Æskan

Árgangur

Æskan - 01.12.1992, Síða 50

Æskan - 01.12.1992, Síða 50
GÍTAR í .. AFMÆLISGJOF egar Bryan Adams varð tíu ára fékk hann gítar frá föður sínum. Síðan hefur hann sungið, spilað og samið lög. Faðir hans nagaði sig í handarbökin - hann hafði vonast til að strákurinn yrði fastur starfsmaður kanadíska hers- ins eins og hann sjálfur. Bryan (= Brjánn) er af breskum ættum, fæddur í Ontaríó í Kanada f960. Móðir hans er kennari. Fyrsta hljómplata hans kom út 1980 og var nefnd fullu nafni hans. Flann hefur mikinn áhuga á knatt- spyrnu og ísknattleik - og gaman af að aka sleða og stökkva í fall- hlíf. Brjánn hefur haldið hljómleika víða um heim (m.a. í Reykjavík ...) við miklar vinsældir. Hann hefur einnig leikið inn á plötur með mörg- um þekktum söngvurum og hljóm- sveitum, t.a.m. Belindu Carlisle og Mötley Crue. Ekki alls fyrir löngu fylgdi hann Tínu Turner á söng- ferðalagi hennar. Eitt vinsælasta lag Brjáns er (Allt sem ég geri - er) Gert fyrir þig ((„Everything I do) I do it for you). Það ertitillag kvikmyndarinnar um Hróa hött (sem Kevin Costner lék f). Lagið er á sjöttu plötu hans, Að vekja nágrannana. Póstfang aðdáendaklúbbs: Bryan Adams c/o A & M Records, 939 Warden Avenue Scarborough, Ontario M1 L4 C5 - Kanada. Á „STJÖRNUHIMNI“ Kæra Æska! í 6. tbl. var sagt að útlit Chers og Mikjáls Jacksons væri bindindi á áfengi og tóbak að þakka. Það getur vel verið en lýtalækningar eiga örugglega mestan þátt í góðu útliti þeirra. í 7. tbl. Bravó 1992 eru myndir af nokkrum stjörnum og eru Cher og Mikjáll á meðal þeirra. Þar sést vel hvernig sílikon og lýtalækning- ar hafa gerbreytt útliti þeirra. Cher hefur t.d. látið laga á sér kinnar, nef, höku, brjóst, rifbein, mjaðmir og læri. Lýsing á því hvernig Mikjáll hefur breyst úr sætum, svörtum strák í eitthvert „plastfyrir- brigði" fyllti blaðsíðu! En nú langar mig til að segja frá Kristjáni Slater. Kristján heitir réttu nafni Christ- ian Michael Leonard Slater. Hann er fæddur 18. ágúst 1969 í Nýju Jórvík. Hann er 180 sm á hæð, dökkhærðurog (heslihnetu) brún- eygður! Foreldrar hans eru Michael D. Chainsborough og Mary Jo Sla- ter. Bróðir hans, Ryan Geoffrey, er átta ára. Áhugamál hans eru kvikmynd- ir, dans og sund. Hann hlustar á tónlist með Tom Waits, Billy Joel og Bruce Springsteen. Kristján hefur leikið í allmörg- um kvikmyndum. Meðal þeirra eru: Þjóðsagan um Billie Jean (1983) - Nafn rósarinnar (1986) - Tucker, maður og draumur hans (1989) - Dýrðarljómi (The blaze of glory) og „Pump up the volume” (1990) - Hrói höttur, prins þjófanna (1991) - Galdramaðurinn (The wiz- ard) (1992). Heimilisfang aðdáendaklúbbs: Christian Slater, c/o Mrs. Mary Jo Slater, MGM/UA 10 000 West Washington Blvd., Suite 3207 b Culver City CA 90232, Bandaríkjum Norður-Ameríku. LJÓNGÁFAÐUR - EN ÁTTI í ERFIÐLEIKUM MEÐ LESTUR Veist þú hvað Napeieón keis- ari, listmálarinn Picasso, söngkonan Cher, söngvarinn Bubbi Morthens, Karl Gústaf kon- ungur í Svfþjóð og Haraldur Nor- egskonungur áttu sameiginlegt? Svar: Þau áttu erfitt með að læra að lesa og skrifa - voru hald- in lesblindu. Allmargt fólk á við þetta að stríða. Áður fyrr var talið að það væri heimskt. Það er að sjálfsögðu alrangt. En þessir erfiðleikar geta leitt til að fólk verði öryggislaust og smeykt um að standa sig ekki - og þá mistekst því stundum. Nú vita kennarar allt um les- blindu og geta stutt nemendurna við að bæta sig. Flestir vita líka að þeir sem þetta háir eru ekki síður vel gefnir en aðrir. Dæmi eru um Ijóngáfað fólk sem hefur átt erfitt með að læra að lesa og skrifa. Albert Ein- stein er talinn einn gáfaðasti mað- ursem uþþi hefurverið. Hann uþþ- götvaði margt á eðlisfræði-sviði - atriði sem eru svo flókin að fæstir skilja nokkuð í þeim. En honum gekk verr en öðrum börnum í lestri. Þess vegna geta krakkar orð- ið afreksfólk í visindum þó að þeir lesi ekki eins hratt og rétt og hinir. Ef þá langar til að verða rithöfund- ar þarf lesblinda ekki að hindra það. Ævintýraskáldið H.C. Ander- sen raðaði stöfunum ekki alltaf rétt. Samt samdi hann ævintýri sem hafa lifað í meira en hundrað ár. Einstein er talinn einn snjallasti maður sem uppi hefur verið. En hann átti erfitt með að læra að lesa og skrifa. 5 4 Æ S K A N

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.