Valsblaðið - 11.05.1973, Page 55

Valsblaðið - 11.05.1973, Page 55
VALS BLAÐIÐ 53 Jón (>n«)ii!nndsson : Frá Noregsferð //. ilokks knattspyrnumanna Það væri ekki hægt að komast hjá því i því andrúmslofti sem ég lifi og hrærist í, svo maður verður það óneitanlega, og óskar Val heldur sig- urs en mótherjanum, og jafnvel þó að það væri Ármann. Nú hefur Þórður bóndi þinn verið sérlega virkur Valsmaður um langan tíma, bæði sem keppandi og ekki síð- ur ötull við stjórnstörf, og nú síðast formaður. Hvaða áhrif hefur þetta á þig og hvert er viðhorf þitt til slíkr- ar elju eiginmannsins? Ég veit nú varla hverju ég á að svara. Það er sjálfsagt og skemmti- legt fyrir menn að hafa tómstunda- störf, en það getur gengið of langt, en stundum finnst mér það of mikið og oftast verður það reyndin hjá þeim, sem sökkva sér í þetta. Það hefur líka sinar ánægjulegu stundir, sér- staklega þegar vel gengur. Ég veit ekki hvaða áhrif það hefur á mig beinlínis. Ég játa að það er gaman þegar hann kemur ánægður heim og get- ur sagt frá sigri einhvers flokks eða að gott málefni hafi verið leyst. Þessi miklu störf geta komið niður á vinn- unni, sem þýðir að vinna verður leng- ur á kvöldin, en nú fer þetta að lag- ast. Því er ekki að neita, að ég hef líka haft margar gleðistundir í sambandi við Val. T. d. verður mér ferðin til Portúgal, þegar Valur fór til keppni við Benfica, ógleymanleg að öllu leyti. Þar var margt nýstárlegt að sjá og Valspiltarnir góðir og skemmtilegir ferðafélagar og margt annað mætti nefna. Hefur dóttir ykkar áhuga fyrir íþróttum ? Hún er félagi í Ármanni, svo þú sérð að betri helmingurinn er í Ár- manni! Hún fer mikið á skíði og þá í Jósefsdal og tekur virkan þátt í félagslífinu þar. Áhugamál utan félagsins? Þau eru nú fá, nema þetta sem all- ar konur stunda meira og minna — saumaklúbba. Og svo að lokum svolítil samvizku- spurning. Heldur þú að Þórður hefði verið betri eiginmaður ef hann hefði setið heima öll kvöld eftir endaðan vinnudag? Það er víst erfitt að vera betri, en ég þekki hann ekki öðruvísi en í Val, þannig að svo komnu máli get ég ekki svarað þessu, en eftir næsta aðalfund ætti ég að eiga hægara með það. Það kom hér að dyrunum til mín gamall og góður Valsmaður og spurði, hvort Þórður væri við, en ég svaraði og brosti við: Hann skrapp heim til sín, en hann ætlar ekki að vera lengi. Hann skildi hvað ég var að fara og brosti og bætti við: Hann kemur hingað stundum, er það ekki! Þegar við stigum út úr flugvélinni á Fornebu-flugvelli í Osló 19. júlí síð- astliðinn, skartaði Noregur sínu feg- ursta veðri, glaðasólskini og næstum þrjátíu stiga hita. Við höfðum að sjálfsögðu komið kappklæddir úr rigningunni hérna heima, svo að við vorum ekki beinlínis undir það búnir að mæta þvílíkum breytingum. Við vorum því neyddir til að fækka svo- lítið fötum. Vonandi að við höfum ekki sært sómatilfinningu viðstaddra. Á flugvöllinn voru mættir stjórnar- menn og leiðbeinendur frá íþrótta- félaginu í Brummunddal, en þeir voru ráðnir til þess að vera aðalaðstoðar- menn okkar meðan á ferðinni stóð. Þessir ágætismenn buðu okkur að stíga í rútubíl, sem beið fyrir utan flugstöðvarbygginguna tilbúinn að flytja okkur til Brummunddal. Ferð- in þangað átti að taka um 3 tíma, eða jafn lengi og flugferðin yfir At- lantshafið til Noregs tók. Allir, sem ferðast hafa í rútubílum, eru líklega mjög sammála um að það sé ekki sérlega skemmtilegt, allra sízt í mikl- um hita. Við fengum illyrmislega að kenna á þessu, enda þreyttir og hálfsyfjaðir. Þó hresstumst við að- eins þegar okkur var skammtað Sóló og Maríukex, en það virtist vera svip- aður ,,kokteill“ og Kók og Prins Póló er hér heima. Þetta snarl var að sjálf- sögðu vel þegið, því að við höfðum ekki smakkað ætan mat frá því heima á íslandi um morguninn. Svo var það loksins um klukkan fjögur að við komum til Brummund- dal. Eftir að við höfðum komið okkur fyrir og fengið okkur eitthvað sval- andi að drekka, vorum við allir orðn- ir nýir menn í góðu skapi, sem hélzt auðvitað út alla ferðina. Strax eftir komuna var okkur boðið til veizlu á aðalhótelinu í bænum, „Hotel Hede- marken“, en þar fengum við í fyrsta skipti, en ekki það síðasta, að bragða á kræsingum sem nefnast karbúnaði og ís með jarðarberjum. Annars er mataræðið í ferðinni efni í sérstaka grein eða jafnvel bók. Brummunddal er mjög fallegur bær um 200 km fyrir norðan Osló, íbú- arnir eru eitthvað um 15 þúsund, og lifa þeir mest á iðnaði og landbún- aði. í bænum eru tvær stórar verk- smiðjur, önnur framleiðir ýmiskon- ar trjáafurðir, en hin framleiðir gos- drykki, ávaxtasultu o. fl. Síðar í ferða- laginu var okkur boðið í kynnisferð í báðar þessar verksmiðjur. Umhverfi Brummunddals er hrífandi og vin- gjarnlegt, enda allt öðru vísi en við eigum að venjast. Staðurinn, sem við dvöldum á, heitir Sveum og þar er aðalknattspyrnuvöllur bæjarins. Sve- um var dálítið fyrir utan aðalbæinn, svona um stundarfjórðungs gangur þangað. Þennan fyrsta dag máttum við vera úti til klukkan tólf og var sá tími óspart notaður til þess að kanna bæ- inn, íbúana og síðast en ekki sízt stúlkurnar, sem eins og við mátti búast, léku við hvern sinn fingur með- an á dvöl okkar stóð. Þegar klukkan nálgaðist miðnætti voru menn að tínast upp til Sveum, og allir voru komnir þangað á rétt- um tíma nema einn. Við hinir viss- um að þetta var hinn mesti sóma- piltur, svo að við vorum ekki með neinar áhyggjur hans vegna. Þegar við vorum að því komnir að sofna kemur kauði heldur en ekki kampa- kátur eftir vel heppnaða skógarferð. Líklega hefur hann tafizt við að borða hið ágæta súkkulaði Freia-Firklöver, því að hann kunni sér ekki magamál í súkkulaðiáti. Um klukkan 11 morguninn eftir var fyrsta æfing okkar á erlendri grund, einnig sú erfiðasta sem ég hef tekið þátt í. Eftir æfinguna voru menn vægast sagt illa á sig komnir, því að hitinn var okkur lifandi að drepa. Sem betur fór vöndumst við hitanum nokkuð fljótt, þannig að eft- ir nokkra daga hafði hann lítil áhrif á okkur. Það verður að segjast, að annað kvöld okkar í Noregi var nokkuð sér- stætt, því að þá átti sér stað í fyrsta skipti skemmtiatriði sem átti eftir að fá nafnið ,,show“. Þessi show voru framkvæmd af hinum sílétta Sigurði Harðarsyni, betur þekktur undir nafn- inu Silli. Þau samanstóðu af alls kon- ar bröndurum, frumsömdum drauga- sögum og kroppasýningum og allt fór þetta fram á dönsku. Showin hlutu

x

Valsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.