Valsblaðið - 11.05.1973, Side 37

Valsblaðið - 11.05.1973, Side 37
VALSBLAÐIÐ 35 „Jú, þetta eru hlaup og spörk!“ og það voru orð að sönnu. Þegar svo að því kom, að ég féllst á að taka að mér þjálfun í Val, minnugur umsagnar minnar um knattspyrnuna á íslandi, gat ég ekki slegið af í neinu tilliti. Ég setti þau skilyrði að fullkominn agi yrði að ríkja, stundvísi og til- tekinn fjöldi af boltum. Þó ég segi sjálfur frá fór þetta þegar að bera árangur. Á árinu 1933, og ekki aðeins í Val, ýmis önnur félög höfðu tekið miklum framförum, en þetta ár varð Valur íslandsmeistari, og vann sem hér segir: Fram 3:0, Víking 8:0, Vestmannaeyjar 6:0 og loks KR 6:3. í aukaleik vann Valur Húsavík 10:0. Sem sagt, þetta byrjaði vel og þetta hélt áfram næstu árin, og knatt- spyrnunni fór stöðugt fram. Þó að ég legði áherzlu á agann í liðinu, kom þó atvik fyrir 1934, sem varð til þess að við töpuðum íslandsmótinu. í leiknum meiddist einn leikmaður svo að setja varð annan inn, en sá sem átti að vera til vara, hafði ekki farið í búninginn og neitaði að fara inn á. Varð ég þá að ná í annan mann sem misheppnaðist og við töpuðum 3:2. Þetta atvik var sönnun þess að agi og hlýðni verður að vera í sérhverju liði, og þar með að varamenn verða að vera alltaf til reiðu, því að þeir eru hluti af liðinu. Mörg skemmtileg atvik komu fyrir á þessum árum og til gamans ætla ég að nefna fáein, og þá fyrst atviks frá æfingu hjá drengjunum í Val. Æfingin hafði staðið nokkra stund, er ég veitti því athygli að einn dreng- urinn var farinn að gráta. Ég spurði hann þá hverju það sætti? Þú ert allt of strangur, sagði drengurinn. Já, en ég skal segja þér nokkuð, það er ekki ætlun mín að vera vondur við þig, en mig langar til þess að kenna þér að leggja hart að þér. Án þess að erfiða og gera þitt bezta getur þú ekki rutt þér braut í lífinu síðar, á þann hátt aðeins getur þú komið þér áfram í heiminum. Svipað átti sér stað með annan dreng síðar. Báða þessa drengi hef ég hitt, og þá sem fullorðna menn, og annar þeirra minntist á þetta atvik og sagði: „Reidar, ég hef minnzt þessara orða þinna æ síðan, og fylgt þeim full- komlega, og þess vegna er ég kominn það sem ég er“. Um skeið fékkst ég nokkuð við að dæma knattspyrnuleiki, og er mér alltaf minnisstætt atvik frá leik sem ég dæmdi. Þetta var leikur milli Fram og KR. KR-ingar höfðu skorað eitt mark, en þá dæmi ég vítaspyrnu á KR fyrir hendi, svo að Framarar jöfnuðu. KR- ingar undu þessu illa, og þegar leik lauk var hitinn orðinn það mikill að það þótti réttara að láta mig ganga út af undir lögregluvernd. Öllu laus- legu var kastað að mér, en ég slapp! Þegar ég hætti að þjálfa Val báðu Framarar mig að koma til sín og var ég þar í eitt ár eða svo, og svo vildi til að Fram og Valur voru í úrslitum það ár. Eitt sumar þjálfaði ég á Ak- ureyri, og var það fyrir milligöngu Ben. G Waage forseta ÍSÍ. Gekk það ágætlega. Ég minntist eins leiks þar þetta sumar við norskt lið af eftir- litsskipinu „Olaf Tryggvason“. Gestirnir voru nokkuð öruggir með að vinna leikinn, en það fór svo að Akureyri vann 5:0. Eftir leikinn spurði íþróttaleiðtogi skipsins hver það væri sem þjálfaði þetta lið, sem hefði sýnt svo góða knattspyrnu, og fékk hann þá að vita að ég hefði fengizt við það, og fannst mér það dálítil viðurkenning. Flutti at' landi burt 1938. Árið 1938 flutti ég alfarinn frá íslandi. Ástæðan var sú, að ég hafði mjög veik lungu, og hið raka loft á íslandi hafði mjög slæm áhrif á sjúk- dóminn. Ég fór til Harstad og fór þá á sjúkrahús þar og lá þar lengi. Þegar ég kom svo á fætur aftur, komu gömlu félagarnir mínir úr Har- stad Idrettslag til mín og spurðu mig hvort ég vildi þjálfa þá í knatt- spyrnu. Ég var tilleiðanlegur og byrjuðu æfingarnar í maí. Þetta gekk ágæt- lega og 4. sept. fór úrslitaleikurinn um meistaratitilinn fram í Norður- Noregi, og Harstad sigraði Nor frá Narvik með 2:1. Leikurinn fór fram í hávaðaroki og ausandi regni. Og ég fullyrði, að hér kom góð teknik að góðu haldi. Ég hafði kennt piltun- um að halda knettinum niðri, og rugl- aði Nor með snöggum skiptingum. Við sigruðum og Harstad varð Norð- ur-Noregs meistari, og hélt titlinum í mörg ár. Um nokkurt skeið varð ég að taka mér sérstaka hvíld, og fór þá til systur minnar sem bjó í Tynset, sem er byggð ofarlega í Austurdal. Þar var knattspyrnulið sem hét Tynset Idrettslag, og ekki hafði ég verið þar lengi þegar ég féllst á að þjálfa það lið, og ekki gekk það verr en það, að félagið vann sigur í því íþróttahér- aði með 6:0 í úrslitaleiknum. Kom þetta á óvart, því að flestir höfðu talið mótherjana bezta lið héraðsins. En lasleiki minn hélt áfram og eftir stríðið varð ég að fara á sjúkra- húsið á Hamar, og lá þar næstum heilt ár. Þegar ég hafði svo náð mér nokkuð komu forráðamenn Brumund- dalen Idrettslag til mín og báðu mig að þjálfa hjá sér. Og eins og fyrri daginn gat ég ekki sagt nei. Þar gekk þetta einnig vel. Fyrsta árið vann liðið 17 leiki, og gerði eitt jafntefli, og markamunur var 56 gegn 9, og þar af voru 5 sjálfsmörk, öll skoruð af sama manninum- Liðið komst þá upp í fjórðu deild, og á næsta ári komst það upp í þriðju deildinn. Þá lenti ég í deilu við stjórn félags- ins, og hætti ég þá að þjálfa meistara- flokkinn. Hins vegar tók ég að mér annan og þriðja flokk og gekk þeim vel. Þriðji flokkur varð héraðsmeist- ari það ár og annar flokkur næsta ár. Þriðji flokkurinn skoraði 83 mörk gegn 5 og annar flokkur 60 gegn 4 eða 5. Það var dálítið athyglisvert að mótherjarnir sögðu beinlínis við mig að þeim fyndist það eiginlega allt í lagi, þó að þeir töpuðu með 5 til 7 marka mun, fyrir Brumunddalen. Þetta er nú það sem ég hef að segja um „afrek“ mín, sem verður að telja léttvæg fundin. Viðhorf mitt til þjálfunar. Varðandi þjálfun almennt, hef ég alltaf haldið því fram, að það er ekki nóg að hlaupa og þjóta um allan völl og sparka óhugsað í knött. Þjálfun er allt annað. Fyrst og fremst grunn- þjálfun sjálfs líkamans. Leikmaður verður að hafa styrk, mýkt og jafn- vægi. íþróttaþjálfunin sjálf er tækni- legt nám hvers einstaks, sem verður að tileinka sér alla þætti knattspyrn- unnar, stóra og smáa. Auk þess verður að koma til mikil þekking á líkama mannsins. Við verðum að muna að í knattspyrnu er leikmaðurinn hin lifandi vél, en knötturinn dauður hlutur. Það er maðurinn sem verður að hafa vald yfir knettinum, en ekki það mótsetta. Þjálfarinn verður að þekkja þetta allt og leiðrétta galla og kenna nemandanum það rétta, og það er ekki þýðingarminnst, að segja leikmanninum hvers vegna það verði að gerast svona og svona. Hér liggur vafalaust aðalveilan hjá mörgum þjálfurum, að þeir vita ekki hvers vegna þetta á einmitt að gerast á þennan tiltekna hátt. Að þjálfarinn verði að krefjast góðrar framkomu, af hálfu leik- manna, er sjálfsgt. Ég hef áður minnzt á aga. Þjálf- arinn verður sjálfur að vera ákveð- inn og hafa fágaða framkomu. Hann á ekki að blanda sér of mikið í hóp piltanna, en halda virðingu þeirra í vissri fjarlægð. Sérstakleg má þjálf- arinn ekki taka einn fram yfir annan. Hann verður að vera réttlátur á öllum sviðum. Hann verður að segja skoðun sína, finna að því sem aðfinnsluvert er í ákveðnum tón, og svo er það búið- Það yrði of langt mál að koma inn

x

Valsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.