Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1950, Side 35
ALMANAK
37
til vesturs, en 12 til 14 mílur frá suðri til norðurs, eða alla
leið norður að Vötnunum. Þetta umrædda svæði er fyrir
sunnan-austan, og þó mest fyrir norð-austan og norðan
Wynyard, því að eins og þegar er tekið fram, hefir áður
verið sagt frá þeim, sem tóku sér bólfestu fyrir vestan
þann bæ. En þeim til skilnings auka, sem eitthvað þek-
kja til afstöðu þessa héraðs, læt eg þess getið, að eg byrja
að telja frá suður-takmörkum Towriship 32, Range 16,
og einnig Township 32, Range 15.
Verði einhverjir eftirskildir fyrir vangá, eður af öðrum
ástæðum, verður þeirra getið síðar, ef kringumstæður
leyfa. Eins þehi’a, er síðar komu í nýlenduna.
Jón Jónsson Westdal. Foreldrar hans voru Jón Stef-
ánsson og Steinunn, er bjuggu á Hvoli í Borgarfirði
eystra í Norður-Múlasýslu. Kona hans var Anna Kristrún
Gunnlaugsdóttir Jónssonar og Maríu Einarsdóttur frá
Brú í Jökuldal. Þau Jón og Anna fluttu til Ameríku frá
Torfastöðum í Vopnafirði 1904. Eftir stutta dvöl í Win-
nipeg og Argyle komu þau hingað vestur og náðu hingað
14. nóv. Það þarf áræði og kjark til að setjast að úti á
eyðimörk í ókunnu landi og ganga á hólm við candiskan
vetur, húsnæðislaus með konu og börn. Þó bætti það úr,
að börnin voru sum að verða fullorðin og hin orðin það.
Fyrsta verkið var að koma upp einhverju skýli. Var það
gjört eftir íslenzku bæjarsniði, stungið upp torf og reft
yfir með skógarenglum. En aðal máttarviðinn urðu þeir
að bera langar leiðir, því að engin voru akneytin að
grípa til.
Börn þeirra Jóns og Önnu voru: 1. Einar, var land-
nemi og mesta mannsefni, hann dó 1911 á bezta aldri;
2. Björgvin, einnig landnemi, dáinn 1940; 3. Páll, er ein-
nig tók land, nú í Winnipeg, kvæntur Helgu Sveinsdóttir
Níelssonar; 4. Jakobína, gift S. B. Johnson, sem nú er
látinn, en verður getið síðar.