Æskan

Árgangur

Æskan - 01.12.1994, Blaðsíða 19

Æskan - 01.12.1994, Blaðsíða 19
þeir gangi undir mismunandi nöfnum eftir sveitum eöa séu fleiri en þrettán. Þessi nöfn eru Kertasleikir, Pönnu- sleikir, Pottaskefill, Hurðaskellir, Moð- bingur, Hlöðustrangi, Móamangi, Flór- sleikir, Þvengjaleysir, Pönnuskuggi, Guttormur, Bandaleysir, Lampa- skuggi, Klettaskora. Hér eru þá komin 27 nöfn á jóla- sveinum en a.m.k. fjögur þeirra, Kerta- sleikir, Pottaskefi11, Bandaleysir og Pönnuskuggi eru naumast annað en afbrigði annarra. Er þá komið skemmtilega nærri þeim fjölda sem fæst ef hinar umdeildu tölur, 9 og 13, eru lagðar saman. Verið gæti að um væri að ræða tvo hópa af jólasveinum. [ öðrum hópnum væru þá níu og lík- legast að þeir ættu heima á Norður- og Austurlandi en stærri hópurinn á Vestur- og Suðurlandi. Talsverður munur er á nöfnum mathákanna ann- ars vegar og nöfnum eins og Moð- bingur, Hlöðustrangi, Móamangi og Klettaskora hins vegar. Ef reyna ætti að skipta þeim í tvo hópa yrði að hafa hliðsjón af þessu. (í ritinu Sögu daganna eftir Árna Björnsson þjóðháttafræðing er ýtarleg frásögn um jólasveina. Hann segir að fram hafi komið meira en 70 nöfn á þeim! (Bls. 340-353)). „JÖTNAR Á HÆD Um útlit jólasveinanna fer fleirum en tvennum sögum. Elsta heimildin, Grýlukvæði Stefáns Ólafssonar, segir að þeir séu „jötnar á hæð“. Jónas Jónasson segir þá sögu frá Austur- landi að „þeir séu að vísu í manns- mynd nema þeir séu klofnir upp í háls“. Fæturnir séu kringlóttir. Aðrir hafa sagt að þeir væru klofstuttir en búklangir og enn aðrir að þeir væru tómur búkur niður úr. Öllum ber um þetta leyti saman um að þeir séu stórir, Ijótir og luralegir, hversu svo sem þeir séu vaxnir. Þeir eru í röndóttum fötum með stóra, gráa húfu á höfði og hafa með sér gráan poka. Önnur sögn segir þá hafa með sér stóra kistu til að láta í óþæg börn og guðlausa menn og er „illt að kom- ast í kistu jólasveina". Um og eftir síðustu aldamót munu menn almennt hafa ímyndað sér þá í mannsmynd þótt ekki væru þeir smá- fríðir í andliti og klædda í gömul ís- lensk bændaföt - líkt og þeir eru sýnd- ir í bók Jóhannesar úr Kötlum, Jólin koma. En þá er líka farið að telja þá klædda í rauða skyrtu, grænar buxur, bláa sokka og gula skó með rauð- röndótta skotthúfu - eða í rauðar bux- ur, hvíta kápu, bláa treyju og skotthúfu og með skegg niður á tær. Eru þeir þá teknir að líkjast frænda sínum, hinum evrópska heilaga Nikulási, en í hans gervi birtast þeir jafnan á jólatrés- skemmtunum. FARA AD MILDAST Þegar líða tók á 19. öldina hafa þeir eitthvað verið farnir að mildast en lengi voru þeir þó vísir til að taka börn sem hrinu mikið og voru óþæg, löt og keipótt, eða a.m.k. að hrekkja þau. Veit ég meira að segja um mann sem fæddur er 1935 á Vestfjörðum að hon- um þóttu jólsveinarnir í bernsku sinni viðsjárverðir. En annars höfðu þeir á síðari tímum það aðallega fyrir stafni sem felst í nöfnum þeirra, Ketkrókur hnuplaði kjötbitum, Pottasleikir laum- aðist í skófirnar í pottinum o.s.frv. Svo getur þeim öllum hætt við því að fara í jólamatinn, einkum barnanna, og éta hann eða skemma. Annars lifa þeir mikið á Ijótum munnsöfnuði. Með tilkomu mikilla jólagjafa á síð- ustu áratugum hafa jólasveinarnir í vaxandi mæli tekið að sér það hlutverk að færa börnum og fullorðnum jóla- gjafir. Munu þeir einkum hafa lært þá iðju af frænda sínum, Sankti Kláusi hinum ensk-ameríska. Almennt er talið að jólasveinarnir eigi heima uppi í fjöllum. Kemur hinn fyrsti til byggða 13 dögum fyrir jól (eða níu dögum ef þeir eru aðeins níu) og síðan einn á dag, hinn síðasti á að- fangadag. Hinn fyrsti fer svo burtu á jóladag en hinn síðasti á þrettándan- um. Jólasveinn i Æskunni 1919 - farinn að iikjast þeim ensk/ameriska. Æ S K A N 19
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.