Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1909, Síða 92
70
ÓLAFUR s. thorgeirsson:
brátt hjá honum óslökkvandi þorsti eftir þekkingu, og
varöi hann þá öllum frístundum sínum í bókalestur. En
bækur voru færri á þeim dögrim í hinum nýbj'göu héruö-
um en nú á tímum, og voru helztu bækurnar, er Abraham
las, reikningsbók, biblían, Esóps dæmisög'ur, Robinson
Crusoe, æfisaga Washingtons eftir Weems, Pílagríms-
förin (eftir Milton) og saga Bandaríkjárina. Af því pilt-
urinn Abraham Lincoln í æsku sinni (áskeiöinu frá 10—17
ára) stundum húkli út í skógi eða sat á skíögarði svo
klukkutímum skifti með bók, ályktuðu sumir grunnhygn-
ir menn að hann væri latur. En það var þekkingar-
þorstinn, sem stundum kom honum til að forsóma verk
sitt vegna bókarinnar. Á kvöldin lá hann á kviðnum fyr-
ir framan eldstæðið, og með því hann hafði hvorki pappír
né spjald, skrifaði hann og reiknaði með viðarkoli á tré-
rekuna, á borðastúfa, eða á flöt á trjádrumbum, sem hann
tegldi stafina af þegar hann vildi aftur rita á þá.
Abraham Lincoln hefir verið lýst svo þegar hnnn var
17 ára, að hann hafi verið 6 fet og 4 þuml. á hæð, óvenju-
lega útlimalangur, með stórar hendur og fætur, og ólið-
lega vaxinn' í heild sinni; húðin hafi verið þur og gulleit,
hárið svart og sítt, andlitið magurt, auguri grá og þung-
lyndisleg, í djúpum tóptum, kynnbeinin há, nefið fremur
klumbulegt, munnurinn nokkuð stór — í stuttu máli,
maðurinn hafi verið ólánlegur á velli og ófríður. En
þrátt fyrir þetta unnu menn honum alment og virtu hann
sakir gáfna hans, góðlyndis, drengskapar, ráðvendni og
annara mannkosta.
Um þessar mundir, eða þegar Abraham Lincoln var
17 ára, gekk hann 9 mílur á dag á skóla um tíma, en á
kvöldin las hann lagasafn Indiana-ríkis. Hann las þetta
safn svo vel, að hann kunni það hér um bil utanbókar,
enda hafði hann ágætt minni. Mun þessi lagalestur fyrst