Æskan - 01.05.1992, Qupperneq 37
landsliðið? Gegn hvaða þjóð
lékstu fyrsta leikinn með því?
1976 - gegn Dönum í Vest-
mannaeyjum.
Hve margir eru landsleikir
þínir orðnir? Hve mörg mörk
hefur þú skorað í þeim?
190-500-600 mörk.
Hve mörg mörk hefur þú skor-
að flest f einum leik? En á
einu keppnistfmabili?
18 mörk í einum leik —191.
í hvaða stöðu hefur þú leikið?
Sem hægri skytta.
Hjá hvaða markmanni finnst
þér erfiðast að skora mark?
Jafnauðvelt hjá öllum.
Við hvaða varnarmann þykir
þér þyngst að glíma?
Sigurð Gunnarsson.
Hvaða íslenskt lið þykir þér
erfiðast viðureignar?
FH.
Hvaða leikir eru þér eftir-
minnilegastir - sigurs og
taps?
Sigurleikur landsliðsins á móti
Þjóðverjum í Frakklandi 1989.
Tap í fyrsta úrslitaleiknum gegn
FH í Hafnarfirði í vor.
Hver er helsti munur á því að
leika með fslensku liði og er-
lendu?
Erlendis eru ferðalög mun meiri
en hér. Meiri kröfur eru gerðar þar til
leikmanna enda eru þeir flestir at-
vinnumenn. En aðstaðan er mun
betri en hérá landi.
Hvaða leiktímabil hefur þér
þótt skemmtilegast?
1991-1992.
Hver eru helstu áhugamál þfn
önnur en handknattleikur?
Golf, veiði og allar íþróttir.
Hvað heita foreldrar þínir?
Æfðu þau og kepptu í fþrótt-
um?
Sveinn K. Sveinsson, Inga V. Ein-
arsdóttir. Já.
Áttu systkini? Hafa þau stund-
að íþróttir?
Já, sex systkini. Þau hafa öll
stundað íþróttir. __
Ertu kvæntur? Áttu börn?
Konan mín heitir Sigríður Héð-
insdóttir og er 28 ára. Við eigum tvö
börn, Auði fimm ára og Styrmi eins árs.
Hverjir eru eftirlætis íþrótta-
menn þínir, tónlistarmenn,
sviðsleikarar, kvikmyndaleik-
arar, rithöfundar/skáld...?
Einar Þorvarðarson
og Gísli Felix Bjarnason.
Queen.
Spaugstofumenn.
Robert de Niro, Jody Foster.
Louis Masterson.
Á hvaða dýrum hefur þú mest
dálæti?
Hundum.
í hvaða skólum varstu?
Vogaskóla og Fjölbrautaskólan-
um í Breiðholti.
Við hvað vinnur þú?
Við verslunarstörf í Kringlusporti.
Hvað gremst þér mest í fari
fólks?
Undirferli, leti, vol.
Hvað finnst þér mestu kostir
manna?
Góð kímnigáfa og bjartsýni.
Hvert er eftirlætis-spakmæli
þitt?
Örvhentir eldast ei.
Hvað ráðleggur þú ungu
fþróttafólki?
Að hafa trú á sjálfu sér og brosa.
.. „Hjá hvaða
markmanni linnst
mér erliðast að
skora? Jafnauð-
velt hjá öllum!“
Ljósmynd:
Brynjar Gauti.
V . 4] v v Jf
Æ S K A N 4 1