Æskan

Árgangur

Æskan - 01.12.1992, Síða 31

Æskan - 01.12.1992, Síða 31
TILHLÖKKUN eftir Sigríði Víbis Jónsdóttur 12 dra Loksins, loksins sló klukkan sex slög. Þessum sex slögum haföi Stína beðið eftir með óþreyju sein- asta mónuðinn. Nú voru jólin gang- in í garð, tíminn sem hún hafði beð- ið dögum saman eftir. Samt var ekki eins gaman og hún hafði haldið. Það var svo tómlegt þegar mamma og pabbi voru ekki. Hún ein hjú ömmu og afa. „Hvernig skyldi mömmu líða?" hugsaði Stína. Pabbi hafði sagt að hún myndi eignast barnið í kvöld eða um mið- nættið, systkini sem ætti afmæli á jólunum. Það yrði skrýtið. Afmæli ú aðfangadagskvöld? Neeei líklega d jóladag eða annan. Messan í útvarpinu var byrjuð, ilmurinn af jólasteikinni fyllti hús- ið. Það var uppljómað af jólaljós- um og skrauti. Kræsingarnar komu nú hver d eftir annarri siglandi inn d borðið. Oft hafði Stína hugsað um það hvað hún ætti gott og ætti mik- ið. Og nú dtti hún að fó að eignast lítið systkini. Þann draum hafði hana oft dreymt. „Hvernig ætli þetta gangi? Bara að allt fari vel," hugsaði Stína. Hún hafði d hverju kvöldi beðið til Guðs um að allt færi vel og gengi vel. Hún bað núna einu sinni enn. Bæn ú aðfangadagskvöld. Það hlýt- ur að vera sterkt. Hvort skyldi þetta verða strdkur eða stelpa? Þessari spurningu hafði Stína oft velt fyrir sér. Bróðir eða syst- ir? Skiptir engu móli. Bara heilbrigt systkini. Dring ... Síminn hringdi. Stína stökk upp úr stólnum. Þetta var pabbi. „Nú er mamma þín að fæða, elsku Stína. Allt hefur enn þd geng- ið vel," bunaði pabbi út úr sér. „Skil- aðu kveðju til mömmu. Við hugs- um til ykkar. Gleðileg jól!" Stína settist aftur við borðið. „Fæðingin er að hefjast," sagði hún. Hún bað í hljóði einu sinni enn. Nú reyndi d. Allt verður að ganga vel. Stína var með hugann ú sjúkra- húsinu. Hún kroppaði bara í jóla- gæsina. Klukkan varð sjö og útta. Þó var byrjað að taka upp bögglana. Stína var himinsæl yfir öllum gjöfunum en það besta var þó eft- ir, lítið systkini. Nú fengi hún loksins einhvern til að tala við, já og rífast við. Þegar mamma kæmi heim myndi hún hjálpa pabba og mömmu við að skipta á Litla og baða það og gæta þess. Ooo... hvað hún hlakkaði til. Ef þetta verður strákur á hann að heita Baldur eins og afi en stelpu- nafnið er ekki ákveðið. Stína var að láta sér detta í huga María eins og langamma. Tíminn leið. Níu, tíu, ellefu. Stína var í búrinu að ná í jólaöl og smákökur. Aftur hringdi síminn. Amma stökk á hann og þreif tólið upp. „Halló, þetta er Stefán," var sagt daufum rómi. „Er Pálína búin að eiga?" Amma æpti beinlínis upp í tólið. Stína kom hlaupandi upp. „Strákur eða stelpa?" Löng þögn. „Er eitthvað að?" spurði Stína. „Hver er þetta?" „Farðu aðeins inn í stofu, elskan mín. Ég kem rétt strax." Rödd ömmu var klökk. „Hvað ætli sé að?" hugsaði Stína. „Ætli þetta sé ekki pabbi? Af hverju er amma svona dauf? Af hverju sagði hún mér að fara? Af hverju ..." Dyrnar á stofunni opnuðust hægt og rólega. Amma kom inn. Hún var grafalvarleg. „Stína mín, komdu og sestu í fangið á mér," sagði hún ofurlágt. „Fæðingin gekk ekki sem best." Hún þagnaði. Stína stirðnaði. „Barnið, sem mamma þín fæddi, var ..." Röddin brast. Eftir langan tíma bætti hún við: „Andvana." (Sagan hlaut viðurkenningu í smásagnakeppninni 1991). Æ S K A N 3 1

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.