Æskan - 01.03.1989, Síða 16
Héðinn er fæddur 27. september
1968 og ólst upp í Hafnarfirði. Hann
hefur æft handknattleik frá átta eða níu
ára aldri og lék jafnframt knattspyrnu
- þar til hann var 14 ára. Þá sneri hann
sér óskiptur að handboltanum. Eitt ár
lék hann körfuknattleik með Haukum
og þá varð hans flokkur í 2. sæti á ís-
landsmótinu.
„Mér fannst rétt að gera upp á milli
greinanna. Það er betra að vera góður í
einni grein en miðlungsmaður í þrem-
ur. Mér líkaði best í handknattleik og
valdi hann.“
- Áttu systkini? Hafa þau líka fetað
í fótspor föður síns?
„Ég á þrjár systur. Tvær þeirra leika
handbolta með FH. Björg er 25 ára og
leikur með kvennalandsliðinu - Helga
Kristín er 16 ára. Sú yngsta, Sigrún, er
sex ára. Hún er því ekki byrjuð
enn. . .“
- Hefur móðir þín kannski iðkað
handknattleik líka?
„Nei, en hún er í stjórn FH og hefur
starfað mikið fyrir félagið. Fjölskyldu-
lífíð er að heita má helgað FH. Faðir
minn sér alla leiki okkar á höfuðborg-
arsvæðinu og kvenfólkið flesta.“
„Þetta hefur verið mjög samstilltur hópur. “
- Hvernig vegnaði þeim liðum sem
þú lékst með meðan þú fetaðir „upp
flokkana“?
„Við urðum íslandsmeistarar í 3.
flokki, á öðru árinu þar, og síðan bæði
árin í 2. flokki - þrisvar í röð. Eftir að
ég fór að leika með meistaraflokki höf-
um við verið í 2.-3. sæti. Liðið er nú
skipað mjög ungum leikmönnum,
Þorgils Óttar er elstur, 27 ára! Ég tel að
við eigum framtíðina fyrir okkur.“
- Hafa einhverjir í liðinu leikið lengi
með þér?
„Já, við Óskar Helgason höfum
fylgst að frá því í 5. flokki. Bergsveinn
markvörður hefur æft með okkur síðan
„Þegar ég stökk upp átti ég það til að snúast í loftinu ef við mér var stjakað.
í 3. flokki. Hann var áður í Haukum.
- Þú hefur eflaust snemma farið að
leika með úrvalsliðum?
„Ég var að verða 16 ára þegar ég lék
fyrst með unglingalandsliði, þá var
miðað við 19 ára aldursmark. Síðan hef
ég leikið með landsliðum, skipuðum 18
ára og yngri - og 20 ára og yngri. Með
þeim hef ég til að mynda leikið í þrem-
ur Norðurlandamótum og alþjóðlegu
móti í Þýskalandi, gegn Vestur-Þjóð-
verjum, Tékkum og Norðmönnum.
Við unnum það mót.
Ég tók líka þátt í undankeppni
heimsmeistaramóts unglinga en missti
af úrslitakeppninni. Ég handarbrotnaði
hálfum mánuði áður en hún fór fram, í
leik á móti Portúgölum í Flugleiðamót-
inu í desember 1987. Það var slegið of-
an á fingurna á mér og ég var frá
keppni í fjórar vikur.“
- Hverjir hafa lengst leikið með þér
í unglingalandsliðum?
„Bergsveinn, Árni Friðleifsson í
Víkingi, Konráð Ólafsson og Sigurður
Sveinsson í KR og Júlíus Gunnarsson í
Fram.“
17 ára
með A-landsliði
- Þú ert yngstur í landsliðinu. . .
„Já. Bjarki Sigurðsson er ári eldri og
Hrafn Margeirsson tveimur árum.“
- Hvenær lékstu fyrst með því liði?
„Á Friðarleikunum í Moskvu í júlí
1986. Ég var að verða 18 ára.“
- Þú varst ekki með á Ólympíuleik-
unum. . .
„Nei. Ég æfði með 22-manna hópn-
um en gat ekki tekið á sem skyldi
vegna tognunar í baki. Var eins og
hálfgerður varamaður. En það var langt
frá því sjálfgert að ég keppti í Kóreu-
Sennilega hefði ég ekki verið valinn þ°
að ég hefði verið ómeiddur. Margir
sterkir og reyndir leikmenn tóku þátt t
undirbúningnum. Ef til vill fékk ég
tækifæri í Frakklandi af því að Ath
Hilmarsson og Páll Ólafsson voru
meiddir."
- í handknattleik er sífellt verið að
skipta um leikmenn - eftir því hvort
liðið er í sókn eða vörn. Ert þú sóknar-
eða varnarleikmaður?
„Með FH leik ég bæði í vörn og sókn
en það hefur verið allur gangur á því1
landsliðinu. í úrslitaleiknum í Frakk-
landi var ég einungis í vörn. Þjálfarl
stjórnar þessu og það fer eftir þvl
hverjir eru á leikvelli hverju sinm
hvernig hagað er til. Með landsliðinu er
ég enn þá varamaður fyrir reyndan
„skotmenn“ en ég er - a.m.k. í flest-
um leikjum.“
- Var ekki erfitt að taka við af þeim
í leik sem mikið var komið undir að þið
ynnuð - gegn Vestur-Þjóðverjum?
„Við máttum ekki við því að maður
væri streittur. Það var ekki um annað
að gera en að standa sig.“
- Ertu rólegur eða ákafamaður í ver-
unni?
„Ég er líklega frekar skapmikill inn1
á velli en maður reynir að róa sig>
a.m.k. gagnvart dómurum.“
- Getur þú nefnt mér leik sem þer
hefur þótt öðrum skemmtilegri?
„Allir leikirnir í Frakklandi voru
rosalega skemmtilegir. Sigur í úrslita-
leiknum var auðvitað afar sætur og það
var gaman að skora mörk þegar mest la
16ÆSKAFT