Afturelding - 01.01.1981, Blaðsíða 29

Afturelding - 01.01.1981, Blaðsíða 29
^TTIR - ERLENDAR FRÉTTIR ERLENDAR FRETTIR ERLENDAR FRETTIR Hvilasunnusöfnuðurinn er nú langslærsta mótmælendakirkjan í Búlgariu, [rar sem 75 prósenl íbúa tilheyra Rétttrúnaðarkirkj- unni. Hvítasunnumenn eru um 10,000 og hafa 120 söfnuði. Svo virðist sem Hvítasunnumenn njóti nreiri forréttinda en flestir aðrir mótmælendur; engu að síður verða þeir að hlýta ströngum reglum og ýmsum hindrunum á starfsseminni. II’PA 481 I Brasilíu er kristilegur sjónvarpsþáttur sýndur um allt land. Þættinum stjórnar hvítasunnupredikari, Bernhard Johnson. Um 60 milljónir manna geta séð þáttinn vikulega. IPPA 481 Nýlega var 68 ára gamall Albanskur biskup kaþólskra, Ernes Coba, barinn af fangavörðum til dauða í albönskum fangabúð- um. Hann stjórnaði helgistund fyrir samfanga og galt fyrir með lífi sínu. Sérhver tilbeiðsla, trúarleg, er bönnuð í Albaniu. CAW381 Franska ríkisstjórnin játaði beiðni Trans World Radio útvarps- félagsins um stækkun á útvarpsstöðinn í Monte Carlo. Ællunin er að bæta við 500,000 watta stuttbylgjusendi og fyrir eru tveir 100,000 watta sendar. Þá mun þessi sendistöð fagnaðarerindis- ins ná ennbetur með boðskap sinn til Evrópulanda. CAW481 Úlvarpsfélag Austurlanda fjær fær nú jákvæða viðbrögð við útvarpssendingum til 3 milljóna Kóreubúa í Mansjúríu (norður Kína). Bréf berast sem segja frá samfélagshópum og kvartað er yfir Biblíuskorti. 15 ára piltur hefur skráð allt Nýja testamenntið eflir upplestri í úlvarpinu. CAW481 Pólska Biblíufélagið segir í skýrslu sinni að eftirspurn eftir Biblíum hafi stórlcga aukist eftirað Rómversk kaþólskri messu var sjónvarpað í vetur. Um hundrað tonn af Biblíupappír verða notuð þetta ár til að anna eftirspurn eftir Biblíum. CAW48I Mannfjöldi, hungraður eftir að heyra fagnaðarboðskapinn, þrcngdi sér inn á Borgarleikvanginn í Mexíkó og nærliggjandi götur. þegar Billy Graham hélt samkomur í marssl. Gripið var til þess að halda aukasamkomu hvert kvöld til að mæta aðsókninni. Helsti trúboði Mcxíkó, Gullermo Villanueva, sagði: „Billy Graham hefur sameinað allar kirkjudeildirnar í Mexikó. Ég hefi aldrei í lífi minu séð neitt þvílíkt." CAW 581 ^ÉTTIR - Biblian er nú metsölubók i Japan. Þar i landi er innan við 1 prósent 115 milljón íbúa kristinnar trúar. CAW 581 Albanskir flóttamenn, sem nýkomnir eru til Júgóslavíu, segja að stjórnin auki enn ofsóknirgegn trú og reyni að útrýma trúnni. Ný handlökuherferð er hafinn gegn trúuðum, sem reyna að fara huldu höfði. 1976 yfirlýstu Albanir að þeir væru „fyrsta guðlausa rikið". CAW 581 Kínverska ríkisstjórnin hefur skipað Kristindómsráð sem skal hafa umsón með prestum og starfssemi þeirra. Einnig skal ráðið fylgjast með þjálfun prestsefna, útgáfu Biblíunnar og helgisiða- bóka og styrkja tengslin við kirkjur um víðan heim. CAW 381 10,000 konur Fagnaðarboðskaparins, sem tilheyra Evangelísku Mið-Afríkukirkjunni, fara nú frá þorpi til þorps í Zaire og halda samkomur, bænastundir og Biblíulestra, hjálpa til við hrein- gerningar í kirkjum og endurbætur. Trúaráhugi kvennanna hef- ur unnið marga til fylgis við Krist. CAW 381 Samkvæmt nýsettum alríkisreglum í Bandarikjunum, ber vinnuveitendum skylda til að gefa starfsmönnum frítíma til trú- ariðkana, svo fremi það valdi ekki fyrirtækinu því meiri fjár- hagslegum skaða. CAW38I Vatíkanið hefur vísað frá sér athugasemdum nokkurra kaþólskra guðfræðinga, sem töldu að bamaskím bryti í bága við valfrelsi einstaklingsins. CAW 381 Kunnugir telja að árið 1980 hafi verið hið erfiðasta fyrir evangelíska í Sovélríkjunum allt frá 1975, en þá hélu Kremel- verjar að virða trúfrelsi. 30.000 kristnir íbúar Sovétríkjanna vilja flytjasl úr landi vegna trúarofsókna. CAW38I Alheimsráð kirknanna hefur nú í fyrsta sinn á 32 ára starfsferli lýst opinberlega áhyggjum sinum við ráðamenn Rétttrúnaðar- kirkjunnar í Sovétríkjunum, vegna skorts á trúfrelsi í Sovétríkj- unum. CAW 381 ERLENDAR FRETTIR ERLENDAR FRETTIR ERLENDAR FRETTIR

x

Afturelding

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.