræddur þegar Tómasína tók hann í lófann og lyfti honum niður úr trénu. Hann skalf og nötraði. Er þér svona kalt, auminginn? spurði Tómasína 8 ÆSKAJST

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.