Afturelding - 01.01.1981, Blaðsíða 8

Afturelding - 01.01.1981, Blaðsíða 8
„ISLAND FYRI 0 Bill Huget: „ísland fyrir Krist 1980” okkar, mun alltaf vera okkurdýrmæt. Þessi reynsla hefur valdið straumhvörfum í lífi mínu. Ég sný aftur heim með nýjan kærleika og neyð fyrir ísland. Ef íslendingarnir myndu rækta með sér neyð fyrir þjóðinni og treysta algjörlega á Drottin, þá myndum við sjá mikla hluti eiga sér stað. „Því að guðsríkið er ekki fólgið í orðum, heldur í krafti." (I. Kor. 4:20.) „Ef Guð er með okkur, hver er þá á móti okkur.“ (Róm. 8:3 E) Guð blessi ykkur ríkulega. Við munum biðja fyrir ykkur og þjóðinni ykkar. í kærleika Krists, Bill Huget Hið mest spennandi, sem sérhver maður getur átt þátt í, er að vera hluti þess hers, sem Guð notar á hinum síðustu tímum. Það er augljóst, að Guð er að úthella sínum anda yfir allt hold. — Guð hefur byrjað vakningu hér á Islandi. Jesús sagði, að hlið Heljar myndu ekki vera söfnuðinum yfirsterkari. Það áform Guðs, að vinna ísland fyrir Krist, mun verða að raunveraleika, ef við: „þreytumst ekki á að gjöra það, sem gott er, því á sínum tíma munum við uppskera, ef við gefumst ekki upp“. (Gal. 6:9.) ísland er mjög sérstætt í fegurð sinni og endur- speglar skapara sinn. Fólkið er sérstaklega vin- gjarnlegt og harðgert. En hér eru vandamál sem og annars staðar í heiminum. Andlegt myrkur grúfir yfir landinu, — andatrú, áfengisböl, dauð trúrækni ásamt afvegaleiðandi villutrúariðkunum o.s.frv. En ljós fagnaðarerindisins um Jesúm Krist er að út- rýma þessu myrkri. Við höfum séð, hvernig Guð hefur undirbúið hjörtun. Margir tárast, þegar við deilum kærleika Jesú með þeim. Það eru ekki allir, sem hafa veitt fagnaðarerindinu viðtöku, en þeir hafa nú heyrt það. Margir íslendingar eru að opna sig fyrir frelsandi náð Jesú Kristsog veita honum viðtöku sem frelsara sínum og Drottni. Sérhver sál, sem er unnin fyrir Drottin, er dýrmæt. Það er svo spennandi að sjá kærleikann, sem fólkið á til Drottins. Margir gefa sjálfa sig til starfa í ríki Drottins. Sá kærleikur og vinátta, sem við höfum fengið frá trúsystkinum Rhody Lake: t ,,Dyr að landi móður minnar” Ég vissi að ísland var til. Ég hafði heyrt um það frá móður minni, sem fór frá íslandi lítil stúlka, þegar foreldrar hennar fluttu búferlum til Kanada. Frænkur mínar höfðu farið aftur til að heimsækja þetta land. Ég hafði lesið um þjóðina og lífsmáta hennar, en samt virtist þetta land vera svo fjarlægt. Einhverntíma — hugsaði ég með sjálfri mér, — myndi ég hafa gaman af að fara þangað. En ég hugsaði samt aldrei svo langt, að ég héldi að það yrði að veruleika. Guð hafði aðrar áætlanir. Hann frelsaði mig, — og beindi mér síðan í söfnuð, þar sem ég, aðeins mánuði síðar, hitti íslenskan forstöðumann, sem sagði mér frá trúboðsherferð, sem áætluð væri af

x

Afturelding

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.