Æskan - 01.12.1994, Síða 65
syngur bráðfallega. Afi og amma á
Húsavík hafa verið í kórum, hún var í
kirkjukór en hann er í karlakórnum
Hreimi. Langafi syngur í karlakórnum
Geysi á Akureyri.
Mamma hefur verið að læra á pí-
anó í fjögur ár, Jens bróðir minn, sext-
án ára, er að læra á gítar og Brynjar
bróðir lærði á trommur í eitt ár. Hann
er níu ára.“
- Aðaláhugamál þín...
„Söngur - og íþróttir. Ég æfi hand-
knattleik með Þór á Akureyri."
- Hvaða tónlist líkar þér best?
„Ég hlusta mest á róleg lög, ballöð-
ur, hipp hopp og diskó, en lítið á sin-
fóníur og þungarokk.11
- Eftirlætissöngvari?
„Whitney Houston."
- Á hvaða dýrum hefur þú mestar
mætur?
„Hestum. Þeir eru yndisleg dýr.
Nei, ég er samt enginn snillingur á
hestbaki.
Ég átti líka einu sinni páfagauk og
kött sem mér þótti ósköp vænt um.“
- Framtíðaráform?
„Að verða íþróttakennari eða snúa
mér alveg að söngnum."
HRÚTURINN ER ELSKUR AÐ
DÝRUM...
Jóna Björg Eðvarðsdóttir er fjórtán
ára Reykvíkingur. Hún hefur áður tek-
ið þátt í söngvarakeppni..
„Já, í „karaoke“-keppni félagsmið-
stöðva. Ég vann þá í hópakeppni, við
Hlíf Þorsteins vinkona mín sungum
saman, - og sem einstaklingur í und-
anúrslitum."
- Hefur þú lært að syngja eða leika
á hljóðfæri?
„Ég lærði á blokkflautu í einn vetur
en hef bara æft mig sjálf að syngja.
Ég á „karaoke“-tæki sem ég get tengt
við sjónvarp og fengið texta á skjáinn,
auk undirleiks, en undanfarið hef ég
mest leikið lög af gömlum plötum
með Judy Garland, Frank Sinatra og
Nat King Cole, líka af geisladiski með
ýmsum gömlum, þekktum söngvur-
um, og sungið þau.“
- Hver eru helstu áhugamál þín?
„Ég hef mikinn áhuga á stjörnu-
spám, aðallega um persónuleika
fólks, og ævisögum gamalla stjarna,
leik- og söngkvenna. Ég er nýbyrjuð
að æfa blak og hef mjög gaman af
því. Og svo er ég mikill dýravinur, flest
allra dýra nema skordýra. Ég á núna
naggrís og tvær kanínur og hef átt
hest, páfagauk og kött. Ég hef haft
brennandi áhuga á hestamennsku frá
því að ég var lítil."
- Þú ert af erlendu bergi brotin.
Hve ung varstu þegar þú komst til ís-
lands?
„Ég var tæplega eins árs þegar for-
eldrar mínir ættleiddu mig. Ég er frá
Ankara í Tyrklandi. Um sama leyti
komu líka þaðan Stella María Blöndal
vinkona mín - hún er viku eldri en ég,
við erum báðar í hrútsmerkinu - og
strákur á svipuðu reki. Bróðir minn er
einnig frá Tyrklandi. Hann var ekki
nema eins eða tveggja mánaða þegar
hann kom hingað. Hann heitir Gunnar
Friðrik og er níu ára.“
- Hvað þykir þér skemmtilegast að
læra?
„Sögu og myndmennt."
- Hvað langar þig til að starfa?
„Ég er að hugsa um að byrja á
sjúkraliðabraut en Ijúka stúdentsprófi
og reyna að komast að sem flug-
freyja. Svo blundar dálítið í mér að
verða söngkona..."
FÉLAGIÐ TTT
Oddný Sævarsdóttir er ellefu ára
og á heima á Egilsstöðum.
- Þú sigraðir í keppninni suður á
landi...
„Já, við vorum í sumarleyfi og
brugðum okkur á Selfoss. Mamma
átti heima þar.“
- Hefur þú gaman af tónlist?
„Já, þetta er sjötta árið mitt í fiðlu-
námi í tónlistarskólanum hér. Ég á að
fara að taka þriðja stig. Ég var líka í
barnakór skólans og er núna í barna-
kór kirkjunnar. Við syngjum oftast í
sunnudagaskólanum."
- Hefur þú alltaf átt heima á Egils-
stöðum?
„Nei. Ég er fædd hér og átti heima
hér til fjögurra ára aldurs en þá fórum
við til Noregs og dvöldumst þar í fjög-
ur ár, að Kóngsbergi og á Kristjáns-
sandi. Síðan fluttumst við aftur hing-
að.“
- Hvernig fannst þér í Noregi?
„Ofboðslega gaman.“
- Hvað var skemmtilegast?
„Að læra tungumálið og kynnast
því hvernig Norðmenn eru.“
- Eru þeir ekki líkir okkur?
„Jú, að ýmsu leyti. En krakkarnir
klæða sig öðruvísi en krakkar hér. Þeir
eru ekkert að eltast við tískuna."
- Heldur þú sambandi við einhverja
sem þú kynntist þar?
„Já, ég skrifast á við nokkrar stelp-
ur. Við förum kannski þangað næsta
sumar. Þá hitti ég þær líklega."
- Önnur áhugamál en söngurinn...
„Ég æfi fimleika með ungmennafé-
laginu Hetti. Þetta er þriðji veturinn í
þeim. Ég er líka í félagi sem heitir TTT:
Tíu til tólf ára. Það er æskulýðsstarf á
vegum kirkjunnar."
- Áttu gæludýr?
„Já, tólf fiska, glersugu-, gúran-,
gúbbí-, sebra- og neon-fiska. Litli
bróðir minn, Sævar Atli, á tvo. Hann
er þriggja ára.“
í 1. tbl. 1995 verður birt viðtal við
fjóra krakka sem syngja líka á geisla-
disknum og ekki hefur enn verið rætt
við: Birki Má, Katrínu Sif, Kristbjörgu
Lilju og Valgerði.
Æ S K A N 6 S