Æskan - 01.12.1994, Blaðsíða 18
JOLASVEINARNIR
Jólasveinninn, eins og við þekkj-
um hann nú, er tiltölulega ungur. í
gömlum sögum segir frá biskupssyni
frá borginni Lyciu i Litlu-Asíu. Hann
gerði mörg kraftaverk og varð vernd-
ardýrlingur barna. Orðstír hans barst
um alla Evrópu og í mörg hundruð ár
var börnum sögð sagan af honum.
Hún barst til Bandaríkjanna með
fyrstu hollensku innflytjendunum og
eftir það tók heilagur Nikulás miklum
stakkaskiptum. Hann varð Sankti
Kláus (Saint-Claus), vörpulegur karl í
rauðum búningi með hvítum legg-
ingum...
En við eigum okkar eigin íslensku
jólasveina. Þessi frásögn um þá er úr
Vorinu, jólablaði 1972:
Jólasveina finnst fyrst getið á bók
hér á landi í Grýlukvæði Stefáns Ólafs-
sonar í Vallanesi frá 17. öld. Telur
hann Grýlu og Leppalúða foreldra
þeirra:
Börnin eiga þau bæði saman
brjósthörð og þrá,
af þeim eru jólsveinar,
börn þekkja þá.
Næst getur Jón Grunnvíkingur
þeirra í orðabók sinni frá því um 1740.
Þá er þeirra getið í Húsaga-tilskipun-
inni, útgefinni á Hólum 1746, og fer úr
því að fjölga vitnisburðum um tilveru
þeirra þótt ekki sé getið um ætterni.
Jón Árnason segir það sumra manna
mál að Grýla hafi átt þá áður en hún
giftist Leppalúða og hefur Jónas Jón-
asson heyrt að faðir þeirra héti Loðin-
barði. En hann hefur einnig heyrt
marga halda því fram að jólasveinarnir
ættu ekkert skylt við Grýlu eða hennar
hyski.
Þegar fyrst er getið um jólasveina
er ekkert tekið til um fjölda þeirra. Það
er ekki fyrr en 200 árum síðar, hjá Jóni
Árnasyni, sem reynt er að ákveða tölu
þeirra og kannast hann þá við tvær
skoðanir, að þeir séu þrettán eða níu.
Fyrri skoðunin er almennari, a.m.k. nú
á dögum, enda kemur hún heim við
fjölda jóladaganna. Nöfn hefur Jón
fengið á þeim þrettán hjá séra Þáli
Jónssyni á Myrká sem trúlega hefur
lært þau í æsku sinni vestur í Dölum.
Hin skoðunin virðist hafa verið almenn
í Skagafirði og víðar norðanlands og
hún hefur sér til styrktar að geta
stuðst við þuluna
Jólasveinar einn og átta
ofan koma af fjöllunum...
og hina er hljóðar svo:
Upp á stól
stendur min kanna,
niu nóttum fyrir jól
þá kem ég til manna.
NÖFN JÓLASVEINANNA
Elstu nöfn jólasveinanna, sem þekkt
eru, eru þessi: Stekkjastaur, Giljagaur,
Stúfur, Þvörusleikir, Þottasleikir,
Askasleikir, Faldafeykir, Skyrgámur,
Bjúgnakrækir, Gluggagægir, Gáttaþef-
ur, Ketkrókur, Kertasníkir. En fleiri nöfn
eru til á þeim hvort sem það merkir að
18 Æ S K A N