Valsblaðið - 11.05.1973, Side 21
VALS B LAÐIÐ
19
I. flokkur kvenna. Reykjavíkurmeistarar 1971.
Þjálfarinn Stefán Sandholt, Gunnur Gunnarsdóttir, Hrefna Bjarna-
dóttir, Inga Birgisdóttir, Kristjana Magnúsdóttir fyrirliði, Björg
Guðmundsdóttir, Guðbjörg Árnadóttir.
Aftari röð: 3. fl. kvenna. íslandsmeistarar 1972. Sigurjóna Sigurðar-
dóttir þjálfari, Málfríður Elísdóttir Guðlaug Guðmundsdóttir, Oddný
Sigurðardóttir, Sigríður Ingólfsdóttir, Agnes Einarsdóttir, Bergljót
Davíðsdóttir þjálfari. — Fremri röð: Nanna Sveinsdóttir, Lilja Bolla-
dóttir, Inga Maja, Sólrún Ástvaldsdóttir.
Ymislegt.
Utanferðin, sem farin var i sumar
með unglingaflokkana, tókst alveg ein-
staklega vel, og varð öllum einstakling-
um til mikils sóma. Vill stjórnin hér með
þakka þátttakendum og Bergsteini
Magnússyni, sem var einn af fararstjór-
unum, fyrir svo velheppnaða ferð. Von-
andi líður ekki langur tími þar til hægt
verður að fara aftur í slíka ferð með
unglingaflokka deildarinnar.
Þess skal að lokum getið, að Svala
Sigtryggsdóttir var kosin bezta hand-
knattleikskona mótsins í Svíþjóð og hlaut
að launum fagran verðlaunagrip.
Meistaraflokkur karla fór einnig í
ferðalag, að vísu ekki út fyrir landstein-
ana, því að farið var til Akureyrar í
æfinga- og keppnisferð og leiknir tveir
leikir.
Unglingar frá deildinni tóku þátt í
hópsýningaratriðum sem haldin voru á
vegum Í.S.Í. í íþróttahöllinni.
Heimsókn Neistans.
Dagana 10. til 12. ágúst dvöldu hér á
landi í boði deildarinnar meistaraflokk-
ur karla frá Handboltafélaginu Neistinn
í Þórshöfn. Þeir gistu í félagsheimilinu
og borðuðu á Caféteríunni á Hótel Loft-
leiðum. Farið var með þá til Þingvalla,
Laugarvatns og Hveragerðis í einkabil-
um Valsmanna. Þá flugu þeir til Akur-
eyrar og léku þar einn leik. Færeying-
arnir hafa nú boðið mfl. karla til Fær-
eyja í vor eða sumar, og er málið í at-
hugun. Þeir voru mjög ánægðir með
móttökur allar og afhentu bók um Fær-
eyjar að gjöf til Vals. Leikir þeirra fóru
þannig:
Neistinn—K.R. 18:17
Neistinn—K.A. 22:16
Neistinn—Haukar 13:27
Neistinn—Valur 13:31
Olympíuleikarnir 1972.
Svo sem menn vita tók íslenzka lands-
liðið þátt í handknattleikskeppni Olym-
píuleikanna í Miinchen. Sex félagar
handknattleiksdeildar Vals voru kepp-
endur í þessu Olympíuliði íslands: Ágúst
Ogmundsson, Gísli Blöndal, Gunnsteinn
Skúlason, sem jafnframt var fyrirliði
liðsins, Ölafur Benediktsson, Ölafur H.
Jónsson og Stefán Gunnarsson. Þeir eru
þar með fyrstu sex keppendur Vals á
Olympíuleikum.
Lokaorð.
Okkur, sem starfað höfum í stjórn
deildarinnar á s.l. tímabili, er það ljóst,
að við höfum ekki leyst nógsamlega mik-
ið af þeim verkefnum, sem fyrir liggja.
Þó vonum við, að það sem við höfum
starfað að, megi verða öðrum bæði
hvatning og örfun til enn frekari starfa.
Sú stjórn, sem nú tekur við, fær mörg
verkefni til úrlausnar, sem krefjast bæði
tíma og þrautseigju. Stjórnin, sem nú
skilar af sér, vill hér með þakka öllum
þeim sem stutt hafa hana til dáða og lagt
hafa henni til hjálparhönd á ómetan-
legan hátt. Má þar ekki gleyma þjálfur-
unum, aðalstjórn, stjórnum annarra
deilda í félaginu, hússtjórn og húsvörð-
um, og sízt ykkur, félagar góðir.
Við viljum að lokum óska þess að
stjórn sú, er tekur við, megi bera gæfu
og gengi til ái'angursi'íks starfs á kom-
andi starfsári, og að við stöndum saman
um að gera starf hennar sem allra bezt
félagi voru til heilla.
Oteljandi verkefni
bíSa úrlausnar
Vi«)Y«f rií) l'ön) Siqurösson.
forni. hunilhnutíleihsdcUilar
Á aðalfundi handknattleiksdeildar
s.l. haust hlaut Þórður Sigurðsson
kosningu sem formaður hinnar nýju
stjórnar deildarinnar. Þórður lék
handknattleik með yngri flokkum
Vals og varð m. a. Reykjavíkurmeist-
ari 1966 og 1967 með II. flokki karla.
1968 varð Þórður svo að hætta æf-
ingum að læknisráði. Hann sagði þó
ekki skilið við félag sitt við svo búið,
en sneri skjótt aftur til að starfa
fyrir það á vettvangi félagsmálanna.
Þórður varð fúslega við þeirri ósk
Valsblaðsins að svara nokkrum spurn-
ingum varðandi starfsemi handknatt-
leiksdeildarinnar.