Æskan

Árgangur

Æskan - 01.03.1989, Blaðsíða 33

Æskan - 01.03.1989, Blaðsíða 33
Búum til betri heim Mér finnst að hver maður verði að byrja á sjálfum sér til að gera veröld- ina betri en hún er því að það veldur sundrung ef maður fer að reyna að breyta fólkinu í kringum sig. Það er ekki hægt að breyta öðrum en sjálf- um sér en það er hægt að hjálpa fólki að tileinka sér góðar dyggðir, s.s. kurteisi, hjálpsemi og fleira. Þar þurfa foreldrar að koma til. Þeir þurfa að hjálpa börnum sínum að til- einka sér góðar dyggðir og losa þau við fordóma og ala þau upp sem ábyrga einstaklinga svo að þau verði tilbúin til að taka við ábyrgð og glíma við vandamál en varpi þeim ekki frá sér. Þetta er allt þáttur í að búa til betri heim. En það þarf meira til, til að mynda algjört jafnrétti, bæði milli kynja og kynþátta. Minnka verður bilið á milli ríkra og fátækra, draga úr hernaðarumsvifum og stöðva her- gagnaframleiðslu. Einnig mætti koma á ráðstefnu þar sem einn fulltrúi væri frá hverju ríki; þar væri ráðgast um heimsvandamálin. Það sem ég á við með að ráðgast er að allir komi fram með skoðanir sínar, síðan verði tillög- ur settar fram og ef til vill einhverjum þeirra blandað saman svo að út komi tillaga sem meirihluti samþykkir. All- ir verða að hlýða því sem samþykkt er. Þetta má ekki verða þessi sand- kassaleikur sem kallast stjórnmál eða pólitík þar sem hver flokkur hefur sínar hugmyndir sem ekki verður hvikað frá hvort sem þær eru réttar eða rangar. Það væri líka gott ráð að koma á einu alheimstungumáli og einum al- heimsgjaldmiðli. Og svo gerir hver sitt besta og við sjáum hvað setur. Matthías Pétur Einarsson, Garðarsbraut 30, Húsavík. Þakka þér fyrir þennan ágœta pist- il, Matthías. Vonandi hafa fleiri en þú hugleitt þetta efni í framhaldi af frásögn um alþjóðlegt samstarf um betri heim en við lifum í. (10. tbl. 1988, jólablað, bls. 24) Við birtum með ánœgju hug- renningar lesenda tengdar henni. Arnaldur og aðrir góðir Kæra Æska! Um leið og ég þakka gott blað ætla ég að biðja um eitthvað um leikarana Arnold Schwarzenegger, Dolph Lundgren, Tim Dalton og hljóm- sveitina The Proclaimers. Jón Eysteinn Bjarnason, Brœðrabrekku. Kæra Æska! Ég dái Arnold Schwarzenegger og langar til að biðja um að sagt verði frá honum í blaðinu og birt veggmynd. Erla Svar: Poppþœttinum er látið eftir að segja frá þeim „yfirlýsingaglöðu“ (Procla- im: lýsa yfir, gera kunnugt) Arnaldur er austurrískur að upp- runa. Hann iðkaði líkamsrœkt af ákafa frá unga aldri og varð meðal hinna fremstu í þeirri grein - vann í margri keppni. Hann hélt til Banda- ríkjanna og reyndi fyrír sér sem leik- ari. Hann fékk mörg hlutverk, síðar aðalhlutverk, vegna kraftalegs vaxtar síns og varð frœgur. Hann þótti og leika harla vel og er nú boðið að túlka ýmsar persónur án þess að sýna fyrst og fremst álitlega vöðva. . . Meðal kvikmynda, er hann nýlega hefur leikið í, má nefna „Red Heat“. í nýlegu viðtali kvaðst Arnaldur aldrei hafa notað neins konar vaxtar- örvandi lyf, hann hefði byggt upp vöxt sinn hœgt og bítandi, með erfiði, ein- beittur og ákveðinn. Hann kvaðst styðja aukið eftirlit með lyfjanotkun í öllum löndum og öllum íþróttagrein- um. Hann hefur látið sig málefni fatl- aðra barna miklu skipta og segir að hann dáist að dugnaði þeirra og þrautseigju. „Þau þarfnast stuðnings okkar og umhyggju en ekki vorkunn- semi,“ segir hann. Kona Arnalds er María, fœdd Ser- gent-Shríver, systurdóttir Kennedy- brœðra. Hún starfar við þáttagerð fyrir NBC-sjónvarpsstöðina og þykir ágœt af því. Þegar Arnaldur var spurður hvort þau hygðust ekki eign- ast börn hið nœsta svaraði hann að ekki liti út fyrir það, kona sín helgaði sig starfinu og vildi ekki binda sig með barneignum, sjálfur vœri hann barnelskur. . . Hann viðurkenndi fúslega að hann hefði miklar mœtur á móður sinni og sagði að það vœri skylda hvers manns. Hann útvegaði henni lítil hlutverk í „Conan“-myndunum - en þar fór hann með aðalhlutverk. „Móðir mín heitir Árelía. Það er afar fallegt nafn,“ sagði hann. „Hún var nýlega hjá mér í Bandaríkjunum og við komum fram í þœttinum Mœð- ur frcegs fólks. Hún hafði mikinn leiksviðsgeig. . .“ (Frásögn af öllum þeim sem þú nefndir, Jón Eysteinn, tceki of mikið rými. . . Von er til þess að sagt verði frá þeim síðar í þcettinum Leikara- kynning) ÆSKALT 33
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.