Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1950, Qupperneq 86
88
ÓLAFUR S. THORGEIRSSON:
Einu sinni sem oftar var hann í stólnum að lýsa til
hjónabands, en hafði þá gleymt hvers son mannsefnið
var , svo að lýsingin var þannig:
“Lýsist í fyrsta sinn, til heilags hjónabands, með Jóni
Einhverssyni á Mýrum, o. s. frv.” En seinna komst á gang
eftirfarandi vísa:
“Hirðir sálna í helgum tón
hermir orðum skýrum:
Ætlar konu að eignast Jón,
Einhversson á Mýrum.”
Eins og siður var á þeim árum, voru konur leiddar í
kirkju, sem svo var kallað, þá er þær komu til messu í
fyrsta sinn, eftir barsfæðingu sína, að þakka Guði fyrir
sína vemd við fæðingu barnsins. Ein slík innleiðsla hjá
séra Jóni var svona:
“Þá ertu nú komin, Guðríðarkind, eftir þinn nýaf-
staðna barnsburð; gakk þú til þín sætis. Það er ekki víðar
um það.” Það var máltæki hans.
Eitt sinn hafði hann lagt út af feitu og mögm kúnum
hans Farós í ræðu sinni á þessa leið:
“Mínir elskanlegir! Ef þú ættir 7 feitu kýrnar, en eg
hinar 7 þær mögru, og mínar mögru kýr ætu þínar feitu,
þá myndir þú stefna mér og heimta af mér skaðabætur;
og ef eg vildi ekki borga það, sem þú heimtar af mér, þá
myndir þú setja málið fyrir hærri rétt, en þá myndi eg
“appellera” (vísa málinu) til Drottins míns og útskýra
fyrir honum alla málavexti, sem þjóni hans sæmdi. Þá
myndi Drottinn segja: Rétt gerðir þú, séra Jón minn!
Mín er sökin, eg mun endurgjalda”!
Öðru sinni lagði hann út af heimsstyrjöldum, með
þannig lagaðri útlistun:
Ef Suðursveitamenn0 segðu Mýramönnum stríð á
° Nœsti hreppur vestan við Mýrasveit.