Æskan - 01.05.1992, Síða 23
(Any Dream Will Do) - 1991.
Safnplötur:
Tíu frambærilegar ástæður
(Ten Good Reasons) - 1989
Milli línanna (Between The
Lines) -1990
Myndbönd:
Myndböndin (The Videos)
-1989
Myndböndin 2 -1990.
DRENGJAVINAFÉLAGIÐ
Kæri póstur!
Ég var að lesa gamalt Æsku-
blað og rakst á tilkynningu. Þar
stóð:
Stúlkur Islands! Látið skrá ykk-
ur í Stúlknavinafélagið. Verndum
stúlkur!
Mig langartil að snúa þessu við
og biðja drengi á aldrinum 13-20
ára að senda Drengjavinafélaginu
mynd af sér og rita nafn og heim-
ilisfang aftan á hana. Þeim verður
launað með tyggigúmmí-pakka
(jórturleðri...) - enda taki þeir fram
hvaða bragðtegund þeir kjósa.
Drengjavinafélagið,
b.t. Ingu Jónu Nóadóttur,
Bugatúni 12, 460 Tálknafirði.
TÓNSNILLINGAR
- Á 14. ÖLD
Hæ, hæ, Æska!
Gætir þú sagt mér hvaða tón-
listarsnillingar voru uppi á 14. öld?
Tóta.
Svar: Umsjónarmaður popp-
þáttarins, Jens Kr. Guðmunds-
son, á nokkrar bækur um tón-
listarsögu. Hann gerði okkur
þann greiða að leita, vel og
vandlega, að nafni tónskálds
sem uþþi kynni að hafa verið á
14. öld. Hann fann aðeins eitt.
Guillaume de Machaut (1300-
1377) var franskt hirðskáld. Ein-
hver verka hans hafa orðið lang-
líf hjá kaþólsku kirkjunni.
Hins vegar eru kunn mörg
tónskáld frá 15. öld - og að sjálf-
sögðu öldunum eftir það.
VINIR OG VANDAMENN
Kæri Æskupóstur!
Fyrst vil ég þakka fyrir gott blað.
Ég bíð alltaf með óþreyju eftir því.
Mig langar til að spyrja þig nokk-
urra spurninga:
1. Veistu eitthvað um strákinn
sem leikur Dylan í þáttunum Vinum
og vandamönnum? Viltu hafa
veggmynd með honum?
2. Getur þú ekki haft vegg-
myndirnar stærri - kannski tvöfalt
...?
3. Getur þú ekki haft veggmynd
með einhverju íþróttafólki, t.d. Carl
Lewis, Michael Jordan, Magic
Johnson eða Isiah Thomas? Ég er
viss um að margir aðrir vilja það.
Hér er skrýtla að lokum:
Lögregla stöðvaði bíl og sagði
við bílstjórann:
„Þú hefur unnið milljón í bíla-
happdrætti. Hvað ætlar þú að gera
við peningana?"
„Ja .. ætli maður taki ekki bíl-
próf...“ sagði maðurinn.
Þá sagði kona mannsins:
„Taktu ekki mark á honum.
Hann lætur alltaf svona þegar hann
erölvaður."
„Þá gall afinn í aftursætinu við:
„Ég vissi alltaf að við kæmumst
ekki langt á stolnum bíl!“
Hann hafði varla lokið orðun-
um þegar einhver kallaði aftan úr
farangursgeymslunni:
„Erum við komin yfir landamær-
in?“
Gulla.
Svör:
1. Hann heitir Luke Perry og
er „strákur" liðlega tvítugur
(raunar orðinn 27 ára en það
máttu engum segja...). Hann er
fæddur og ólst upp í Frederick-
town (Friðriksborg) í Ohio-ríki. í
kynningarpistlum framleiðanda
þáttanna er hann sagður vera í
raun hæglátur og indæll land-
búnaðar-smábæjar-piltur!
Luke ákvað tólfára að verða
leikari. Að loknu grunnskóla-
prófi (17 ára) hélt hann til Los
Angeles til leiklistarnáms. Síð-
ar fór hann til New York í sama
skyni. Þar lék hann ýmis hlut-
verk á sviði og í sjónvarpsaug-
lýsingum.
Luke vakti fyrst verulega at-
hygli fyrir leik í sjónvarpsþátt-
unum Loving. Hann hefur leikið
í kvikmyndunum Terminal Bliss
og Scorchers.
Áhugamál hans eru auk leik-
listar, stangaveiði, smíðar,
körfuknattleikur og elda-
mennska.
2. Væntanlega verðum við að
láta okkur nægja þessa stærð...
3. Tekið til athugunar.
FRAMHALDSSAGA
LESENDA
Hæ, hæ, kæra Æska!
Ég er með tillögur og spurning-
ar:
1. Gætuð þið ekki samið byrj-
un á sögu og látið lesendur senda
framhald af henni? Þið gætuð val-
ið það besta úr og haft sem fram-
haldssögu í eitt ár.
2. Ég var ánægð með að þið
skylduð hafa mynd af trúði á lím-
miða. Gætuð þið einhvern tfma
haft þess háttar á veggmynd?
3. Mega systkini áskrifenda
senda myndir og sögur í sam-
keppni?
4. Hvers vegna verður að skrifa
fulit nafn og heimilisfang undir bréf
til þáttarins Æskuvanda?
5. Getur þú gefið upplýsingar
um „Commitments"?
BH
Svör:
1. Við munum athuga tillögu
þína um framhaldssögu les-
enda. Fylgstu vel með næstu
tölublöðum Æskunnar.
2. Já - einhvern tíma á þessu
ári.
3. Já, að sjálfsögðu.
4. Nöfn og heimilisföng
sendenda eiga að fylgja öllum
bréfum - til þess að við getum
tekið mark á þeim. Beiðni um
nafnleynd er jafnan virt. Bréf,
sem send eru Æskuvanda, eru
ekki lesin af öðrum en umsjón-
armanni þáttarins.
5. Alan Parker var leikstjóri
þessarar tónlistarmyndar. Aug-
lýst var eftir óreyndum leikurum
sem hefðu áhuga á tónlist. Vel
tókst til og margir telja kvik-
myndina einhverja þá skemmti-
legustu sem gerð var í fyrra. -
Stefnt mun að þvi að gefa út
plötu með hljómsveitinni - sem
stofnuð var í myndinni.
LEIKKONAN BARDOT
Kæri Æskupóstur!
Ég hef mikið dálæti á frönsku
leikkonunni Brigitte Bardot. Getur
þú sagt mér hvenær hún var
fædd?
Dóri.
Svar: Brigitte var fædd í Par-
ís 28. 9. 1934. Hún fékk tilboð
um að leika í kvikmynd er hún
var fimmtán ára en sú kvikmynd
var aldrei sýnd. Þremur árum
síðar lék hún aftur í kvikmynd
og „sló þá ígegn“. 1964 hafði
hún leikið í meira en fjörutíu
myndum. Hún giftist franska
leikstjóranum Roger Vadim ung
að árum. Þau skildu eftir eitt ár.
1967 gekk hún í hjónaband með
þýska auðkýfingnum Gunther
Sachs. Þau skildu.
Á ýmsu hefur gengið í lífi
Birgittu. Oft varð auglýsinga-
braskið sem fylgdi kvikmynda-
leiknum henni ofviða. Um miðj-
an sjöunda áratuginn sligaði
umstangið hana svo að hún
reyndi að fyrirfara sér.
Langt er síðan hún hætti að
leika í kvikmyndum. Mörg und-
anfarin ár hefur hún helgað líf
sitt baráttu fyrir dýravernd.
(Heimildir: 5.-6. tbl. Æskunn-
ar 1968 og 7.-8. tbl. 1964. Þau
eru bæði uppseld)
ÆSKU
PÖSTUR
FRAMHALD Á BLS. 52
Æ S K A N 2 3