Æskan

Årgang

Æskan - 01.12.1994, Side 70

Æskan - 01.12.1994, Side 70
Pósthólf 523, 121 Reykjavík Umsjón: Sigurborg Sveinbjörnsdóttir. finningar þínar. Reyndu að hafa eðlileg samskipti við jafnaldra þína. Getur verið að þú haldir of fast í minn- inguna um þennan strák? Erfitt er að geta sér til um tilfinningar hans af því litla sem þú lýsir. Þú verður því að vera þolinmóð. Ef til vill áttu eftir að rekast á hann aftur og það er í raun eina leiðin til að komast að því hvort þetta var ást eða skot eins og þú talar sjálf um. í fljótu bragði sýnist mér málið ekki vera þess eðlis að þú þurfir að leita til sál- fræðings. Ég hef þá trú að þú getir unnið úr því sjálf. Kær kveðja. ÚTLITIÐ -06 ÓBEINAR REYKINCAR Svar: Kæra „Hrædd við hvað?“! Eins og kemur fram í bréfinu (sem þú baðst mig að birta ekki) ertu að glíma við mörg vandamál. Þú beinir athyglinni að vissum þáttum hjá sjálfri þér á nei- kvæðan hátt. Á þessum aldri verður oft vart dálítils ójafnvægis. Ég held að þú sért að glíma við miklar breytingar innra með þér. Það ræð ég af því hvernig þú lýsir hugsunum þínum, þörfinni fyrir að vera ein en samt hluti af hópnum og að geta gert eins og hinir - og sjálfstæðisbaráttu þinni heima. Þú nefnir líka reykingar X í návist ykkar. Mér hafa áður borist bréf frá börnum og unglingum sem kvarta sáran undan reykingum foreldra sinna og því mikla tillitsleysi sem þau búa við á heimilum sínum. Ég hef sagt að það ætti að vera réttur hvers barns að dvelj- ast í reyklausu umhverfi. Gott væri að þú ræddir þetta innan fjölskyldunnar. Vonandi komist þið að samkomulagi. Ég veit að foreldrar þínir gera sitt besta til að koma til móts við þig. Að lokum þetta: Reyndu að vera ekki of niðursokkin í hugsanir um útlitið. Það er ósköp lítið brot af „heildar- mynd“ einstaklingsins. Reyndu að byggja upp sjálfstraust þitt. Einangraðu þig ekki þó að þér þyki við einhvern heldur ræddu mál- in strax við hann. Sjálfs- traust er tilfinning sem kemur innan frá og birtist ekki hvað síst í framkomu fólks. Þegar stelpa verður skotin í strák eða strákur í stelpu þá er það miklu meira en útlitið sem hefur aðdráttarafl, það er mann- eskjan sem slík. Skriftin er skýr. Gangi þér vel! ERÞETTAÁSTEN EKKI SKOT Kæri Æskuvandi! Ég er 14 ára stelpa og ég er of hrifin af strák sem ég hitti um verslunarmannahelg- ina. Við vorum saman og ég er afskaplega hrifin af honum en veit ekki hvort hann er hrifinn af mér. Ég hef ekkert séð hann eða heyrt í honum síðan þá því að við gleymd- um að fá símanúmer hvort hjá öðru. Þegar ég segi að ég sé of hrifin af honum þá á ég við allt of mikið, svo mikið að ég held að ég þurfi að fara til sálfræðings. Ég hugsa svo mikið um hann að ég verð andvaka um nætur og sofna ekki fyrr en klukkan þrjú til fjögur. Þó vakna ég klukkan sjö. í skólanum er ég utan við mig og get ekki einbeitt mér. Það eina sem ég hugsa um er hann. Ég hef reynt að gleyma honum en get það ekki. Líf mitt er í rúst. Hvað á ég að gera? Þú verður að vera svo góð að svara þessu bréfi því að ég er í miklum vanda stödd. Á ég að fara til sálfræð- ings? Ein í rúst! Svar: Stundum festist fólk í einhverjum hugarórum um ákveðnar persónur. Sér- staklega getur þetta gerst þegar ekki er hægt að láta reyna á samskiptin í alvöru eins og í þínu tilviki. Þá fer svo margt fram í huganum eingöngu og mótvægið frá raunveruleikanum vantar. Sennilega ertu búin að reyna allt sem þú getur til að hafa uppi á piltinum - og jafnframt hefur þú gert hann að allt of stórum þætti í huga þér. Ég vil því ráðleggja þér að reyna að koma lagi á til- ALVARLE6T ÁFALL Svar til „Einnar ringlaðr- ar“: Þakka þér fyrir bréfið sem er dálítið frábrugðið öðrum sem þættinum hafa borist að undanförnu. Ég tel að þú sért að glíma við algengar afleið- ingar áfalls. Þú hefur kom- ist í nálægð dauðans og hugsar um það hvernig þú tækir missi og sorg ef ein- hver nákominn þér félli frá. Það er ekkert óeðlilegt við það að þú sért hrædd þeg- ar talað er um vélsleða því að allt of mörg alvarleg slys hafa orðið hér á landi við akstur þess farartækis, hver sem ástæðan er. Ég held að gott væri fyrir þig að ræða þetta mál við einhvern sem þú treystir. Það myndi minnka áhyggj- ur þínar. Síðara málið sem þú ræðir er ástin. Þetta er eitt algengasta kvörtunarefni sem þættinum berst. Þú ert í vafa um að strákurinn sem þú ert hrifin af beri sömu tilfinningar til þín. Því fylgir alltaf nokkur óvissa að vera hrifin(n) af einhverj- um/einhverri. Eitt af því er óvissan um hvort tilfinning- ar séu endurgoldnar. Oft má ráða ýmsa hluti af framkomu og atferli. Þú 7 0 Æ S K A N

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.