Æskan - 01.12.1994, Page 43
Hamraberg tröllapabbi
og Trítiltoppur sonur
hans - Stefán Sturla
Sigurjónsson og Alda
Arnardóttir.
Möguleikhúsið frumsýnir
Ástarsögu úr fjöllunum í
febrúar.
eigið húsnæði við Hlemm. Trítil-
toppur verður einungis sýndur
þar - en önnur leikverk bæði þar
og „út um borg og bý“. Eftir ára-
mót verða frumsýnd leikritin Ást-
arsaga úr fjöllunum (byggt á
samnefndri bók Guðrúnar
Helgadóttur; leikgerð: Stefán
Sturla Sigurjónsson) og Hárflóka
saga Viðgerðarsonar eftir Pétur
Eggerz.
Hárflóki land-
námsmaður
Möguleikhúsið sýnir í þess-
um mánuði nýtt íslenskt barna-
leikrit, Trítiltopp. Höfundur og
leikstjóri er Pétur Eggerz.
í leikritinu segir frá trölla-
stráknum Trítiltoppi sem á
heima í tröllahelli langt uppi í
fjöllum ásamt foreldrum sínum,
Hamrabergi og Tindabjörgu.
Þegar hann fréttir að jólin séu
að koma til mannheima verður
hann forvitinn og langar til að
sjá hvernig þau líta út! Hann
leggur því í leiðangur til að
finna þau og koma þeim heim í
hellinn.
Leitin reynist honum þó erf-
iðari en hann hafði gert ráð fyr-
ir. Hann lendir í ýmsum ævin-
týrum, hittir góðhjartaða álfa-
kónginn Arfítus, þarf að berjast
við illskeytta dverginn Garra og
þiggur gistingu í helli Grýlu og
Leppalúða. Að lokum tekst
honum þó að finna jólin með
aðstoð Gáttaþefs jólasveins.
Möguleikhúsið, barna- og
unglingaleikhús, hefur undan-
farin fjögur ár ferðast um með
sýningar sínar. Nú er það flutt í