Afturelding - 01.08.1948, Side 2
AFTURELDING
ans var komin og blés honum þeirri réttlátu mann-
úðarhugsun í brjóst, að hefjast handa og ..byggja
upp borg' mína," „og gefa útlögum mínum heim-
fararleyfi."
Það sem sérstaklega vekur eftirtekt manns í sam-
bandi við þessa tvo spádóma er, að í báðum gefur
Guð upp nöfn ófæddra manna, þó að árahundruð
séu þangaðtil þeir fæðast.og framkvæmaráðsálvktun
Iians. Þessir spádómar eru sjaldgæfir, en því eftir-
tektarverðari. Þegar Guð grípur til þessara und-
antekninga, gerir liann það auðvitað til þess, að
lýður hans gefi því enn meiri gaum, er slíkir spá-
dómar rætast. Með því að hann lætur persónunöfn
og atburði renna þannig saman, svo að hvort um
sig staðfestir hitt, þá ætlast hann til að þetta veki
svo djúpa alvöru og Guðs ótta hjá mönnum, að
þeir taki til sín þessa sígildu áminningu hans:
„Fyrir því .... þá ver viðbúinn að mæta Guði þín-
um, ísrael!“ Amos 4,12.
í bæði skiptin, sem fyrrnefndir spádómar rætt-
ust, gerði lýður Guðs iðrun og yfirbót. Til þess
ætlaðist Guð líka.
Þetta ber að hafa í huga, þegar þriðji hliðstæði
spádómurinn verðar nefndur Iiér á eftir. Þann spá-
dóm hefur Guði þóknazt aðláta standa lengur óupp-
fylltan en hina báða. Ef til vill vegna joess, að
menn veiti honum ])ví meiri athygli, þegar hann
rætist.
Þessi spádómur er Esikíel 34, 13., 23.-24.:
„Og ég mun sækja þá til þjóðanna og saman
safna þeim úr löndunum og leiða þá inn í land
þeirra og halda þeim til haga á ísraelsfjöllum, í
dölunum og á öllum byggðum bólum í landinu. . .
Og ég mun skipa yfir þá einkahirði, hann mun
halda þeim til haga, þjón minn Davíð. Hann mun
halda jjeim til haga og hann mun vera þeim hirðir.
Og ég, Drottinn mun vera Guð ]>eirra, og þjónn
minn, Davíð, mun vera höfðingi meðal þeirra, ég
Drottinn, hef talað það.“
I 2535 ár hefur þessi spádómur beðið eftir Guðs
tíma. Hann var borinn fram árið 587 f. Kr„ en
uppfylltur á miðnætti milli 14. og 15. maí síðast-
liðinn. Á miðnætti þessa nótt skrifaði hinn fyrsti
forsætisráðherra hins nýja Israelsríkis, Davíð að
nafni, undir yfirlýsingu um það, að Ísraelsríki væri
stofnað og þegar sjálfstætt. Öllu nafni heitir for-
sætisráðherrann, Davíð Ben Gurion. Á fyrrnefndri
nóttu rættist spádómsorð þetta: „Og þjónn minn,
Athyglisverð dagbók.
llvað mundi koma í ljós, ef Biblían þín héldi dagbók? Mundi
l>að verða eitthvað likt því, sem birtist fyrir stuttu síðan í blaði
einu? Það var Biblía konu einnar í kristilegum félagsskap, sem
látin var halda dagbók þá, sem hér fer á eftir:
15. janúar: Hef legið hreyfingarlaus heila viku. Fyrstu kvöldin,
sem eigandi minn átti mig, las hún mig reglubundið, en nú
virðist svo sem hún hafi algerlega gleymt mér.
2. jebrúar: í dag var rykið þurrkað af mér. Eftir miðjan dag
tók eigandi minn mig Iitla stund. Hún þurfti að leita að nokkrum
ritningarstöðum. Að því loknu tók hún mig með sér í sunnu-
dagaskólann.
7. marz: í dag var ég sett á minn gamla stað á ný. Ég hef
nefnilega legið á forstofubekknum síðan ég fór í sunnudaga-
skólann, með eiganda mínum.
2. apríl: Vandræðalegur dagur. Eigandi mirm þurfti að opna
einhverskonar félagssamkomu og vildi þá hafa á takteinum all-
mörg ritningarorð. Þetta tók mjög langan tíma og mikla fyrir-
höfn.
5. maí: Allan seinnipart dagsins hef ég verið á ömmuknjám.
Hún er í heimsókn hjá eiganda mínum.
6., 7., 8., 9. maí: 1 dag er ég líka á knjám ömmu. Þar er gott
að vera. Ymist les hún í mér eða hún talar við mig.
10. maí: Nú er amma farin. Hún kyssti mig þegar við skildum.
Ég er nú komin aftur á minn gamla stað.
4. júlí: Hef verið pökkuð niður í tösku, með ýmiskonar fötum
og öðru dóti. Líklega erum við að leggja af stað I ferðalag, eða
það grunar mig minnsta kosti.
10. júlí: Ligg ennþá í töskunni, enda þótt búið sé að taka
allt annað tipp úr henni.
15. júlí: Komin heim á ný og sett aftur á minn venjulega
stað. Ég held endilega að við höfum verið á ferðalagi, enda þótt
ég skilji ekki, hvers vegna ég var tekin með.
1. ágúst: Mjög heitt. Ofan á mér liggur all-mikið af heims-
blöðmn. Þar ofan á liggur skáldsaga, og því næst hattur. Vildi
svo gjarna að þetta yrði tekið ofan af mér.
12. september: Var notuð nokkrar mínútur i dag. Eigandi
minn þurfti að skrifa bréf til kunningjastúlku sinnar, er misst
hafði bróður sinn. Hún vildi senda henni minnisvers.
Hér Ivkur þessari stuttu, en athyglisverðu daghnk. En tular
þetta nokkuð til þín? Mundir þú bola það — blygðunarlaust —
að sjá dagbók, sem Biblían þín héldi?
,,De Ungas Tidning".
Mörg ÁN.
Kínatrúboði nokkur hefur sagt:
Átakanlega mörg ÁN eru skrifuð yfir heiðindóminn. Karlar
og konur eru ÁN Biblíu, ÁN sunnudags, ÁN bæna, ÁN lof-
söngva. Þeir hafa stjórnendur ÁN réttlætis. Þeir eiga heimili
Án friðar, hjónabönd ÁN heilagleika. Þar lifir unga fólkið ÁN
hugsjóna, börnin ÁN hreinleika, mæðurnar ÁN öryggis og sjálf-
stjórnar. Þar eru fátækir ÁN hjálpar, sjúklingar ÁN aðhlynn-
ingar. Syrgjendur ÁN samúðar, synd ÁN yfirbótar, dauðinn ÁN
vonar. Allt þetta má segja með orðunum: ÁN KRISTS.
50
The Missionary Challenge U. S. A.