Æskan - 01.03.1989, Blaðsíða 47
Ó, ó, allar þessar hurðir og löngu
§angar. En hvar er allt fólkið? Enginn
einia eða hvað? Á einni hurð innarlega
hi vinstri stendur með stórum, svörtum
stöfum á hvanngrænu spjaldi: KE
~ KENNARASTOFA. Nú, þarna eru
Pa blessaðir mennirnir. En hrifning
Somlu konunnar breytist í undrun og
e^ki litla er hún lítur þar einungis konur
a störfum. Hvar er jafnréttið nú? hugs-
ar hún. Þetta sem allir eru að fárast yfír í
andsmálablöðunum og gamla, góða út-
VarPÍnu. Höfðu nú konur loks látið
Verða af því að taka öll völd í sínar hend-
Ur ^er á jörðu? Ekki boðar það gott.
Nú, nú, þarna kemur þá loks einn
arlmaður, vígalegur á velli, þrammandi
e tir langa ganginum. Henni þykir hann
arennilegur svo að hún heilsar upp á
ann og segir til sín, kveðst vera komin
u að líta á dýrðina. Hann tekur henni
Vei og segir henni sé ekki of gott að litast
UlT11 vistarverum skólans. Kveðst skulu
utvega henni góðan fylgdarmann. Fer nú
vænkast hagur þeirrar gömlu. Alls
aðar vinna í fullum gangi og hugur í
uamsmönnum.
»í*etta líkar mér dável.“
^arna srtur drengur og rembist við
a þræða nál í splunkunýrri saumavél.
‘tthvað varð að hjálpa upp á greyið.
e Ur hún nú yfir töfraþulu er hún taut-
ar °fan í bringu sér:
”Verði nú hratt - verði nú skjótt
~ við ósk minni fljótt.“
Og mikil ósköp; gegnum augað renn-
ur þráðurinn í sama bili. En drengurinn
situr agndofa eftir með spurn í björtum
svip.
Næsta hurð, næsta stofa. Þar situr
stúlka og paufast með spýtubút, hamar
og nagla.
„Ósköp eru að sjá þessi klaufalegu
handtök.“
Ekki dugir að horfa upp á þetta með
hendur í kjöltu. Hefur hún nú þuluna
yfir á nýjan leik og allt endurtekur sig
sem fyrr. Nú gefur að sjá verkfærin og
efniviðinn leika listilega í höndum þeirr-
ar litlu og gleðibros færist yfir barnsleg-
an svipinn.
í næstu stofu eru krakkar að vinna að
svo kölluðu hópverkefni.
„Svona á þá að læra, hjálpast að. Þetta
líkar mér,“ hugsar hún.
En tíminn æðir áfram. í dag eins og
endranær því að nú glymur klukka í eyr-
um og kallar hana til baka, til fyrri
starfa.
En bókasafnið á hún alveg eftir að sjá.
Hún litast nú um innan um ótrúlegan
fíölda bóka. Margar eru með fallegum
myndum. Hún er næstum búin að
gleyma stund og stað.
„Hér þarf ekki nokkur sála að svelta
úr andlegum fóðurskorti.“ Það er hennar
skoðun. „Hérna hljóta bókabéusarnir að
dveljast löngum stundum.“
Mikið kann hún ljómandi vel við sig í
bókasafni skólans. Hún getur alveg
hugsað sér að eiga þarna heima. Aftur
hringja klukkur og nú er mál að flýta
sér.
En þreytan er farin að segja til sín og
heim vill hún komast til að hvíla lúin
bein. Nú vildi hún vera komin heim. Og
einmitt þess vegna hefur hún að lokum
yfír litlu töfraþuluna og hún bregst ekki
frekar en fyrri daginn.
Með þuluna á vörum sést sú gamla
líða út um anddyrið. í hópinn slást fugl-
ar himins. Þeim hefur fíölgað. Þeir fagna
gömlu konunni sem svífur á braut í fylgd
litlu vinanna sinna.
Henni er ekkert að vanbúnaði. Nú
þarf hún engin skíði. Gagnsæir vængir
halda henni uppi. Og þarna hverfur hóp-
urinn á braut. Og skíðin, þau hanga í
löngu bandi og láta fara vel um sig.
Svona endar sagan.
Hvernig fínnst ykkur ævintýrið um hana
ömmu sem kom í heimsókn niður til
jarðarinnar?
Nú skuluð þið útvega ykkur pappír og
penna og semja ykkar eigið ævintýri. . .
Leikir fyrir stóra og smáa
Kristín Steinsdóttir tók saman
BliKKIeikur
Tilvalið er að fara í þennan leik í
afmælum, á niðjamótum eða ann-
ars staðar þar sem margt fólk er
saman komið.
Stólum er raðað í hring á gólf-
inu og sest í alla stóla nema einn.
Fyrir aftan hvern stól stendur
maður og gætir þess sem á stóln-
um situr. Hann má samt ekki
halda honum föstum. Sá sem
stendur fyrir aftan auða stólinn
reynir að fá einhvern til að koma
til sín á sinn stól. Það gerir hann
með því að blikka þá sem sitja á
hinum stólunum. Þeir sem sitja
verða að fylgjast vel með blikkar-
anum, grípa í sinn mann og halda
honum niðri á stólnum þegar
hann reynir flytja sig yfir á auða
stólinn. Það getur tekið langan
tíma fyrir þann sem blikkar að ná
sér í mann ef þeir sem standa fyrir
aftan fylgjast vel með og gæta að
sínum stól.
Ef þeim sem blikkar gengur af-
ar illa að ná einhverjum til sín á
stólinn má hann kalla eldur, eld-
ur. Þá verða allir að hlaupa upp
og skipta um stóla. Og sem fyrr
verður einn stóll auður og sá sem
stendur fyrir aftan hann á þá að
blikka næst.
Góða skemmtun!
ÆSKATT 47