Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1909, Page 9
ALMHNAK 1909.
3
Páskatímabilið.
Kirkjuþingfið í N'icæa, er haldið var árið 325 ef'tir Krists fæðing-,
ákvað og leiddi í lög kirkjunnar, að páskahátíðin skyldi ætíð haldin
vera hinn fyrsta sunnudag eftir fyrsta tungl, er springi út næst eftir
20. marzmán. Samkvæmt ákvæði þessu getur páskahátíðin átt sér
stað á 35 daga tímabili, nefnilega á tímabilinu frá 22. marz til 25.
apríl, að þeim dögum báðum meðtöldum. Þetta tímabil er nefnt
páskatímabilið. Af þessu leiðir, að cf tungl væri fult 21.
marz, og 22. marz bæri upp á sunnudag, þá yrði sá dagur (22.)
páskadagur. Fyr á ári geta páskar aldrei orðið. Þetta átti sér
stað árið 1818. En sé tungl fu't 18. apríl, og 18. apríl bæri upp á
sunnudag, yrði næsti sunnudagur páskadagur, nefnil. 25. apríl.
Það kom fyrir árið 1886.
Pláneturnar.
VENUS er morgutistjarna til 28. Apríl, kveldstjarna til ársloka,
MARZ er morgunstjarna til 24. sept., sfðan kveldstjarna.
JÚPITER er morgunstjarna til 25. febr., þá kveldstjarna til 18.
sept, síðan morgunstjarna tíl ársloka.
SATURNUS er kveldstjama til3. apríl, morgunstjarna til 13.
okt., kveldstjarna til ársloka.
Páskadagur.
1910 1915 • ■ • • 4. Apríl
1911 ic)i6
1912 7. Apríl ' 917 8. Apríl
>9>3 1918
1914 ■9'9
1920
Sóltimi.
Sólarhringur er sú tímalengd, er líður á milli þess,ersólin geng-
vir yfir ákveðna hádegislínu, og það hin eðlilegasta skifting tímans.
En sökum hinnar mismunandi hréyfingar jarðarinnar umhverfis sól-
ina og sökum bugsins á sólargangslínunni (Ecliptic), er aldrei ná-
kvæmlega jafn-langur tími milli þess, er sól gengur yfir ákveðna
línu. Af því leiðir, að það er lítt mögulegt að setja stundaklukku
eftir sól. Til að ráða bót á þessum mismun, setja menn svo að önn-
ur sól sé til, og að hún gangi með jöfnum hraða þvert vfir miðjarðar-
b'nunni. Er sú ímyndaða sól þá stundum á undan og stuudum á eitir
binni einu virkilegu sól. Er sá mismunur mestur 16 mínútur. Rétt-
ur sóltími er miðaður við hina virkilegu sól, en hinn svo kallaði
,,meðal sóltími11 aftur á móti, er miðaður við hina ímynduðu sól.
Til skýringar má geta þess að það er að eins á tveimur dögum á
árinu — á jafndægrum haust og vor — að „meðal sóltíma11 og rétt-
um sóltíma ber saman, því áþeim tveim dögum að eins er buglínan
eða sólargangslínan yfir iúiðjarðarlínunni.