Æskan - 01.03.1989, Blaðsíða 28
VíSINDA
ÞÁTTUR
Umsjón: Þór Jakobsson
himalayafjöllin stæhka enn
Nýjar rannsóknir hafa leitt í ljós
að hæstu fjöll í heimi hækka enn.
Átt er við Himalayja-fjallgarðinn
nyrst í Indlandi. Hækkunin er
sums staðar hálfur sentímetri á
ári. Þetta lætur lítið yfir sér á
prenti. En í rauninni samsvarar
þetta mikilli hækkun á einni öld
eða þá þúsund árum þegar haft er
í huga hve gífurlega mikil og
þung slík feiknafjöll eru. Það eru
því miklir kraftar sem valda þess-
ari lyftingu.
Heimsálfurnar fljóta hægt og
rólega um á yfirborði jarðar með
50 sentímetra hraða á ári. Þetta
kallast landrek. Á landakorti sést
sums staðar ótrúlega vel hvar
lönd hefur rekið hvort frá öðru á
milljónum ára. T.d. falla Suður-
Ameríka og Afríka hvor að ann-
arri. Ekki er þó langt síðan menn
viðurkenndu hina vísindalegu
kenningu um landrek. Þegar ég
var í barnaskóla þótti sá bara
fyndinn sem furðaði sig á hve vel
Suður-Ameríka féll að Afríku.
Nú vita menn að það er engin til-
viljun.
Víkjum sögunni aftur að Him-
alayafjöllum. Endur fyrir löngu
var Indland eyja „á siglingu“
norður í átt til meginlands Asíu.
Þessi hægfara sigling stóð í 30
milljón ár þar til þessi forna Ind-
landseyja rakst á Asíu. Það gerð-
ist fyrir 50 milljónum ára. Við
áreksturinn stakkst eyjan inn
undir meginlandið. Hluti megin-
landsins lyftist því upp og varð að
Himalayafjöllum.
Átök þessi standa enn yfir og
fjöllin hækka. En þess ber að
gæta að önnur náttúruöfl vinna á
fjallatindunum jafnóðum og slípa
í sífellu kúfinn af. Öfl þessi eru
vindar, úrkoma (rigning og
snjór), ár og jöklar en áhrif þess-
ara náttúrufyrirbæra kallast einu
nafni veðrun. Jarðfræðingar ætla
að veðrunin vinni á fjöllunum
jafnfljótt og þau hækka. Feikna-
mikill jarðvegur skolast burt og
alla leið til hafs. Hið mikla Indus-
fljót flytur daglega fimm milljón
tonn af jarðvegi og mulningi frá
veðruðum fjöllum Himalaya suð-
ur í Indlandshaf.
En allt um það verða Him-
alayafjöll áfram hæstu fjöll í
heimi um margar milljónir ára.
Geimferð
til
Mars
Fyrr í vetur var sagt frá því hér i
Vísindaþætti Æskunnar að Sovét-
menn hefðu sent tvö geimför til
reikistjörnunnar Mars. Þau áttu
einkum að kanna tungl sem svíf-
ur umhverfis Mars og kallast Fó-
bos. Geimförin tvö hétu reyndar
Fóbos 1 og Fóbos 2. Því miður
slitnaði sambandið við þann fyrr-
nefnda, sennilega vegna mistaka
tæknimanns sem fór ekki að
ströngum tæknilegum fyrirmæl'
um um fjarskipti við geimförin-
Síðarnefnda geimfarið er hins
vegar í lagi og eru vonir um góð'
an árangur þessara rannsókna þ°
að þessi bilun yrði í Fóbosi 1.
Ætlun Sovétmanna er að senda
fleiri geimför til Mars næsta ára-
tuginn. Það verður 1994 og 1998-
Talið er að þeir ætli að notfæra
sér hentuga afstöðu jarðar til
Mars árið 2001 og freista þess að
senda geimfara í hringferð til
reikistjörnunnar án þess að lenda-
Geimfararnir legðu af stað 9.
mars árið 2001, flygju fram hja
Mars 20. ágúst og kæmu síðan
heim til Jarðar sigri hrósandi 25-
maí 2002 eftir rúmlega 14 mánaða
ferð. En meginmarkmið allra
þessara rannsókna er þó undir-
búningur að lendingu manna a
Mars árið 2015. Það verður talið
merkisár í mannkynssögunni og
mikið um dýrðir. Hvað verðið
þið gömul það árið? Könnunar-
leiðangurinn til Mars á að standa
í tvö ár.
(Ofangreindar fréttir úr heimi vísind'
anna eru að mestu endursagðar ur
blaðinu Illustreret Videnskab)
28 ÆSKAH