Æskan - 01.03.1989, Blaðsíða 41
Rickshaw tilboð um girnilegan plötu-
samning. Þegar þetta er fest á blað eru all-
ar líkur á að Iiðsmenn Rickshaw taki þeim
samningi og telji sig með því vera komna
með annan fótinn inn fyrir þröskuld
heimsfrægðarinnar.
• . . að breskir blaðamenn gerðu góðan
róm að hljómleikum Ragnhildar Gisla-
dóttur og Strax í Englandi nýlega. Blaða-
mennirnir líktu músík Ragnhildar og fé-
laga við Tínu Turner og kvennahljóm-
sveitina Go Go’s.
Þórður Bogason
■ ■ .að Þórður Bogason, fyrrverandi
söngvari Þrcks, Raddarinnar og Rickshaw
og núverandi söngvari Foringjanna og
Hins liðsins, hefur sett á laggirnar nýja
bárujárnsrokksveit. Ekki var búið að gefa
henni nafn síðast er við fréttum. . .
• ■ • að einhverjir fyrrverandi liðsmenn
hljómsveitanna Tregablandinnar lífsgleði
°g Sogbletta hafa komið saman harð-
rokksveit sem þeir kalla Dýrið gengur
Iaust.
Yfirlysing
frá
Popp-
þættinum
Fulltrúi plötufyrirtækis og íleiri hafa
kvartað undan því að Bubba og Gramm-
inu sé gert óeðlilega hátt undir höfði í
Poppþættinum. Vegna þessara kvartana
fór ég yfir fyrstu sjö tölublöð Æskunnar
1988 og mældi Poppþáttinn. Niðurstaðan
er þessi:
Mest var skrifað um skemmtikrafta
Skífunnar (á fjórða hundrað dálksentí-
metra), næst mest um skemmtikrafta
Steina hf. (á þriðja hundrað dsm), en
minnst um skemmtikrafta Grammsins
(innan við hálft annað hundrað dsm, þar
af var tæpur helmingur spjall við Björk í
Sykurmolunum. Það viðtal var tekið
'vegna eindreginna óska frá ritstjórum
Æskunnar).
Ef önnur poppskrif í Æskunni eru með-
talin er niðurstaðan þessi:
Um skemmtikrafta Skífunnar var skrif-
að jafngildi hátt á sjöundu blaðsíðu (texti
án mynda). Um skemmtikrafta Steina hf.
voru skrifaðar tæpar sex blaðsíður. Um
skemmtikrafta Grammsins voru skrifaðar
innan við tvær blaðsíður.
Til samanburðar er vert að hafa í huga
hlutföll þessara fyrirtækja á íslenska
plötumarkaðnum í fyrra. Steinar hf. var
með 18 plötur á sínum snærum, Grammið
með 16 og Skífan með 14.
Hvað skrif um Bubba varðar kom nafn
{ i
Danskættaða bárujárnssveitin White Lion leggur
Bandaríkjamarkað að fótum sér.
hans fyrir þar sem fjallað var um almenna
lista, s.s. „Plötur ársins“ að mati hlust-
enda Rásar 2, „Vinsældaval lesenda Æsk-
unnar“, „Bestu íslensku lögin“ að mati
hluscnda Bylgjunnar o.þ.h., svo og í les-
endabréfum. Vinsældir Bubba eru ein-
faldlega svo miklar að Poppþátturinn yrði
að sniðganga alla íslenska poppvinsælda-
lista og mörg lesendabréf ef nafn Bubba
mætti hvergi sjást. Það væri svipað og að
ætla sér að fjalla um íslensk stjórnmál án
þess að nefna Steingrím Hermannsson og
Framsóknarflokkinn. Hvernig halda
menn að bandarískir poppskrifarar af-
greiði Brúsa Springsteen eða breskir U2?
Bubbi pr vinsælli á íslandi en þessi tvö
fyrirbæri í heimahögum sínum. Nokkrar
plötur hans hafa selst í 20 þúsund eintök-
um hver. Síðustu 8 árin hefur Bubbi kom-
ið við sögu á fjórum tugum hljómplatna
sem hafa til samans selst í nokkur hundr-
uð þúsund eintökum hérlendis. Á einni
hljómleikaferð um ísland nær Bubbi 20-
30 þúsunda manna aðsókn. Vinsældalistar
útvarpsstöðvanna skarta oft þrem, fjórum
og jafnvel fimm lögum mcð Bubba sam-
tímis. Þegar þetta er skrifað á Bubbi vin-
sælasta lagið hjá þessum stöðvum. Hann á
jafnframt söluhæstu plötuna.
Þó að Bubbi hafi þesa yfirburðarstöðu
birtist aðeins ein stök og sjálfstæð grein
um hann í fyrstu 7. tbl. Æskunnar á þessu
ári. Sú grcin var sléttir tveir dálksenti-
metrar og aðeins tvær setningar. Þær
greindu frá væntanlegri dúettplötu Bubba
og Megasar.
Á sama tíma hefur verið fjallað um
Ragnhildi Gísla (tvær greinar), Stuð-
kompaníið, Bjarna Ara, Mosa frænda,
Sverri Stormsker, Síðan skein sól, Eftirlit-
ið o.fl., í greinum sem þekja hálfar og
heilar blaðsíður og allt upp í heilar opnur.
Enginn þessara ágætu skemmtikrafta
kemst með tærnar þar sem Bubbi hefur
hælana hvað varðar plötusölu, aðsókn að
hljómleikum o.s.frv. Þcir cru hins vegar á
snærum Steina hf. og Skífunnar svo að
umfjöllun um þá er ekki varhugaverð.
Bubbi er aftur á móti tcngdur Gramminu,
eins og Sykurmolarnir, Langi Seli &
Skuggarnir, Megas, Svart-hvítur draum-
ur, Þursaflokkurinn og fleiri virtir og vin-
sælir popparar sem ekki má fjalla um hér-
lendis. Þetta eru þó þeir popparar sem er-
lendir blaðamenn, erlendir plötuútgefend-
ur og erlendir plötukaupendur sýna meiri
áhuga en öðrum íslenskum.
Æskan er ekki eini fjölmiðillinn sem
hefur verið sakaður um að hampa Bubba
og Gramminu óeðlilega mikið en gefa
plötum annarra útgefenda of lítinn gaum.
Flestir fjölmiðlar, sem fjalla um poppmús-
ík, eru sakaðir um þetta. Sumir þeirra,
þ.á.m. Morgunblaðið, hafa séð ástæðu til
að hrckja þær ásakanir opinberlega. Flest-
ir líta þó á ásakanirnar þeim augum sem
ber: Léttvægt nöldur!
Ath.: Greinin var skrifuð haustið 1988.
- JKG
ÆSKAJST 41