Valsblaðið - 11.05.1973, Blaðsíða 50

Valsblaðið - 11.05.1973, Blaðsíða 50
48 VALSBLAÐIÐ Nokkru eftir að ég kom hingað fór ég á knattspyrnuæfingar hjá Val. Ég hef átt bolta í nokkur ár og sparkað mér til gamans. Ég veit nú ekki hvort ég halla mér að honum eða ekki, enda er ég ekki búinn að ná tökum á hon- um sem skyldi. Ég hef horft dálítið á knattspyrnuleiki síðan ég kom í sumar og hef haft gaman að. Ég hlakka nú til að taka þátt í mót- um í vetur í körfuknattleiknum, þó að ég viti ekki með vissu út í hvað ég er að fara, en ég vona að þetta lærist smátt og smátt. Mér fellur vel við piltana, sem með mér eru á æfingum. Ég get nú lítið sagt um framtíð- ina, en bíð með nokkurri eftirvænt- ingu, að sjá hvað hún ber í skauti sínu. Flosi Sigurðsson fyrirliði í „Minni bolta“ Þessi ungi maður kom fram í þess- um þætti í fyrra og sagði hann þá frá byrjunarárunum, en nú ræðir hann um það sem skeð hefur síðan og það sem framundan er. Það er nú ef til vill undarlegt að segja frá því, að á s.l. keppnistíma- bili var ekkert mót fyrir M. B. (Minni bolta) á eðlilegum tíma eða að vetr- inum, en um sumarið var efnt til móts, en þá voru svo margir af okkar drengjum komnir í sveit að við gát- um ekki verið með. Ég er því mjög óánægður með þetta. Það er nú víst ákveðið að halda mót í M. B. í vetur eftir áramót og á það víst að vera Reykjavíkurmót. Ég veit ekki hvort það verða fleiri mót; íslandsmót eða Vormót. Við höfum náð saman góðum piltum, og það hefur verið vel æft undanfarið, ég er því bjartsýnn með árangurinn í vetur. Einmitt í dag ætlum við að koma saman í „Körfuhátíð" á Valsheimil- inu, þar sem sýndar verða fræðslu- kvikmyndir af körfuknattleik, og auð- vitað verða þar veitingar með. Á eftir verður svo æfing í tvo tíma. Vona ég að þetta lið, sem við er- um með núna, haldi hópinn og gangi svo saman upp í fjórða flokkinn næsta ár. Ég kem að því aftur að mér finnst misráðið að hafa ekki nokkur föst mót fyrir M.B. á hverjum vetri, helzt 3— 4, og svo auk þess smámót hjá félög- unum, þar geta þjálfararnir leiðbeint okkur meira en á æfingum. Ég held að Valur ætti að koma á æfingaleikj- um við og við í vetur á æfingatímum sínum. Mér fellur vel hjá Val, gott að hafa öruggan samastað og aðgang að félagsheimili fyrir fundi. Mér finnst góðar reglur í félagsheimilinu og sjálfsagðar. Þar eru líka góðir hús- verðir og umgengnin þar góð að mér finnst. Helgi Gústafsson 3. flokkur Ég byrjaði fyrir alvöru rétt áður en Körfuknattleiksfélag Reykjavíkur sameinaðist Val. Svo fór ég að keppa á síðasta keppnistímabili. Það gekk nú ekki allt of vel, það var lítil festa í þessu hjá okkur, þessir drengir voru að koma og fara. Ég held nú að þetta sé að lagast. Við þekkjumst betur og eigum heima nálægt hver öðrum. Ég held því að þeir dreng- ir, sem nú eru í þessu, æfi vel í vetur. Þjálfarinn okkar núna heitir Ingvar og okkur fellur vel við hann. Það hafa nú ekki verið umræðufundir um körfuna með fullorðnum, en við tölum oft saman um leikinn eftir æf- ingar, og þá tölum við um það sem vantar á. Mér fellur félagslífið vel og hef haft gaman af að vera með í þessum körfuveizlum, þar voru sýndar góð- ar kennslumyndir í körfuknattleik, og svo eru veitingar þar líka. Ég mæli með því að framhald verði á svona samkomum og þá sérstaklega fyrir iðkendur M.B. Ég vona svo að þetta gangi betur en í fyrra, vona að við náum saman og það ætti að takast þar sem við þekkjum nú betur hvern annan. Jón I. Ragnarsson. Þessi ungi efniiegi körfuknattleiks- maður kom fram hér í þættinum í fyrra og rakti hann þar feril sinn í Val, svo að núna segir hann frá liðnu ári, sem var viðburðaríkt. Það verður ekki annað sagt en að það hafi gengið vel hjá okkur á síð- asta keppnistímabili. I þeim tveim mótum sem við tókum þátt í töpuð- um við aðeins einum leik og það var úrslitaleikurinn í Reykjavíkurmót- inu. Ég held að ástæðan hafi verið sú, að við vanmátum okkur. 1 íslands- Jón I. Iíagnarsson fyrirliði 2. fl. A mótinu vildi svo til að við unnum sama lið 3 sinnum, en það var KR. Okkur er nú alltaf að fara fram og með fleiri leikjum og endurtekn- ingum sömu manna fer þetta í ákveð- ið „kerfi“. Annars er erfitt fyrir mig að greina sérstakar framfarir. Við æfum saman, við keppum saman og við ræðum saman um þetta þegar tími er til, og við erum margir sam- an í skóla (M. R.). Það er alltaf gam- an að sigra, og ég tala nú ekki um þegar sigurinn gefur íslandsmeistara- titil, og það í fyrsta sinni, en það gerðist á liðnu ári. Keppnin af okkar hálfu var nokkuð örugg, en við áttum þó í erfiðleik- um t. d. gegn lR í fyrri umferð, þá vorum við undir í stigum í hálfleik. Þá var rætt eins og hægt var þennan stutta tíma um hvað gera skyldi. Eft- ir það gekk allt miklu betur og end- aði leikurinn með öruggum sigri okk- ar að lokum. Við vorum einnig oft smeykir við KR og eins HSK. Sjálfur úrslitaleikurinn bauð upp á mikla taugaspennu, en við vorum heppnir og vorum yfir allan tímann. Það kom ekkert fyrir sem setti okk- ur út af laginu, en alltaf vorum við smeykir þar til leiknum var lokið. Farið var í keppnisför vestur á land, og svo fórum við oft suður á Keflavíkurflugvöll og kepptum þar og lærðum við mikið á því. Svo stundaði ég nú knattspyrnu nokkuð í sumar með Fylki, því að ég hef alltaf gaman að sparka bolta, og þó ég geri það fyrst og fremst mér til skemmtunar, þá er það viss þjálf- un, því að maður má eiginlega aldrei hætta alveg. Það tekur þá svo lang- an tíma að komast í þjálfun aftur. Eins og ég áður sagði komum við mikið saman fyrir leiki og á eftir til að ræða það sem á bjátaði. Mér lízt vel á komandi keppnistíma- bil, því það verður sama lið og á liðnu ári. Það verður því eitthvað sérstakt að ske ef mikil breyting verður og ég hef ekki trú á því. Ég vil koma hér á framfæri áskor- un til stjórnar KKÍ að sjá sóma sinn í því að láta komandi keppnistíma- bil verða ekki eins laust í reipunum og verið hefur. Má þar og nefna dóm- aramálin sem þurfa mjög að endur- skoðast.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Valsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.