Æskan - 01.12.1994, Qupperneq 64
Margir hæfileikaríkir krakkar komu
fram á skemmtunum Fjörkálfanna í
sumar. Þeir sem báru sigur úr býtum
á hverjum staö tóku þátt í lokahátíð í
Reykjavík - og sungu síðan í hljóðveri
lög sem eru nú komin á geisladisk.
Hann er nánar kynntur í þessu tölu-
blaði.
í 7. og 8. tbl. Æskunnar birtust við-
töl við átta efnilega söngvara. Nú
hringdi ég til fjögurra stúlkna...
HEFUR LÍKA SUNGIÐ í
GALTALÆKJARSKÓGI
Erla Vinsý Daðadóttir er sjö ára og
á heima í Kópavogi.
Ég heyrði að leikið var á píanó
meðan systir hennar kallaði á hana í
símann...
- Varst þú að spila?
„Nei, það var mamma. En ég byrj-
aði að læra á píanó í haust.“
- Það var gaman að heyra þig
syngja á lokahátíðinni. Varstu ekkert
feimin?
„Neei, nei.“
- Var þetta ekki í fyrsta sinn sem
þú tekur þátt í söngvarakeppni?
„Nei. Ég hef sungið tvisvar í Galta-
læk. Systir mín líka.“
- Hvað heitir hún?
„Freyja og er átta ára. Hún var önn-
ur í keppninni í Galtalæk í sumar."
- Áttu fleiri systkini?
„Já, bróður sem heitir Óskar og er
eldri en ég.“
- Hvað finnst þér skemmtilegast að
læra?
„Reikning."
- Hvað gerir þú þegar þú ert ekki í
skólanum?
„Ég leik mér oft í tölvunni. Mér
finnst Steinaldarmennirnir skemmti-
legasti leikurinn."
-Áttu gæludýr?
„Nei. En afi og amma í sveitinni
eiga hesta. Ég hef oft farið á hest-
bak.“
- Manstu hvað hestarnir heita?
„Já, til dæmis Freyja, Óskar og
Fagri Blakkur."
- Hefur þú farið til útlanda?
„Já, til Rortúgals."
- Hvað fannst þér skemmtilegast
þar?
„Að synda í lauginni. En það var
kalt að busla í sjónum."
Ég spurði móður Erlu, Ingibjörgu
Erlingsdóttur, nánar um þátttökuna í
söngvarakeppninni...
„Ég frétti af keppninni hjá Hemma
6 4 Æ S K A N
Gunn, kunningja mínum. Hann vissi
að stelpurnar höfðu verið að syngja í
Galtalæk. Þær vilja ekki missa af
neinni slíkri keppni. í sumar var ég að
syngja á báti sem fór í miðnætursigl-
ingar frá Siglufirði um verslunar-
mannahelgina. En þær voru svo
heppnar að frændi þeirra fór með þær
á Bindindismótið."
- Hefur þú lært tónlist?
„Ég er að Ijúka tónmenntakennara-
námi og læri söng og kórstjórn í því.
Ég er í tveimur kórum í skólanum og
syng með Kirkjukór Óháða safnaðar-
ins.“
- Kannski sungið með hljómsveit-
um?
„Já, Þú ert - og sálarbandinu
„Testimony". Þær störfuðu um eitt ár
hvor.“
- Vinsý, seinna nafn Erlu, er það af
erlendum toga?
„Nei. Mamma heitir Sigurvina en er
alltaf kölluð Vinsý. Þess vegna lét ég
skíra hana því nafni.“
„EÐA SNÚA MÉR ALVEG AÐ
SÖNGNUM...“
Erna Hrönn Ólafsdóttir er þrettán ára.
Hún á heima í Eyjafjarðarsveit en bar
sigur úr býtum í keppni á Hornafirði...
„Ég fór þangað og sló tvær flugur í
einu höggi: Heimsótti afa og ömmu
og tók þátt í söngvarakeppninni. Ég
hafði raunar líka reynt mig á Akureyri
en gekk þá ekki vel.“
- Hefur þú keppt oftar?
„Já með frænku minni í söngvara-
keppni hjá Stjórninni í hittifyrra. Við
urðum þá í öðru sæti.“
- Hefur þú verið í tónlistarnámi?
„Já, ég hef verið að læra að syngja
í Tónlistarskóla Eyjafjarðar síðan ég
var níu ára.“
- Eru fleiri tónelskir í ættinni?
„Mamma er mikill söngfugl og