Valsblaðið - 11.05.1973, Side 24

Valsblaðið - 11.05.1973, Side 24
22 VALS B LAÐIÐ Verður Valur íslandsmeistari í m.fl. í vetur? Því er nú fljótsvarað. Við stefn- um að því aö verða meistarar í 1. deild karla 1973. Sannarlega kominn tími til. Við höfum sett okkur þær reglur að standa saman, í blíðu og stríðu. Mæta til æfinga og keppni af eldmóði. Hvaða reglur gilda hjá þér um reglusemi leikmanna, og hvernig bregztu við brotum á þeim reglum? Takmarka mjög næturlífið. Allir höfðu samþykkt að smakka ekki áfengi minnst 3 dögum fyrir leik. En þessu hefur nú verið breytt með sam- þykki allra að sjálfsögðu, í 8 daga bindindi fyrir leik. Hvernig við bregðumst við þessu, það hefur ekki komið til enn sem betur fer. En öllum er ljóst að til keppni verða þeir að koma sem bezt undirbúnir, ella væru þeir ekki að leggja á sig allt þetta erfiði sem æfingunum fylgir, annars er allt unn- ið fyrir gíg. Alvarleg brot af þessu tagi þýða að viðkomandi er ekki nægi- lega fastheldinn á orð sín og verður að víkja fyrir þeim sem áhuga hafa. Ur skýrslu körfuknattleiksdeildar 1 upphafi var rætt nokkuð um fjár- mál deildarinnar, og þess getið að aðal- tekjulind hennar hafi verið sala get- raunaseðla. Eins og áður eru það nokkrir félags- menn deildarinnar sem selja stærsta hlutann, og þakkar stjórnin þeim sér- staklega fyrir það, en skorar jafnframt á hina yngri að leggja sig fram. 1 byrjun starfsársins var efnt til mik- illar skemmtunar fyrir yngri flokkana, og fór hún fram í Félagsheimilinu, og tókst hið bezta. Þess má og geta að æf- ingaaðstaða fyrir þessa drengi var bætt í Valshúsinu, þar sem settar voru upp 4 körfur, og vill stjórnin færa fram beztu þakkir til hússtjórnar. Þeir sem önnuðust þjálfun hjá deild- inni á síðasta ári voru: Kári Marisson, Jóhannes Eðvaldsson, Ólafur Thorlacíus, Jens Magnússon, Sigurður M. Helgason og Torfi Magnússon, og þakkar stjórnin þeim öllum störfin, sem voru unnin end- urgjaldslaust. Árangur alls þessa kemur svo fram þegar lið deildarinnar fara að reyna sig í keppni. Bezti árangurinn á árinu var í öðrum flokki, en þeir urðu Islands- meistarar 1972. Þá varð mjög góður ár- angur hjá meistaraflokki, en þeir urðu í þriðja sæti í íslandsmótinu, og var það betra en gert var ráð fyrir. Þá tók meist- araflokkur þátt í tveim mótum á Kefla- víkurflugvelli, en þar voru leiknir 45 leikir alls. Varð meistaraflokkur í öðru sæti í seinna mótinu, sem var útsláttar- keppni, og unnu þeir til eignar fagra styttu. Þá tók meistaraflokkur þátt í bikarkeppni KKl nú í haust, léku við I.R. en töpuðu. Þá gat formaður þess að Guðmundur Hallgrímsson mundi hætta störfum í stjórn, og færði hann Guðmundi beztu þakkir fyrir gott samstarf. Þá skýi'ði formaður frá því að hann mundi samt ekki hverfa alveg, því að talazt hefði til að hann mundi hjálpa til við tilteknar fjáraflanir, en það mál biði næstu stjórnar. Að lokum sagði formaður: í þessari skýrslu hefur verið stiklað á stóru. En ég vil hvetja menn til að taka þátt í umræðu hér á eftir um störf deildar- innar. Stjórnin þakkar öllum gott sam- starf á liðnu ári. Nokkrar umræður urðu um skýrsluna og starfsemina á komandi starfsári. Formaður félagsins, Þórður Þorkels- son, þakkaði árangur annars flokks og meistaraflokks á liðnu ári. Hann minnt- ist einnig hinna áhugasömu leiðbein- enda og þjálfara, og þakkaði þeim fyrir fórnfúst starf fyrir íþrótt sína og deild- ina. Fullyrti Þórður að slíkt starf án greiðslu hefði meiri félagslega þýðingu en menn almennt gerðu sér grein fyrir. Þá vakti Þórður máls á því að sér fyndist að of lítil athygli væri vakin á leikjum og mótum í yngri flokkunum, og skoraði á stjórn deildarinnar að beita sér fyrir því að á þessu væri ráðin bót á komandi keppnistímabili. S tj órnarkj ör. Sigurður Helgason var einn tilnefnd- ur sem formaður og var hann endur- kjörinn með lófataki. Þá voru tilnefndir í stjórn deildarinnar: Torfi Magnússon, Sigurður Þórarinsson og Kári Marisson og hlutu þeir kosningu. I varastjórn voru kjörnir: Þórir Magnússon, Kristinn Val- týsson og Helgi Kjærnested. F. H. Bjartsýni ríkjandi hjá körfuknattleiksmönnum svqir Siqurður Slelguson, iorinuúur hörtnknulilcihs- deildur. — Ég get ekki annað sagt en að við séum bjartsýnir hér í körfuknatt- leiksdeildinni, þrátt fyrir það að margt hefði mátt betur fara hjá okk- ur, sagði Sigurður Helgason, formað- ur körfuknattleiksdeildarinnar, er við ræddum við hann um það sem gerzt hefur og það sem framundan er hjá körfuknattleiksmönnum okkar. ■—• Það sem ég er ánægðastur með, sagði Sigurður, er frammistaða 2. flokksins okkar. Hann hefur sannar- lega verið okkur til sóma og er raun- ar í dag uppistaðan í mfl.liði okkar. Þessir piltar eru allir aldir upp í fé- laginu og hafa fyllilega staðið við þær vonir sem bundnar voru við þá í upp- hafi. Og þetta sýnir okkur einnig hvað hægt er að gera ef vel er á spöð- unum haldið hjá yngri flokkunum. Hinu er ekki að leyna, sagði Sig- urður, að í vetur hefur ýmislegt far- ið á annan veg en við vonuðum hjá yngri flokkunum. Við höfum misst nokkra góða pilta yfir í önnur félög vegna þess að við þurftum að skipta um æfingahúsnæði. Æfingahúsnæðið sem við höfðum var á margan hátt óhentugt, en í vetur fengum við að- stöðu í Austurbæjarskólanum, sem er mjög góð, en þessi breyting varð til þess að við misstum nokkra drengi frá okkur. Við þessu er ekkert að gera úr því sem komið er, við verð- um bara að hefjast handa á nýjan leik og byggja upp aftur í 3. og 4. flokki. Þessir tveir flokkar eru ekki eins sterkir og þeir hefðu verið ef við hefðum enga menn misst. Nú eru algerir nýliðar í þessum flokkum. — En hvað viltu segja okkur um meistaraflokkinn ? — Það voru vissulega miklar vonir við hann bundnar, en leikmennirnir eru flestir mjög ungir og er liðið sennilega yngsta liðið í 1. deildar- keppninni. Sannleikurinn er sá, að sökum leikreynsluleysis hefur flokk- urinn ekki náð eins góðum árangri og nokkrir leikir hans í sumar og haust gáfu manni fyrirheit um. Það er eins og annaðhvort nái liðið topp- leik eða þá að allt gengur í óhag, sem sagt í hæl eða tá. Þetta er auðvitað gleggsta merkið um reynslulaust en efnilegt lið og við bindum mjög mikl- ar vonir við liðið, því er ekki að leyna. Þá höfum við einnig verið óheppnir í vetur, okkar bezti maður hefur ver- ið meiddur um tíma og margt gengið okkur í óhag. Flest hinna liðanna í deildinni eru með mjög leikreynda menn, sem sumir hafa leikið allt að 10 ár eða meira í 1. deild. Það segir sig sjálft að slíkt er ómetanlegt vega- nesti fyrir lið og til dæmis gegn okk- ar liði, þar sem flestir eru að leika í fyrsta eða annað sinn í deildinni, það er vart hægt að ætlast til þess að okkar drengir standist þeim snún- ing. Þótt ekki hafi gengið eins vel hjá mfl. og vonazt var til er mikill ein- hugur ríkjandi hjá liðsmönnum og engin uppgjöf. Við vitum að liðið er ungt og eitt hið efnilegasta sem lengi hefur komið hér fram og á framtíð- ina fyrir sér. — Hvað viltu segja okkur um minniboltann ? — Þar erum við með mjög góðan og efnilegan hóp. Þetta eru krakkar

x

Valsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.