Æskan - 01.12.1994, Blaðsíða 61
Vaglaskóg. Örn bróðir minn, Aldís
kona hans og Harpa fóru á föstudag
til Akureyrar og hittu mig og pabba í
Vaglaskógi á laugardag. Við pabbi
fórum Sprengisandsleið norður og
var það mjög gaman. Á þeirri leið sá
ég einn fallegasta foss sem ég hef
séð. Hann heitir Aldeyjarfoss.
Við komum frekar seint í Vagla-
skóg og þá var farið að tjalda og svo
grilluðum við. Það var rosalega kalt
þetta kvöld en daginn eftir hafði hlýn-
að dálítið. Á sunnudag var mjög stutt
í rigningu en við ákváðum samt aó
skreppa í Flateyjardal. Þetta var frek-
ar langur akstur og þegar við komum
loksins að sjónum fengum við okkur
að borða og gengum niður í fjöru
með kíki til að sjá út í Flatey. Á leið-
inni til baka sáum við lítinn, fallegan
dal og í honum var lítill foss. Það var
mjög fallegur staður.
Þegar við komum heim í tjald var
komin grenjandi rigning en þrátt fyrir
það var byrjað að grilla hamborgar-
ana og stuttu seinna stytti upp. Eftir
matinn höfðum við það bara gott inni
í tjaldi, töluðum saman og nörtuðum í
sælgæti.
Á mánudag ætluðum við að skoóa
trjásafnið en hættum við það og litum
í staðinn á gömlu brúna sem er verið
að gera upp. Þá var ferðinni heitið til
Akureyrar þar sem Örn, Aldís og Júlía
(dóttir þeirra) dvöldust í viku en ég,
faðir minn og Harpa litlu lengur. Við
gistum hjá afa og ömmu. Móðir mín
var þar á meðan við vorum í útileg-
unni.
Á Akureyri var frábært veður allan
tímann og þegar heitast
var fórum við í Kjarna-
skóg og Lystigarðinn.
Þegar við mamma og
Harpa settumst inn á
Bautann gat maður alveg
ímyndað sér útlönd.
Þessi ferð var mjög
skemmtileg þó að veðrið
um Verslunarmannahelg-
ina hefði ekki verið með
besta móti.
Við lögðum af stað austur um tvö-
leytið og þegar við komum var fólk að
tínast á staðinn. Gestgjafarnir, Hulda
og Víðir, höfðu tekið tvö hús á leigu í
Brekkuskógi. Alls voru þar 21.
Þegar allir voru komnir á staðinn
fórum við í gönguferð að Brúarár-
fossi. Hún var mjög skemmtileg þó
að sumir hafi þurft hjálp við að kom-
ast yfir ána.
Þegar heim kom var farið að undir-
búa kvöldmatinn. Grilluð voru tvö
gómsæt læri og pylsur handa yngsta
fólkinu. Inni í eldhúsi voru sex manns
að störfum við að hreinsa humarinn,
búa til alls kyns sósur og salöt og
baka kartöflur. Maturinn var gómsæt-
ur: Humar í forrétt, læri í aðalrétt og
kökur í eftirrétt. Eftir matinn var heil-
mikið sungið og spjallað langt fram
eftir nóttu.
Morguninn eftir var yndislegt veður
og morgunmaturinn engu síðri en
kvöldmaturinn!
Eftir matinn fór fólk að tínast heim
en sumir sátu eftir og var þá verið úti
allan daginn. í kvöldmatinn borðuðum
við hangikjöt með meðlæti. Eftir
kvöldverðinn var tímabært að aka
heim.
Þessir tveir dagar voru yndislegir
og sennilega ógleymanlegir.
(Sandra hlaut verðlaun fyrir þessa frá-
sögn í samnefndri keppni).
GÓMSÆTUR
MATUR
Dagana 28.-29. ágúst
var fjölskyldu minni boðið
ásamt öðrum góðvinum í
sumarhús í Brekkuskógi.
Uppi á Strúti
í veiðiferðinni
í Flateyjardal
Æ S K A N <5 7