Valsblaðið - 11.05.1973, Síða 22
20
VALiS B LAÐIÐ
Þórður Sigurðsson
form. handknattleiksdeildar.
1) Þú hefur áður átt sæti í stjórn
hkd. Vals, er ekki svo, Þórður?
Sv: Ég hef átt sæti í stjórninni síðan
1969, fyrst sem ritari og síðan
sem varaformaður.
2) Telurðu að leikmenn (og -kon-
ur) keppnisliðanna t. d. meist-
araflokkanna eigi að taka bein-
an þátt í störfum deildarstjórn-
arinnar?
Sv: Nei, því að það er vitað mál, að
keppendur í mfl. hafa nóg á sinni
könnu með æfingum og leikjum.
Ég tel æskilegast, að stjórn hand-
knattleiksdeildarinnar sé skipuð
fólki sem hætt er keppni og æf-
ingum. Oft reynist þó erfitt að
fá slíkt fólk til að starfa hjá fé-
lagi sínu á ný. Reyndar eru verk-
efni stjórnarinnar ærin og dag-
lega bíða ný vandamál úrlausnar.
Vil ég því meina, að starf í stjórn
deildarinnar krefjist engu minni
tíma en t. d. æfingar og leikir
hjá meistaraflokkunum.
3) Hver verða meginviðfangsefni
stjórnar þinnar í vetur og á nýja
árinu ?
Sv: Ýmis verkefni stór og smá bíða
úrlausnar, t. d. þjálfaramál. Mjög
er brýnt að leggja áherzlu á
þjálfun yngri flokkanna. Hefur
stjórnin mikinn áhuga á að gera
þjálfun þeirra betri skil, t. d.
með því að gefa þjálfurum þeirra
kost á betri menntun á sínu sviði.
Frammistöðu okkar Valsmanna
hvað varðar framlag í dómara-
stéttina er einnig ábótavant. Ég
tel það hneisu, að félag með eins
mikla reisn og Valur, skuli ein-
ungis eiga starfandi einn lands-
dómara og einn héraðsdómara í
handknattleik. Úr þessu þarf að
bæta.
Stjórn sú, sem nú situr, er einn-
ig ákveðin í að koma fjármálum
deildarinnar í sem bezt horf. Hef-
ur þegar verið hafizt handa á
því sviði og má þar t. d. benda
á, að við höfum látið ýmsa fé-
lagsmenn fá blokkir til þess að
safna undirskriftum þeirra, er
treysta sér til að heita því, að
greiða 100 kr. fyrir hvern unn-
inn leik í mfl. karla í yfirstand-
andi íslandsmóti. Væntum við
góðra undirtekta í þeirri söfnun.
Þá er og líklegt að mfl. karla
fari til Færeyja næsta sumar og
til greina kemur að mfl. kvenna
fari einnig utan.
4) Margir óskapast yfir því hversu
mikið fé íþróttamenn biðja um
til starfsemi sinnar. Geturðu gef-
ið lesendum einhverja vitneskju
um hver rekstrarkostnaður hkd.
Vals muni verða í ár?
Sv: Samkvæmt áætlun gjaldkera
deildarinnar, Stefáns Bergsson-
ar, mun þurfa nær 600.000 kr. á
ári til rekstrarins. Það er von
okkar að velunnarar Vals standi
með okkur og geri nú stórt átak
í að afla fjár, t. d. með aukinni
sölu getraunaseðla og greiðslu
árgjalda. Ég vil geta þess, ef
okkur tekst að ráða góðan er-
lendan þjálfara, má gera ráð fyr-
ir, að rekstrarkostnaður deildar-
innar verði ekki undir einni millj-
ón króna. Ég vil og taka fram,
að stjórnin ákvað að hækka bæði
árgjöld og æfingagjöld. Greiða
menn nú 25 kr. fyrir 100 mín.
æfingu en 15 kr. fyrir 50 mín.
Þá er og gengið ríkt eftir því,
að fólk greiði árgjöld sín og ætti
ekki að þekkjast, að menn reyni
að komast hjá því, en því miður
hafa sumir leikið þann leik oftar
en einu sinni.
5) Þú minntist á erlendan þjálfara,
Þórður. Nú var reynt í fyrra að
fá slíkan mann en tókst ekki.
Verður eitthvert framhald á þeim
tilraunum ?
Sv: Já. Við erum ákveðnir í að gef-
ast ekki upp þótt móti hafi blás-
ið á þeim miðum. Stjórnin hef-
ur til athugunar möguleikana á
því að ráða erlendan þjálfara.
Fullur vilji virðist um það ríkj-
andi að fá vel menntaðan og
reyndan mann til að þjálfa meist-
araflokkana og byggja upp og
kenna þjálfurum félagsins.
6) Að lokum, Þórður, hvert er hlut-
verk þitt sem formanns deildar-
stjórnarinnar ?
Sv: Ég tel hlutverk mitt ekki meira
né stærra en annarra stjórnar-
meðlima. Formaðurinn er þó auð-
vitað í forsvari fyrir stjórnina
og hlutverk hans er m. a. að boða
stjórnina reglulega saman til
funda. Tel ég einnig æskilegt, að
formaður deildarinnar sé sem
oftast viðstaddur leiki og æfing-
ar allra flokka, til að fylgjast
með hvernig þar er á málunum
haldið, og kynnast um leið and-
rúmsloftinu meðal félagsmann-
anna.
Annars treysti ég mjög á sam-
stöðu allra stjórnarmanna og ég
veit með vissu, að allt það fólk
er situr í stjórn hkd. Vals nú,
er mjög duglegt og áhugasamt.
Hefur verið reglulega gaman að
starfa með því. Ég vona aðeins
að ég bregðist ekki trausti þeirra
og annarra Valsmanna.
Fullvissir þess, að Þórður muni
reynast traustsins verður þökkum
við honum greið svör og óskum hon-
um og stjórn hans forsældar í starfi.
JHK.
Jón Knrlsson:
Nýr þjálfari
í handknattleik
úrvalsmvnn inrr til
fnUtini)is”, srijir
I»árurinn Mii)þórsson.
I Iiaust tók „nýr þjárfari“ við mfí.
karla í handkriattleik. Þaið skýtur þó
líklega skökku við, að kalla liann
>iUýjan“, því að maðurinn er hinn
„gamalkunni og reyndi þjálfari allra
fIokka“, Þórarinn Eyþórsson. Þrátt
fyrir „skamman sólarhring“, þ. e. mik-
inn tímaskort, gaf Þórarinn sér tóm
til samtals, þegar á hann leitaði spyr-
ill Valsblaðsins.
Varstu ánæc/ður með árangur liðs-
ins (m.fl.) í Reylcjavíkurmótinu?
Ég var að mörgu leyti ánægður
með árangur m.fl., en aftur á móti
mjög óánægður með varaliðið (1.
flokk). Við settum okkur þegar í upp-
hafi æfingatímabilsins, að reyna að
vera sem bezt undir íslandsmeistara-
mótið búnir. Þar af leiðandi að nota
Reykjavíkurmótið sem æfingamót
undir 1. deildarkeppnina. Útkoman
úr Reykjavíkurmótinu var í sam-
ræmi við það, þó vantaði aðeins
herzlumuninn á að við sigruðum það
mót. Svo sem mönnum er kunnugt,
átti Víkingur dularfulla kæru í poka-
horninu, sem tryggði þeim sigur í
Reykjavíkurmótinu, og sluppu þeir
þar með að leika úrslitaleik við okkur.
i