Æskan

Árgangur

Æskan - 01.12.1994, Síða 58

Æskan - 01.12.1994, Síða 58
Hvílíkt veður! Stormurinn æddi meb slíkum ósköpum að allt lék á reiöiskjálfi. Þab brakaði og brast í veggjunum, ískraði í rúðunum og skrækti í skorsteininum. Perla litla bjóst vib því á hverri stundu ab ó- veðrið þeytti henni og litla húsinu alla leið út í hafsauga. Allt í einu lygndi svo ab Perla von- abi að nú væri óveðrið loksins liðið hjá. En lognib var aöeins stutta stund. Þá skall óveðriö yfir á ný með enn meiri ofsa en fyrr. Já, þvílík ó- sköp! Það var engu líkara en nú myndi húsið þeirra þeytast af grunn- inum. Og líklega fyki þá vitinn líka. Perla litla mundi ekki eftir öðru eins óveðri og þessu á þeim tíu árum sem hún hafði lifað enda þótt hún hefði raunar komist í kynni við sitt af hverju á þessum eyöistaö, hér vib ysta haf. Mestan hluta ævi sinnar hafbi hún átt heima hér hjá vitaverð- inum góða - eða allt frá þeim degi er hann fann hana úti á þrepunum eins og hvern annan óskilaböggul, einmana og yfirgefið barn sem eng- inn virtist vilja eiga. Hann hafði tekið hana ab sér af kunnri góövild sinni og hjartahlýju og alið hana upp sem sitt eigið barn á heimili sínu hér vib vitann. Frá því að hún mundi eftir sér hafbi hann veriö henni bæbi fabir og móbir og einnig félagi og kennari. Hún hafði aldrei saknað neins því ab hún hafði aldrei kynnst móbur sinni eða föður sínum. Níels frændi, eins og hún kallabi vitavörbinn, hafði uppfyllt allar óskir hennar. Níels frændi kallabi hana Perlu. Hann sagði ab þab nafn hæfbi henni vel af því að hún væri alltaf svo glöð og góð, alltaf svo áreiðanleg, starfs- fús og elskuleg. Hún væri hreinasta perla. Perla litla var að sjálfsögbu ákaf- lega hreykin af þessu nafni. En henni var jafnframt Ijóst að það batt henni vissar skyldur á herbar. Hún varð ab gæta framkomu sinnar mjög vel svo að aldrei félli á það nokkur skuggi. Þegar Perla litla stækkaði varð hún afar dugleg ab hjálpa Níelsi frænda vib allt sem gera þurfti og þá ekki síst við gæslu vitans. Hún hafði yndi af ab starfa og allt virtist leika í hönd- um hennar. Skemmtilegast af öllu fannst henni þó ab hugsa um vita- Ijósiö. Þab varb alltaf að loga og lýsa bæði dag og nótt, sumar og vetur. Og hvernig sem veörið var varb vita- Ijósið að bera birtu út í sortann eins langt og það gat til ab vísa réttan veg þeim sjómönnum sem ef til vill höfðu villst í vetrarmyrkri og hríbar- byljum. í þetta sinn var Perla alein heima og átti ab gæta vitans. Níels hafbi farib á vélbátnum til bæjarins til þess að kaupa til jólanna og nú átti hún von á honum á hverri stundu. Þá ætluöu þau ab skreyta jólatréð, borða góðan jólamat og sælgæti og syngja jólasálmana eins og þau voru alltaf vön ab gera á aðfangadags- kvöld. Perla litla hafbi hlakkað til jól- anna í margar vikur. Hún var bæbi glöð og hreykin yfir því ab Níels hafði nú í fyrsta sinn trúab henni fyrir því ab gæta vitans. Ó, bara að það hefbi ekki veriö svona vont veður, þessi ægilegi stormur og rigning. Perlu fannst að þannig ætti það einmitt alls ekki ab vera á aöfanga- dagskvöld. Hægviðri, tunglskin, frost og snjóföl á jörðu svo ab brakaði í spori - þannig var veðriö sem við átti þetta yndislega kvöld. Og þannig var alltaf sagt frá því í bók- um. Perla litla var ekki vön því að vera hrædd þegar hún var ein. En nú gat hún ekki varist því ab vera kvíöa- full og nagandi ótti sótti að henni. Ó, bara að Níels frændi færi nú að koma heim. Þey, þey... hvað var nú þetta? Voru það bara skellir í storminum - eða voru það kannski drunur í vél- bátnum? Perla hljóp að glugganum, þrýsti nefinu að rúðunni og reyndi að horfa í áttina til bryggjunnar. En hún sá næstum ekkert út fyrir glerib, það var eins og ab horfa inn í dimman helli. Hún reyndi að einbeita allri at- hygli sinni og hlusta á milli vindhvið- anna og þá fannst henni að hún heyrði greinilega mótorskelli. í miklum flýti klæddi hún sig í stígvél og regnkápu og hljóp síðan niöur þrepin til þess að taka á móti Níelsi frænda og hjálpa honum ab festa bátinn. Úti var niðamyrkur. Hún sá varla fingurslengd frá sér þegar hún var að þreifa sig áfram niöur stíginn. Það var eingöngu að þakka Ijósbjarman- um frá vitanum ab hún komst ab lokum niður að litlu trébryggjunni í flæöarmálinu. Mótorskellirnir voru þagnabir. Hún heyröi nú abeins þytinn í storm- inum og drunurnar í öldunum sem skullu ofsalega upp að bryggjustólp- unum. Hún reyndi ab kalla á Níels. 5 8 Æ S K A N

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.