Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1909, Page 72
50
ÓLAFUR s. thorgeirsson:
hafði Björn unnið liverja klukkustund frá því hann kom
;til Winnipeg og þangað til hann lagðist. Þegar bati fór
.að koma, rétti hann furðu fljótt við aftur, svo liann komst
á fætur um miðjan vetur. Og að sex vikum liðnum var
’.hann farinn að vinna hæga vinnu. Hér um bil ári áður
höfðu fyrstu landnemar sezt að á jörðum sínum í Argyle-
bygð. Hugur Björns stóð enn sem fyrr til búskapar og
.akuryrkju. Tók hann sér ferð á hendur vestur til að líta
eftir landkostum. Varð það úr, að hann nam þar land f
marzmánuði vorið 1882. Máttu þáallir, sem gátu, ánafna
sér tvennar 160 ekrur, annað heimilisréttarland (home-
stcad) svo nefnt, hitt með forkaupsrétti (preemption).
Björn langaði til að ná í hvorttveggja, en varð að taka 10
dali til láns hjá kunningja sínum til þess að getá greitt
skrifstofugjaldið. Að því bútiu fór hann til Winnipeg
.aftur og vann daglaunavinnu alt það sumar, þangað til
18. okt. um haustið. Varð hann þá að fara að gegna
skyldum sínum á landinu. Reist.i liann torfkofa til íbúð-
ar, eins og þá var títt, 6. nóvember og var að því starfi
ekki lengur en svo sem viku tíma. Þar settist hann að
með konu sína og eitt barn 6. jan. 1883. Eigi var bú-
stofn fjölskrúðugur. Hann átti eiria kú, akneyti til hálfs
við annan mann og 15 dali í peningum, til lífsnauðsynja.
Um veturinn varð hann að leyta sér atvinnu með innlend-
um bónda og starfa að skógarhöggi, til þess að geta
framfleytt sér og sínum.
Um vorið átti hann fjórar ekrur lands plægðar.
Hafði hann látið plægja þær um leið og hann ánafnaði sér
lönd sín. J þenna litla akurblett sáði hann um vorið
hveitikorni mestmegnis, en auk þess jarðeplum og garð-
ávöxtum. Um haustið fekk hann 23 bushel-mál af ekru
hverri og góða uppskeru af jarðeplum. Sumarið 1883
gat hann plægt 10 ekrur í viðbót, en varð það sumar að