Æskan - 01.03.1989, Page 17
við a móti Vestur-Þjóðverjum.“
~ Hvað hefur þú skorað mörg mörk
með A-landsliðinu?
»Nokkur umfram 100. Ég skoraði
hundraðasta markið í Frakklandi.“
~ Hvernig hefur þér fallið að æfa og
eika undir stjórn Bogdans?
»Yfirleitt vel, þó misjafnlega. Hann
a það til að einangra menn og taka þá í
8egn, reynir jafnvel að fá menn upp á
móti sér, æsa þá upp. . . Það er hluti af
þcim aðferðum sem hann beitir til að
na góðum árangri. Og það hefur tek-
íst. .
~ Eru landsliðsmenn góðir félagar?
»Þetta hefur verið mjög samstilltur
°pur, leikmenn og aðstoðarmenn. Og
a°n hefur staðið með þjálfaranum í
gcgnuni þykkt og þunnt.“
~ Heldur þú að þeir leikmenn dragi
Slg nú í hlé sem rætt hafa um að hætta
með landsliðinu?
»Ég hygg að einhverjir hætti. Það er
ekki gott að segja hverjir - hvort það
Verða þeir sem þegar hafa talað um það
eða aðrir.“
Hvaða leik hefur þér þótt sárast að
tapa?
»Ætli ég nefni ekki leik á móti Val á
sJandsmótinu í fyrra. Við vorum einu
Stlgi °far en þeir allt mótið þar til við
l0Puðum fyrir þeim í lokin með þriggja
marka mun.“
«Það er sjö manna
lið á vellinum"
~ Hvað er framundan hjá FH?
■ð ræddum saman 6. mars. . .)
»Það eru mjög margir leikir í þessum
manuði, í íslandsmótinu, Bikarmótinu
°8 tVeir leikir í Evrópukeppni, gegn
s°vésku liði í undanúrslitakeppni átta
. m ^ þeirri keppni höfum við „slegið
m tvö lið, norska liðið Fredensborg-
* °g rúmenska liðið Baia Mare.
arkatala var jöfn í leikjum við Norð-
menn en við komumst áfram þar sem
1 skoruðum fleiri mörk en þeir á úti-
e.m Gegn Rúmenum gekk okkur
m,ög Ula úti en að sama skapi vel hér
- !f!a ~ t0puðum með átta marka mun
^úrneníu en unnum með þrettán
marka mun hér! Möguleikar? Það er
m gott að segja. Sovétmenn eru alltaf
sterkir. - Við eigum tölfræðilegan
m°guleika á að ná Valsmönnum í ís-
andsmótinu en mér þykir ólíklegt að
Pað gerist.“
Standa leikmenn FH vel saman?
„Já. Við erum miklir mátar og höld-
um gjarna hópinn. Þegar einhver í lið-
inu á afmæli hittumst við allir hjá hon-
um. í leikjum höfum við hugfast að
vinna hver fyrir annan. Það dugar ekki
að hugsa einungis um að reyna að skora
sjálfur. Það er sjö manna lið inni á vell-
inum. Sigurinn er þess en ekki ein-
staklinganna.“
- í hvaða skólum hefur þú verið?
Hvaða nám stundarðu?
„Ég var í Öldutúnsskóla til níu ára
aldurs. Þá fluttumst við í Norðurbæinn
og ég fór í Víðistaðaskóla. Ég hóf nám í
Flensborgarskóla en hætti þar fljótlega
og er nú við nám í húsasmíði, - á
námssamningi hjá ístak hf. Ég hef lok-
ið tveim árum af fiórum. Hluta þess
tíma, sem eftir er af samningnum, verð
ég í Iðnskóla, þrjár annir.
„Já, ég hlusta á tónlist af ýmsu tagi.
Ég hef dálæti á mörgum, t.d. Bruce
Springsteen, A-Ha, Prefer Sprout.
Nei, ég hef aldrei orðið það frægur að
leika á hljóðfæri. Á sínum tíma langaði
mig til að læra á gítar en það varð ekk-
ert úr því. í fiölskyldunni? Já, tveir
föðurbræður mínir leika á píanó.“
- Stúlkum, sem hafa skrifað okkur,
er í mun að vita hvort þú eigir kærustu
og ef ekki hvernig draumaprinsessan
líti út. . .
„Ég á ekki kærustu. Nei, ég hef ekki
reynt að gera mér mynd af þeirri sem
ég vildi eiga, bíð bara eftir að sú eina
rétta komi í ljós. Það skiptir líklega
mestu að hún reynist góður félagi.“
- Hafa erlend félög ekki reynt að fá
þig til liðs við sig?
„Það hefur nokkrum sinnum verið
„Hann lék frábærlega. . . handknattleiksmaður framtíðarinnar. . .“ sögðu íþróttafréttamenn.
Stjórnendur fyrirtækisins hafa verið
mjög liðlegir og aldrei hefur staðið á að
ég fengi frí til að fara á æfingar eða í
keppnisferðir. Það getur verið erfitt
fyrir þá sem starfa hjá litlum fyrirtækj-
um. Þar er alltaf óþægilegra að bæta í
skarðið en í þeim stóru.“
- Hefurðu tíma til að sinna öðrum
áhugamálum en handknattleiknum?
„Nei, það get ég varla sagt. Ég fer til
dæmis sjaldan í kvikmyndahús,
kannski einu sinni í mánuði. Eftirlætis-
leikarar? Chevy Chase, Steve Martin og
Jack Nicholsson.“
- Hefurðu gaman af tónlist?
nefnt við mig en ég hef hafnað öllu
slíku áður en það hefur verið rætt af al-
vöru. Ég held að ég verði hér heima
þangað til ég hef lokið námi. Eftir það
má hugsa málið. Það getur verið gott
að leika erlendis og þroskast þar sem
leikmaður. Ef til vill er meiri hætta á að
staðna hér heima en þar. Það er alltaf
ágætt að reyna eitthvað nýtt.“
Héðni og félögum hans í landsliðinu
óskum við góðs gengis og þökkum frá-
bæra frammistöðu. Allir lesendur Æsk-
unnar. Það sagði ég Héðni. Var það
ekki alveg rétt. . .?
ÆSKAJST 17
Ljósm.: DV