Valsblaðið - 11.05.1973, Qupperneq 54

Valsblaðið - 11.05.1973, Qupperneq 54
52 VALSBLAÐIÐ Frímann Ilclgason: Konan á bak við Þegar við tökum saman efni blaðs- ins, er þátturinn „Konan bak við Vals- manninn" orðinn jafn sjálfsagður og aðrar frásagnir af mönnum og mál- efnum félagsins. Eins og við höfum áður sagt er valið alltaf erfitt, því að svo margar eru verðugar þess að koma þar fram og margar, sem Vai- ur stendur í þakkarskuld við. Þær eru svo margar, sem beint og óbeint leggja hönd á plóginn og vinna þann- ig að velgengni Vals. Til álita í þetta val koma allar eiginkonur þeirra Valsmanna, sem vinna störfin utan vallar, og oft geta verið tímafrek, og ef til vill hálf-leiðinleg. Þar koma líka til konurnar, sem verða að vera án eiginmanna sinna flestar helgar sum- arsins. Ef til vill má líta svo á, að því meira sem hvílir á herðum bónd- ans, verði það honum kærkomnara að njóta skilnings og góðra orða og ráða um það sem eiginmaðurinn er að bjástra við. Að þessu sinni er það formaður félagsins, sem þessi kona stendur á bak við, en eins og allir vita er það Þórður Þorkelsson. Það var engin til- vdiun á sínum tíma að hann var Kjör- inn formaður. Um áratuga skeið hafði hann verið virkur í starfi á mörgum sviðum fyrir Val og var því allra manna kunnugastur því sem var að gerast í félaginu á hverjum tíma. Hann var einnig virkur keppandi í íþróttum bæði í knattspyrnu og þó sérstaklega í handknattleik. Ýmis nefndastörf tók hann einnig að sér, verið í stjórn félagsins og deilda og formaður þar. Það var sama hvaða verk hann tók að sér, hann leysti þau með þeirri samvizkusemi, að á betra verður ekki kosið. Hann skilaði störfum sínum alltaf betur en gert var ráð fyrir og var honum þó í engu vantreyst. Þetta hlýtur að sjálfsögðu að hafa þýtt það, að eiginkonan og heimilið hefur ekki getað haft hann stöðugt sér við hlið, þar hefur Valur komizt svolítið „upp á milli“. En við, sem lít- um á Val sem aðila er miklu sé fórn- andi fyrir, vonum alltaf að hún og hin helgu vé þeirra bíði á engan hátt tjón, eða a. m. k., að sem sárabætur komi margháttaðar minningar sem megi Valsmanninn varðveita og ylja sér við, þegar „kyrrðin færist nær“. Konan bak við Þórð Þorkelsson heitir Svanhildur Guðnadóttir, Reyk- víkingur í húð og hár, og eiga þau eina dóttur, sem þó hefur ekki ílenzt í Val, er mikil útivistarmanneskja, fer mikið á skíði og starfar að þeim málum í Ármanni. Við skulum nú heyra hvað hún hefur að segja um viðhorf sitt til íþrótta og félagsmála og þess að sitja og bíða bónda síns, sem oft er held- ur lengi á fundum og leikjum, að leggja á ráð til eflingar Val og sjá leiki með misjöfnum eftirköstum. Hefur þú iðkað íþróttir og þá hvaða ? Svolítið hef ég fengizt við það. Byrjunin var sú, að ég iðkaði sund með Glímufélaginu Ármanni, einnig æfði ég dálítið handknattleik þegar Grímar Jónsson þjálfaði Ármanns- stúlkurnar, en ég var lítil keppnis- manneskja. Aðallega voru það þó skíðaferðir, ég var mikið með Ár- menningum í Jósefsdal. Byrjaði þar fyrir alvöru, eftir að skíðaskálinn þar brann. Ég vann við að byggja hann upp aftur og leggja veginn þangað uppeftir. Sumartíminn fór í að byggja skálann og svo voru skíðaferðir á veturna. Þetta voru mér ógleyman- legar stundir og enn förum við á skíði við og við. Þetta var mjög samstillt- ur hópur og margt skemmtilegt gerð- ist. Annars hef ég alltaf verið mikið fyrir útilíf og hef skoðað mikið af landinu okkar með Farfuglum. Það gæti nú litið svona og svona út að vera mikill Ármenningur, en Þórður er nú víst ekki sá fyrsti, sem leitar sér kvonfangs í Ármanni. Ég horfi dálítið á iþróttakeppnir, mér finnst það mjög spennandi, sér- staklega ef maður heldur meira með öðru liðinu, og þá er mér sama hvaða keppni er. Annars dái ég mest fim- leikasýningar og listhlaup á skaut- um, vegna þeirrar fegurðar, sem þar kemur fram. Hafa ættmenn þínir iðkað íþróttir? Ekki neita ég því, elzti bróðir minn, Ragnar, var góður sundmaður á sín- um tíma og efnilegur, en hætti of snemma og fór til sjós. Páll bróðir Svanhildur Guðnadóttir. minn var virkur leikmaður í Val, tók mikinn þátt i stjórnarstörfum og var í allmörg ár formaður Vals, svo þetta virðist vera eitthvað í blóðinu. Manst þú eftir leik, sem þú hefur horft á, sem hefur næstum því feng- ið þig til að arga? Mér er nú eiginlega minnisstæð- astur leikur Vals við Benfica hérna um árið, maður gargaði ekki, heldur stóð á cndinni, að ekkert mark skyldi koma. Maður stóð hljóður og undr- andi í þessari spennu. Svona leikir eru spennandi og skemmtilegir. Telur þú að íþróttir séu holl tóm- stundaiðja fyrir unglinga? Ég held að hver sá, sem ekki kemst í snertingu við þær, fari mikils á mis. Þetta er einstakur andi sem menn lifa og hrærast í við íþróttir og fé- lagslíf. Mér finnst það sjálfsagður hlutur, og má segja nauðsynlegt fyr- ir unglinga að hafa íþróttir sem áhugamál. Eitthvað verða þeir að hafa, og hvað finna þeir betra, og ég ráðlegg ungu fólki tvímælalaust að æfa íþróttir. Ræðið þið hjón mál Vals, eins og þau liggja fyrir hverju sinni? Maður kemst nú ekki hjá því, þetta er svo sterkt og ofarlega í samræð- um yfirleitt, þetta kemur alltaf upp. Málin eru rædd fram og aftur. Stund- um hef ég gaman af því, ef það verð- ur ekki of mikið, en það er að vísu ánægjulegt að fylgjast með því sem er að gerast, og þá sérstaklega þegar vel gengur og það getur verið gam- an að ræða, hvernig hægt sé að leysa vandamálin og sjá hvernig þeim reið- ir af. Það kemur sem sagt oft fyrir að við ræðum málin. Spyrji hann mig álits, segi ég það sem mér býr í brjósti, hvort sem það fellur að hans skoðunum eða ekki. Ert þú áköf Valsmanneskja?
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Valsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.