Valsblaðið - 11.05.1973, Side 5

Valsblaðið - 11.05.1973, Side 5
VALS BLAÐIÐ 3 Frímann Hclgasoit Fædtlur 21. áuús 1 1007. — Dáinn 29. nóvember 1972 Kveðja firá Val Nú sækir a.ð sár tregi. Góðnr vinur og samherji er allur. Ekki aðeins góð- ur, lieldur einn sá bezti, sem Valur og við Valsfélagar liöfum átt. Æfin- lega leiðandi, hvetjandi og fræðandi. Tryggur var hann og ósérlilífinn til hinztu stundar, og áliuginn brennandi. Glaðværð Iians hressileg og smitandi, viljakraftur, starfsorka og afköst með eindæmum. Þessum kostum hans fylgdi það, sem mest er um vert: hreinleiki hugans, góðvild og dreng- skapur. Hér var á ferð sannarlega góður Valsmaður. Frímann Helgason var liðlega tví- tugur, þegar hann gekk í Val. Hann hafði þá að baki meiri lífsreynslu en flestir jafnaldrar lians. Hann var fæddur 21. ágúst 1907 að Litlu-Heiði í Mýrdal. Foreldrar hans voru Helgi Dagbjartsson, verkamaður og kona lians, Ágústa Guðmundsdótt- ir. Frímann ólst upp í Vík í Mýrdal og í Reynishverfi, vestan Víkur, lauU gagnfræðaprófi 1923 og félikst við landbúnaðarstiirf og sjómennsku á unglingsárum sínum. — 28. febrúar 1928 fórst togarinn Jón Forseti við Stafnes og með honum 15 menu, en 10 komust af og var Frímann Helga- son einn þeirra. Þetta átakanlega slys slieði fyrir augum f jölda manna á sjó og laiuli nærri strandstað, en þeir gátu lítilli björgun við komið. Klukku- stundum saman liékk Frímann í reiða skipsins og horfði á, hvernig félagar lians, einn eftir annan týndust í sjó- inn. Svo fór, að Frímann kastaði sér til sunds og var sá síðasti, sem slapp lifandi í land.1 Karlmenni var hann þá og karlmenni var hann alla tíð. Ólíklegt er, að nokkur inaður komi óbreyttur úr hildarleik sem þessum og mun lífsreynsla sú, sem Frímann varð liér fyrir, hafa haft nokkur áhrif á lífsviðhorf lians, en ekki var lion- um tíðrætt um atburð þennan. Ári síðar gerðist Frímann starfs- maður Isaga h.f., Reykjavík, þar sem liann seinna varð verkstjóri og gegndi því starfi til dauðadags. Um það seg- ir samstarfsmaður lians í minningar- grein2 m. a.: ,,— Það verður á eng- an hallað ])ótt ég fullyrði að starf 1 Frímann Helgas., SjómannablaðiÖ 1958, 4.-5. tbl.). 2 Frímann Jónsson, Mbl. 9. 12 1972. hans í þjónustu ísaga megi telja svo einstætt, að leitun verður á öðru eius. — Hagur og velgengni ísaga var lion- um fyrir öllu, og var þá ekki spurt um tíma né fyrirliöfn. —“ Stjórn- semi, samvikusemi og alúð í lífsstarf- inu, samfara sanngirni og lipurð í umgengni, skapaði honum traust og virðingu samstarfsmanna, yfirmanna sem undirmanna. Frímann skilaði þannig lífsstarfi sinu lijá sama fyrirtæki í 43 ár með stakri prýði og sæmd. Þó var það með frístundastarfi sínu og áliugamálum að hann varð landsþekktur og dáður. Hugsjónamaður var liann af lífi og sál. Þar áttu íþróttir hug hans all- an og þó sérstaklega knattspyrnan. Frímann liafði glöggt auga fyrir gildi íþrótta fyrir einstaklinginn og ]»jóðina. Hann sá í þeim tæki til að efla með þjóðinni hreysti, jireli og þor, líkamlega reisn einstaklingsins og drenglyndi og fegurð í samskipt- um manna. Með fordæmi sínu sem sannur íþróttamaður, með stöðugu og linnulausu félagsstarfi og látlausum skrifum um þetta liugðarefni sitt varð honum meira ágengt í áróðri sínum en flestum, ef ekki öllum, liérlend- um íþróttafrömuðum öðrum. — Hann dó um aldur fram, en náði þó að skila tvöföldu lífsstarfi, hvoru tveggja með niiklum sóma. Þegar Frímann gerðist félagi í Val, varð olikur fljótt ljóst, að Val liafði bætzt liðsmaður, sem um munaði. Frí- mann hafði þá ekki hlotið mikla þjálf- un í knattspyrnu, hafði þó leikið sér að úttroðnum boltum í Vík og æft með Tý í Vestmannaeyjum, er hann dvaldist þar við vinnu 1925—26.1 En svo voru knattspyrnuhæfileik- ar hans miklir og áhugi lians og einbeitni við æfingar, að hann var ári eftir inngöngu i félagið með í meistaraliði því, sem fyrst allra liða Vals tókst að afla félaginu liins lang- þráða titils: „Bezta knattspyrnufélag Islands". Þetta skeði ]>jóðhátíðarárið 1930, vakti mikla atliygli og varð fé- laginu mikil Iyftistöng. Glæsilegt tímabil þess var að liefjast, og Frí- mann var þar mikilvirkur þátttak- andi. Um 17 ára skeið lék hann í meistaraflokki félagsins, eða þar til hann var 39 ára gamall. Á þessu tíma- bili var liann með í því að vinna Is- landsmeistaramótið 10 sinnum. Frí- mann var lengst af fyrirliði og einn af máttarstólpum liðsins, en það var þá allt skipað úrvalsleikmönnum. Samlieldni liðsins var rómuð. Frímann var alla tíð varnarmaður, ýmist bakvörður eða miðframvörður. Hann var einn f jórmenninganna, sem mynduðu liina frægu Valsvörn, ógn- vald mótherjanna um árabil. Hinir voru Hermann Hermannsson, Sigurð- ur Ólafsson og Grímar Jónsson. — Frímann var sterklega byggður, en lét þó ekki andstæðinga kenna afls- munar. Hann náði ekki mjúkri lcikni, en var ])ó snar í lireyfingum, við- bragðsfljótur og lengi einn sprett- liarðasti maður á vellinum. Hann hafði gott vald á knettinum, ekki sízt með liöfðinu og stóð þar lionuni lengi enginn á sporði. Sendingar lians voru öruggar og skjótar, liann valsaði ekki um völlinn með knöttinn að óþörfu. Aðalstyrliur Frímanns sem knatt- spyrnumanns lá þó í skapi hans og skapgerð, atliyglisgáfu, vandvirkni og þrautseigju. Hanu kynnti sér gaum- 1 E. Bj. Valsbl. 1967.

x

Valsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.