Afturelding - 01.08.1948, Blaðsíða 4

Afturelding - 01.08.1948, Blaðsíða 4
AFTURELDING fSumarmótid á fSaudárkróki .,Aldrci [lorsta sálaririnar svalar kenning nein, sú sem ei á grunni OrSsins stendu skýr og hrein. Lindin náðartær, líf enn gefiS fær. Logann ennþá kveikir Drottins eldur skær. Kór: lá, gamla timuns GuSdómskraft, |iá gömlu, hreinu trú, og frumkristninnar ferska eld ó, FaSir, gefSu nú.“ IJað var þessi sannfæring, þessi hjartans bæn, sem sálinurinn 437 í nýju sálmabókinni okkkar tlregnr upp í ljóðlínum, sem safnaði Hvítasunnu- vinum til móts tlagana 20.—28. júní s.l. Um það bil 100 manns voru mættir víðs vegar af landinu, en alla vikuna var að bætast í hópinn af athugulum áheyrendaskara, er einkum sóttu vakningasamkomurnar og fylltu húsið kvöltl eftir kvöld, þrátt fyrir það, að einmitt þessa dagana breyttist tíðin og sólin tók að skína og ylja öllu lífi á hverjum degi, eftir langvarandi vorkulda. Var þetta ef til vill fyrirboði andlegrar vakningar yfir þjóðina okkar? Guð gefi það. En þrátt fyrir góða þátttöku í mótinu, var margra saknað, er eigi höfðu getað komið vegna fjarlægð- ar og annarra liindrana. Ekki sízt vantaði í hópinn af trúboðum og vinum, þá, er frá nágrannalönd- um okkar hafa starfað liér á landi um undanfar- in ár. Við vildum svo gjarna geta hrópað til þeirra: Komið aftur, vinir! Island Jtarf vkkar enn! Þá var líka gleðin ekki hvað minnst yfir að hafa Jiau hjónin Ericson og Signe ennþá hér. Þau áttu einmitt Jtessa dagana 20 ára starfsafmæli á íslandi. Guð blessi þau og launi þeim! Sem minningar- orð frá Hvítasunnusöfnuðinum hér á landi var þeim gefinn sálmur Davíðs, 126, 5—6: „Þeir, sem sá með' tárum, munu uppskera með gleðisöng, grátandi fara menn og bera sæðið til sáningar, nteð gleðisöng koma þeir aftur og bera kornbundin heim.“ Að ytra útliti var mótið með svipuðum hætti og áður: Bænastundir, Bihlíulestrar og kvöldsam- komur í Bifröst, sem er rúmbezta samkomuhús staðarins. Gisting í barnaskólanum og á lieimilum, er góð- fúslega tóku á móti gestunum og létu aðhlynningu og umönnun í té af sanníslenzkri gestrisni. Skírn- arathafnir fóru fram í okkar eigin htvsi, Fíladelfíu. Þar mættust líka vinirnir daglega við sameiginlegt horðhald. En systurnar sáu um prýðilega fram- reiðslu á matnum, sem bræðurnir á staðnum höfðu dreeið að. Allt saman af hinni mestu rausn. Góður sameiningarandi ríkti á mótinu. Einhver sagði sem svo: „Hér eru engir stórir, þess vegna er svo gott að vera hér.“ Og ef til vill voru það einmittt frjálsu vitnis- burðirnir sem mestan svipinn settu á þessar sam- verustundir. Þar kom í Ijós greinileg framför í hrevfingunni. Vaxandi djörfung, af Guði gefin, til að vegsama sinn ástkæra Frelsara fyrir Jvá miklu hluti, sem hann hefur gjört. Og „miklir hlutir“ voru Jvað, sem hér var vitn- að um, t. d. sagði'ein konan frá því að Drottinn Jesús læknaði hana um leið og hún frelsaðist, af hjartakrampa, er hún var búin að ]:>iást af í 28 ár. Margir aðrir söaðu frá, hvernig þeir hefðu fvrir Jesú trú, öðlazt lækninau af alvarlegum sjúkdóms- meinum. Enn fleiri höfðu Jió vitnisburð um dvrð- legt frelsi sálarinnar og lausn úr viðium svndar oa lasta, oe oft var kórinn endurtekinn: „Það er sigur, sitrurkraft að fá. Sigur við Jesú blóð!“ Af biblíulestrum, sem fluttir voru daglega mun efni Ásmunclar Eiríkssonar í Mark. 9, 9—10 hafa gripið áheyrendurna einna mest. Sama þráin og Páll postuli lætur í ljós í bréfi sínu til Filippímanna, greip hjörtu okkar: ,,— ef mér mætti auðnast að ná til upprisunnar frd dauðum. Ekki svo að ég hafi þegar náð þvi eða sé Jregar fullkominn, en ég keppi eftir því, ef ég skyldi geta höndlað það, með því að ég er höndlaður af Kristi Jesú.“ 52

x

Afturelding

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.