Valsblaðið - 11.05.1973, Síða 53

Valsblaðið - 11.05.1973, Síða 53
VALSBLAÐIÐ 51 inu og ég hef getað, svona sem áhorf- andi. Hingað hef ég komið á Vals- daginn þegar ég hef getað og ég sé eins marga leiki og ég get þegar Val- ur er að keppa. Gróska er mikil í Val, að mínum dómi, og hér er allt á uppleið eins og sjá má. Hvattir þú Sigurð til að ganga í Val á sínum tíma? Nei, ég þurfti þess ekki, áhuginn hjá honum var mikill fyrir íþrótt- „Að við séum menn nieð mönnum“ Hvað er það sem bindur menn sam- an í íþróttafélagi ? Er það aðeins hugsunin um að iðka íþróttir og keppa í kappliði eða er það eittlivað annað og meira? Sjálfsagt yrðu svör við þessari spurningu tvíþætt eða jafnvel meira. Flest munum við liafa gengið í Val moð þá hugsun fyrst og fremst að æfa íþróttir og keppa síðan untlir nafni félagsins í okkar rauðu og hvítu búningum, yrðurn við nógu góð hver í sinni grein til þess að fé- lagið gæti liaft not af okkur í því kappliði, sem við tilheyrum, íþrótta- greinalega og aldurslega séð. En þeg- ar við höfum kynnzt íþróttafélagi eins og Val, þá sjáum við að það þarf meira til ef félag á að dafna, en bara íþróttafólkið sjálft. Við þurfum for- ustumenn fyrir félagið í heild og fyrir liverja deihl fyrir sig og þótt ótrúlegt sé, hygg ég flesta sammála um að árangurinn hjá félaginu hverju sinni fari eins mikið eftir því hve góða for- ustumenn við eigum eins og hinu live marga virka íþróttamenn við eigum. En það er ekki nóg að fá góða menn til forustu í félaginu hafi þeir ekki þann félagslega stuðning frá einstakl- ingum innan félagsins sem nauðsyn- legt er hverri stjórn félagsins eða deildarstjórn. Þessi stuðningur kem- ur fyrst og fremst fram í því að hver einstakur félagi í Val láti sig félagið og málefni þess einhverju varða. Vissulega getur svo háttað til lijá fólki að því gefist ekki kostur til fé- lagslegra afskipta sem það óskaði sjálft, eða sem æskilegt er að hver og einn meðlimur félagsins láti af liendi. En margt smátt gerir eitt stórt. Dagur Hannesson, mikill áhugamaður um knattspyrnu. Ásmundur Ásmundsson og Magnús Þór. Á myndina vantar Ásmund yngri. um og hann valdi sjálfur félagið sem hann vildi ganga í. Reynsla mín af íþróttafélagi á borð við Val er sú, að hollari uppeldisstofnanir séu ekki til fyrir börn og unglinga. Við sjáum að þau börn og unglingar, sem ekki eru svo lánsöm að kynnast félagslífi í íþróttafélögunum, eiga oftast göt- una að leikvelli og síðar kannski eitt- hvað annað verra. S.dór. Við stöndum nú frammi fyrir því Valsmenn að nauðsynlegt er að byggja nýjan knattspyrnuvöll, og að nauðsynlegt er að byggja nýtt íþrótta- liús. Þessi tvö verkefni eru orðin mjög aðkallandi, þótt bygging vallarins sé númer eitt sem stendur. Það er vitað mál að við getum ekki komið vellin- um upp nema með samstilltu átaki allra félaga í Val, hvaða deild innan félagsins sem þeir tilheyra. Á alveg sama veg getum við lieldur ekki kom- ið upp nýju íþróttaliúsi þegar þar að kemur, sem vonandi verður næsta átakið að vellinuin fullgerðum, nema að sameiginlegt átak komi til. Þetta sameiginlega átak er ekki bara að gefa eitt eða tvö þúsund krónur til sjóðs er sjá skal um framkvæmdir. Þetta sameiginlega átak byggist á því að hver og einn Valsmaður sé tilbú- inn að koma að Hlíðarenda og gefa svo og svo margar vinnustundir við völlinn og húsbygginguna þegar þar að kemur. Við Valsmenn höfum alltaf talið okkur aðeins framar en KK-inga og viljum lialda okkur þar. KR-ingar sýndu gott fordæmi um félagslega þroskað fólk, þegar þeir byggðu nýja íþróttaliúsið sitt fyrir nokkrum ár- um. Það var ekki nóg með að leitað væri til manna um fjárhagslegan stuðning við byggingu liússins, held- ur var stór, já, mjög stór liópur manna í 2 ár, tilbúinn að koma í frí- stundum sínum og gefa vinnu við húsið. Þetta, og einmitt þetta, er það sem við Valsmenn þurfum að gera og það strax í vor, þegar hafizt verð- ur lianda fyrir alvöru við gerð knatt- spyrnuvallarins. Við þurfum „að sýna það og sanna að við séum menn með mönnum, sem markinu viljum ná“ og að við séum enn aðeins framar KK- ingum félagslega séð og að við, með sameiginlegu risaátaki, ljúkum gerð vallarins í sumar og íþróttahússins á eins stuttum tíma og liægt er þegar þar að kemur, sem vonandi verður sem fyrst. S.dór.

x

Valsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.