Æskan

Árgangur

Æskan - 01.12.1994, Síða 34

Æskan - 01.12.1994, Síða 34
ÆSKU PÓSTUR HESTABUGARÐAR í ÞÝSKALANDI Sæl, kæra Æska! Ég vil síður skrökva og því ætla ég ekki að segjast aldrei hafa fengið svör við bréfum mínum. Ég skrifa þér því miður allt of sjaldan. En ég ætla að vera stuttorð: Ég hef mikið dálæti á hestum. Ég á hest, hryssu sem ég fékk fjögurra vetra og tamdi sjálf. Nú er hún sjö vetra og hið besta reiðhross. Ég er fædd með þennan „erfðagalla" og hef dálitla þekkingu á hestum. Ég næ (þó að ég segi sjálf frá) yfirleitt frekar vel til dýra og á ég þá aðallega við hesta. Mig langar mjög mikið til að komast að á hesta- búgarði í Þýskalandi og læra þýsku um leið (- ég gleymdi að nefna að ég er í 10. bekk). Vandamálið er að ég veit bara alls ekki hvert ég á að snúa mér. Veist þú það? Vonandi! Með fyrirfram þökk, Hestadellan. E.s.: Ég sendi að gamni mínu litla vísu eftir mig: Oftast hér á Fróni finnst frost og snjór og hríðar. Ógna Þorra ekki minnst éljabuxur víðar. Svar: Þakka þér fyrir ágæta vísu! Líklegast til árangurs er að auglýsa í tímaritinu Eiðfaxa en alþjóðleg sérprentun þess berst hestamönnum víða um heim, m.a. í Þýskalandi. BÆKUROC SJÓNVARPS- ÞÆTTIR Kæra Æska! Ég er með tvær spurningar: 1. Eftirlætisrithöfundur minn er Liz Berry. Hún samdi bækurnar, Er þetta ást, Frjáls eða fjötruð og Ég get séð um mig sjálf. Mig langar til að vita hvort hún hefur samið fleiri bækur. Ef svo er, hvar get ég nálgast þær? 2. Geturðu athugað hvort sýna á nýjar þátta- raðir í sjónvarpinu í vetur. Byrja aftur þættir svo sem Gangur lífsins, Roseanne, Sækjast sér um líkir, Strandverðir, Simpsons- fjölskyldan og Leiðin til Avonlea? í fyrra var [ Ríkissjón- varpinu þáttur sem hét Hljómsveitin og var frá „Spelling TV“. Hann var mjög góður. Það mætti sýna fleiri þætti frá því fyrirtæki. Mér finnst sjón- varpið varla hafa neitt á boðstólum fyrir unglinga. Ef maður vill dekra við sjálfan sig og er kominn með popp og kók fyrir framan sjónvarpið þá endar það með því að maður er að horfa á fræðslumynd um skordýr í Afríku eða eitt- hvað álíka. Þökk fyrir gott blað. Krakkar! Skrifið líka í Æskuna ef þið eruð sammála mér! Stöndum föst á skoðunum okkar! Sameinumst! Ykkar einlæg, Hildú. E.s.: Það er best að spyrja að þessu venjulega: Hvað lestu úr skriftinni? Skrifa ég ekki illa? Svar: 1. Iðunn gaf út þessar bækur. Starfsstúlka þar sagði mér að aðrar sögur eftir þennan höfund hefðu ekki komið út hér á landi. 2. Gangur lífsins, Roseanne, Strandverðir og Simpsons-fjölskyldan verða aftur á dagskrá - og e.t.v. Sækjast sér um líkir. Þátturinn Fjör í Fjöl- braut byrjaði litlu síðar en bréf þitt barst. Reynslusögum unglinga, sex myndum (hálftími hver), hefur sennilega verið brugðið á skjáinn þegar þetta birtist. Athugasemdir við efni annarra fjölmiðla skuluð þið senda þeim sjálfum. Þannig komast þær fljótt til skila. Við skulum hins vegar leita svara fyrir ykkur. Úr bréfinu og skriftinni les ég að þú sért ákveðin og skelegg! Skriftin er skýr, jöfn og læsileg. Mér virðist hún góð en ég veit ekki hve gömul þú ert og get því ekki ályktað frekar. BARNASTÚKUR Kæra Æska! Hvað þarf maður að vera gamall til þess að komast í Unglingaregluna og hvernig kemst maður í hana? Ég er tíu ára. Get ég fengið upplýsingar í næsta Æskublaði? Erla Rún Grétarsdóttir. Svar: Við sendum þér upplýsingar um leið og bréf þitt barst, Erla, einnig dagskrá barna- stúkunnar Æskunnar sem heldur fundi í Templarahöll Reykjavíkur að Eiríksgötu 5. Krakkar á aldrinum sjö til fjórtán ára taka þátt í starfi hennar. (Unglingareglan er samband barnastúkna á íslandi). HESTAMENN Sæll, Æskupóstur! Mig langar til að spyrja þig spurninga sem hljóða svona: 1. Er hægt að birta veggmynd af Svölu Björgvins? 2. Er hægt að láta límmiða fylgja Æskunni? Til áhugamanna um hesta: í Danmörku er gefið út blaðið Penny. í því eru alls kyns sögur um hesta og ýmsir þættir, t.a.m. Sagan mín og Pósturinn. Blaðið birtir líka myndir og teikningar af hestum, 3 4 Æ S K A N

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.