Afturelding - 01.01.1981, Blaðsíða 30

Afturelding - 01.01.1981, Blaðsíða 30
Betlehemsstjarnan lýsir að nýju Úr tímaritinu „Israels Van“, sem gefið er út í Malmö Svíþjóð, þýðum við eftirfarandi grein, sem útkom í blaðinu í desember 1980. Greinin fylgir í kjölfar greinar um sama efni, í Aftureldingu 4. tölubl. 1980. Um miðjan vetur 1980—1981, þ.e. áramótin nálgast pláneturnar Jupiter og Saturnus mjög hvora aðra. Þá er Jupiter 1 gráðu beint fyrir sunnan Saturnus, séð frá jörðu. Árið 1961 var svipaður samruni. Þetta mun eiga sér stað þrisvar sinnum árin 1980—1981. 12 sinnum hefur svipað gerst síð- ustu 2250 ár. Næsta sinni, er hliðstæðir atburðir munu eiga sér stað verður árið 2238, eða eftir 257 ár. Þessir atburðir ættu að vera íhugunarefni, hvers hugsandi manns. Jesús talar um í Mattheusarguð- spjalli 24. kapitula og Lúkasarguðspjalli 21. kapitula um tákn á sólu, tungli og stjörnunum. Þau tákn áttu að koma fram á hinum efstu dögum. Við samanburð á Guðs Orði og þeim tímum sem nú ganga yfir þennan heim, má sjá að Guðs Orð rætist og er að rætast. Benda atburðirnir til að endurkoma Jesú Krists er í nánd. B. Ólafsson Við þetta má bæta til umhugsunar. Getur erfitt tíðarfar á yfirstandandi vetri, með vatnsskorti við hinar stóru rafmagnsvirkjanir hér á landi átt rætur sínarað rekja til breytinga í gangi himintungla, sem hér hefur verið rætt um? Vert íhugunarefni fyrir lesendur blaðsins. Ritstjórinn Hví hefur þú yfirgefið mig? Ég bið þig að hugsa um Jesúm Krist þar sem að Hann, Sonur Guðs, hékk fyrir þig í dauðans kvölum á Golgata. Allir lærisveinarnir höfðu yfirgefið Hann. Hann var aleinn þar sem Hann hékk milli himins og jarðar. Þegar Hann leit niður á jörðina fann Hann enga meðaumkun meðal mannanna. Þeir sem voru í kring um krossinn höfðu ákveðið að Hann skyldi deyja. Hvar var allur fjöldi hinna sjúku sem Hann hafði læknað? Hvar voru postularnir sem Hann hafði elskað? Himinninn var lokaður fyrir Honum, vegna þess að allar syndir heimsins lágu á Honum. Hann sem var hreinn og syndlaus og hafði algjörlega lifað eftir vilja Föður Síns. Hann fann það að Hann var aleinn. Faðir Hans sem alltaf hafði verið með Honum, sneri nú augliti Sínu frá Honum. Skyndilega þoldi Hann ekki meira og kallaði hárri röddu: „Guð minn, Guð minn, hvi' hefur þú yfirgefið mig.“ Þetta var fyrir þig. Þessi hræðilegi atburður mannkynssögunnar skiptir þig öllu máli, bæði um tíma og eilífð. Sú ákvörðun sem þú tekur í þessu lífi, hvort þú vilt fylgja Jesú eða ekki. Þarna var verið að krossfesta Skapara þinn. Þarna var Guð að gera eitthvað sem þú og aðrir menn geta aldrei gert. Biblían segir það að Guð lét syndir okkar á Krist, sem vildi þola það að vera yfirgefinn af Guði, án þess að við verðskulduðum það. Ó, þvílíkur kær- leikur. Að hafna fyrirgefningu og kærleika Hans er sú mesta vitleysa sem nokkur maður getur gert, því að það er ekki til neinn annar Frelsari sem getur frels- að frá synd og dauða. Derek Cadman Helgi Kárason

x

Afturelding

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.