Æskan - 01.12.1994, Síða 71
getur einnig komist að því
eftir öðrum leiðum, t.d.
gætir þú spurt hann sjálf
fyrir ballið sem þú talar um
hvort hann sé til í að vera
herra þinn það kvöld.
Gangi þér vel!
STREITAOC
ERFITT SKAP
Kæri Æskuvandi!
Ég á við eitt vandamál að
stríða. Það er að ég verð
alltaf ofboðslega streitt þegar
ég ætla að gera eitthvað, til
dæmis ef ég er að fara á
diskótek. Þá verð ég svo
streitt að það er ekki einu
sinni hægt að tala við mig.
Ég segi bara:
„Bíddu aðeins, ég þarf að
hugsa...“
Ég hef aldrei tíma til þess
að slaka á. Ég hef reynt að
vera róleg og fara hægt en
það tekst aldrei.
Hvað á ég að gera? Það
mætti halda að það væri eitt-
hvað að heilanum á mér.
Svo er annað: Ég get
stundum verið dálítið frek og
farið í vont skap. Ég ræð
aldrei við skapið.
Getur þú reynt að hjálpa
mér?
Hvað lestu úr skriftinni og
hvað er ég gömul?
Streita
Svar:
Streituviðbrögð má
rekja til mannlegra
samskipta. Það er innan
um annað fólk sem ör-
yggisleysi og kvíði
gera vart við sig.
Hagsmuna-
árekstrar, sam-
keppni, andstaða,
og niðurlæging
tengist mannleg-
um samskiptum.
Til að losna
við streitu liggur
beinast við að
skipuleggja líf
sitt þannig að
það sem veldur
henni verði síður
á vegi manns.
Hér gætu ein-
föld atriði eins
og að sofna
fyrr á kvöld-
in en áður og vakna fyrr á
morgnana haft verulega
mikil áhrif. Einnig er mikil-
vægt að ætla sér ekki um
of, taka fá atriði fyrir í einu,
gefa sér nægan tíma.
Líkamsþjálfun og hreyf-
ing er annað atriði sem
mikilvægt er að gefa gaum
að. Við líkamlega áreynslu
losar maður um spennu í
líkamanum. Þú þarft því að
byggja upp betra þol gegn
áreitum og læra að hafa
stjórn á skapi þínu. Það er
dálítið erfitt fyrir vini þína
ef þú bregst oft við ágrein-
ingi með því að fara í vont
skap. Reyndu að ræða
þetta við foreldra þína og
fá stuðning þeirra.
Skriftin gæti verið betri
og vandaðri en í bréfinu.
Mér finnst hún bera vott
um nokkra hroðvirkni eins
og þér liggi mikið á þegar
þú hefur eitthvað ákveðið í
huga.
Líklega ertu 13-14 ára.
Gangi þér vel!
Eg þakka kærlega
öllum þeim sem
senda bréf. Nú
muna langflestir
eftir að rita rétt
nafn og heimilis-
fang auk
dulnefnis.
í bréfunum eru
oft borin upp
svipuð vandamál.
Ég get ekki svar-
að mörgum um
sama efni. Þess
vegna bið ég þá
sem sakna bréfa
sinna að lesa
þáttinn vel og
nýta sér þau ráð
sem gefin eru þar
og eiga við.
Gleðilega
aðventu
og jólahátíð!
Sigurborg.
SKOÐANA-
KÖNNUN
ÆSKUNNAR
Fjöldi lesenda svaraði
spurningum um
hvernig þeim líkaði
efni Æskunnar.
Við þökkum þeim
öllum kærlega fyrir.
Svarseðlar 30
þátttakenda voru
dregnir úr hlaðanum
1. desember. Þeirfá
tilkynningu í bréfi um
líkt leyti og blaðið
kemur út. Listi með
nöfnum þeirra verður
birtur í 1. tbl. 1995.
Verðlaunin eru Russel
Athletic íþróttabolur
frá Hreysti og bók frá
Æskunni.
LITAKEPPNI
Fresturtil að senda
litaða mynd af
Hefðarköttunum
rann út 5. desember.
Margir hafa sent
mynd nú þegar
(22. nóvember) en
aðrir nota sér frestinn.
Þegar þetta jólablað
berst ykkur erum við
að senda verðlaun til
50 lesenda!
Þökk fyrir að taka þátt
í leiknum!
Æ S K A N 7 7