Æskan - 01.05.1992, Page 22
VEGGMYNDIR
Elsku Æska!
Ég þakka fyrir frábært blað!
Mér finnst að þú ættir að hafa
dýr öðrum megin á veggmyndinni
og popþstjörnu hinum megin. Það
væri sanngjarnt.
Getur þú birt veggmyndir af Nir-
vana, Richard Grieco eða Christi-
an Slater?
Aðdáandi.
Æskupóstur!
Mig langar til að spyrja hvort
ekki sé hægt að birta aftur mynd
af hestum á veggmynd (bara dýr-
inu)? Ég hef mikið dálæti á hest-
um og mér finnst leiðinlegt að hafa
manneskju með á myndinni. Hest-
urinn þarf ekki að vera frægur, bara
alíslenskur.
Eyþóra.
Svar: Við urðum við óskum
ykkar - og margra annarra að-
dáenda hljómsveitarinnar Nir-
vana og íslenska hestsins - í 4.
tbl.
Pósthólf 523 121 Reykjavík
HANDKNATTLEIKS-
KAPPAR
Kæri Æskupóstur!
Ég þakka frábært blað og
skrýtlur.
Ég vil koma tveimur óskum á
framfæri: Að landsliðsmaður í
handknattleik verði fenginn til að
svara aðdáendum - og að þið birt-
ið full nöfn þeirra sem kepptu í
Austurríki.
Birtið þið sögur sem lesendur
senda?
Ég samdi þetta Ijóð:
ÞÚ
Þegar þú birtist
eins og sól á himni
vakna hjá mér vonir
um lífið og tilveruna.
Svo hverfurðu
eins og dögg fyrir sólu
þá er lífið einskis virði.
Rut.
Svar: Þú hefur fengið ósk
þína uppfyllta íþættinum Aðdá-
endum svarað. Nöfnin birtum
við þó ekki að sinni - enda
nokkuð um liðið frá keppninni
og búast má við að landsliðið
verði skipað öðrum mönnum í
næsta leik...
Allar sögur, sem okkur ber-
ast, eru metnar í smásagna-
keppninni en hún fer fram á
hverju hausti. Nokkrar þeirra
sem bestar eru taldar birtum við
í blaðinu.
AÐ LEIKA SÉR ...
Kæri Æskupóstur!
Umfram allt vil ég segja að ég
er alveg sammála Lilju sem sagði
i 3. tbl. að þú værir langbest eins
og þú ert.
Getur þú sagt mér hvernig
maður gerist félagi í aðdáenda-
klúbbi?
Ein skrýtla í lokin:
Mamma: Óli minn, hvers vegna
leikur þú þér ekki við hann Knút?
Óli: Hann er hundleiðinlegur.
Hann fer bara að grenja ef maður
lemur hann í hausinn með sþýtu!
S.G.
Svar: Best er að skrifa bréf
(á ensku) til klúbbsins og biðja
um upplýsingar um hann - hvað
það kosti að vera félagi og hvað
klúbburinn sendi félögum sín-
um. Rétt mun að senda alþjóð-
legt svarmerki í bréfinu. Það
fæst á pósthúsum.
MEÐ GRÆNT NEF ...
Kæra Æska!
Nú færðu Ijóð í heimsókn!
VORIÐ
Grasið er grænt, fjöllin blá.
Blómin eru gul og rauð.
Móarnir eru að byrja
að láta sér spretta berjalauf.
Það er komið vor.
í FURÐUVERÖLD
Ef ég hugsaði mér mann
með grænt nef og horn
væri hann líkastur skrímsli.
En ef ég hugsaði mér barn
með vængi og hörpu
væri það eins og engill Guðs.
Arndís Anna Gunnarsdóttir.
LÝSING Á FÖÐUR
Elsku Æska!
Hér er lýsing á pabba mínum:
Pabbi er mjög sparsamurá allt
nema mat, meira að segja á
þvottaefni. Hann gengur alltaf í
sömu buxunum án þess að þvo
þær í mánuð og vill að við gerum
það líka. Pabba finnst best að hafa
rjóma út á allt. Hann hefur alltaf
rjóma með kjöti og fiski og mat al-
mennt nema vöfflum. Þær borðar
hann án þess að hafa nokkuð
með!
Viltu hafa veggmyndir með Pat-
rick Swayze, Tom Cruise og Dav-
id Hasselhoff?
Viltu birta í poppþættinum um-
sagnir um plötur, kosti þeirra og
galla?
í hvaða skóla þarf að fara ef
maður vill verða leigubílstjóri?
Karl Javel.
Svar: Veggmyndir af Þatreki
og Tomma hafa fylgt blaðinu og
þær höfum við sent þér. Davíð
virðist ekki eiga marga aðdáend-
ur hér á landi þó að mikið sé lát-
ið með hann í þýskum unglinga-
blöðum.
Jens, umsjónarmaður popp-
þáttarins, hefur annað veifið birt
plötudóma og mun halda því á-
fram.
Taka þarf meirapróf bifreið-
arstjóra til að mega aka leigubíl.
En í lögum og reglugerðum um
ieigubifreiðaakstur er ákveðinn
hámarksfjöldi þeirra sem mega
stunda þá vinnu.
PENNAVINKONA ELÍNAR
Kæra Æska!
Ég týndi heimilisfangi penna-
vinkonu sem á heima í Reykjavík
- en heitir ekki Sóley. Ég vona að
hún lesi þetta.
Elín Karlsdóttir,
Narfastöðum,
551 Sauðárkrókur.
NÝJU KRAKKARNIR ...
Kæra Æska!
Við erum að safna undirskrift-
um til að fá Nýju krakkana í hverf-
inu til íslands. Við værum því afar
fegnar að fá - sem allra fyrst - lista
yfir þá sem vilja fá hljómsveitina
hingað.
Brynja, Freyja og Sigrún,
Lyngheiði 6,810 Hveragerði.
HLJÓMPLÖTUR
DONOVANS
Kæra Æska!
Ég er mikill aðdáandi Dannii
Minogue. Ég yrði mjög ánægð ef
þið gætuð birt veggmynd af henni
í Æskunni.
Hve margar plötur eru til með
Jason Donovan? Hvað heita þær?
Auður.
Svar:
Hljómplötur hans eru:
Smáskífur:
Ekkert fær skilið okkur að
(Nothing Can Divide Us) -1988
Tileinkað þér (Especially
for You) -1988
Of mörg kramin hjörtu
(Too Many Broken Hearts)
-1989
Innsiglað með kossi
(Sealed with a Kiss) - 1989
Ég elska þig heitar dag frá degi
(Every Day I Love You More)
-1989
Þegar þú kemur aftur til mín
(When You Come Back to Me)
-1989
Vertu trúr þeim sem þú eiskar
(Hang on to Your Love) -1990
Önnur nótt (Another Night)
-1990
Hljómfall regndropanna
(Rythm of The Rain) - 1990
Allt gengur að óskum
(l’m Doing Fine) - 1990
R.S.V.P. -1991
Ég læt mér nægja hvaða
draum sem er
2 2 Æ S K A N