Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1909, Blaðsíða 11
5
ALMANAK' 1909.
Litur loftsins um sólsetur.
Þegar himininn er gráleitur og myrkur um sólsetur, eða slái á
hann grænum eða gul-grænum Iit, er regn í vændum. Rautt sólar-
lag með skýjum, er verða myrkari, þegar fram á nóttina líður boðar
einnig regn.
Baugur um sólina.
Með baug um sólina meinum vér hina stóru hringi, eða hring-
parta, er liggja um sólina. Þegar baugur sést um sólina eftir gott
veður, má búast við regni.
Kóróna.
Með kórónu meinum vér smáa hringi, er sjást oft um sólina eða
tunglið. Þegar kórónan fer minkandi, bendir það á regn, stækki
hún, er fagurt veður í vændum.
Regnbogar.
Regnbogi að morgni dags er álitinn boða regn; regnbogi að
kveldi, fagurt veður.
Litur himinsins.
Þegar þykkur, djúpur blámi sést á himninum, jafnvel þótt hann
sjáist gegnum skýjað loft, boðar það fagurt veður; verði bláminn
ljósari (hvítari), er stormur í nánd.
Þoka.
Þokur benda á staðviðri. Morgunþoka er vanalega horfin um
hádegi.
Skafheiður hirnin.
Þegar gufuhvolfið er óvanalega skírt, og mjög stjörnubert er,
og þær sýnast eins og deplar, er regn í vændum.
Skýin.
Þegar vér athugum skýin, gefuni vér gætur að, hvers konar
ský það eru, hvernig þau hreyfast og hvernig þau eru í lögun. Ský
þau , er menn oft nefna ,,hestatögl“, köllum vér þráðaský (Cirri).
Einkenni þeirra er, að þau sýnast eins.og þunnur veftir, er hangir
lauslega saman eins og tagl á hesti, eða þau sýnast fléttuð saman
eins og hin fjarlægu ský, er mynda sólarhringina. Litlar, reglulega
myndaðar þyrpingar af skýum þessum sjást oft fyrir stöðugu blíð-
viöri. En þráða-ský eru líka stundum fyrirboði storms. Þegar þau
boða storm, eru þau vanalega þéttari (fleiri) og liliðar þeirra skörð-
óttar, og þá verða þau oftast að hvftleitum, löngnm skýbakka. Ský
PAiii er alment eru kölluð ,,baðmullar-sekkir“, eða ,,þrumuhöfuð“,
köllum vér skýja-þyrping (Cunjulus). Þegar þau sjást um heitasta
ttma dagsins, en hverfa með kvöldínu, er framhaldandi blíðviðri í
vændum, Þegar þau aukast skyndilega, síga langt niður í gufu-
hvolfið, og hverfa ekki undir kvöldið, mun brátt von á regni. Þegar
Smáský v"'ðast eins og slitna frá þeim, jná búast við skúrum.
f 1 c" er/\iást vanalegast: eftir miðnæt'i, sýnastliggja marflöt og
taka yfir mikið svæði, boða fagurt veður. Lítil svört vindaský eru
tyrirboði regns.
Loftþvngdarmælir.
Þegar vér notum loftþyngdarmæli, er áríðandi að gefa gætur að