Afturelding - 01.04.1987, Blaðsíða 8
Guðvana maður er óful
... ------vllnnann þr6unarsviðs 100 H-ntley:
Margir leggja hönd á plóginn við hið mikla starf, sem unnið er á
sviði trúboðssjónvarps í Evrópu. Kanadíska sjónvarpsstöðin
lOOHuntley Street hefur verið þar í fararbroddi undir forystu David
Mainse. Einn nánasti samstarfsmaður Davids er Richard Brown,
sem gegnir embætti yfirmanns þróunarsviðs sjónvarpsstöðvarinnar.
Richard hefur unnið mikið skipulagsstarf í Evrópu og verið ráðgjafi
á ýmsum sviðum. Hann var spurður um upphaf afskipta Kanada-
manna af kristilegu sjónvarpsstarfi í Evrópu svo og eigin trúar-
reynslu.
Upphaf afskipta okkaraf sjón-
varpsstarfi í Evrópu má líklega
fyrst rekja til þarfar, sem við
fundum fyrir heima í Kanada.
Margir Kanadamenn eru inn-
flytjendur eða eiga ættir að rekja
til Evrópu. Hin ýmsu þjóðabrot
halda gjarnan hópinn og við-
halda tungu sinni og séreinkenn-
um. Höfuðstöðvar okkar eru í
Toronto, þar sem meira en
helmingur borgarbúa er af
erlendum uppruna. T.d. býr yfir
hálf milljón ítala í borginni og
Toronto er meðal fjölmennustu
borga ítala! Besta leiðin til að ná
eyrum þjóðabrotanna er að tala
tungu þeirra.
Okkur opnaðist leið til að
senda út ítalska þætti og í kjöl-
farið komu þýskir þættir.
Árið 1980 barst „make-
dónskt“ kall frá Svíþjóð til
Davids Mainse. Sænsku bræð-
urnir báðu hann að koma og tala
á tveim prédikaramótum, boð-
skapurinn sem Guð lagði á
hjarta Davids var að kristnir
Evrópumenn ættu að búa sig
undir að ríkiseinokun á útvarpi
og sjónvarpi yrði aflétt í Evrópu.
lOOHuntley Street bauð strax
upp á þjálfun og kennslu fyrir
ungt fólk frá Evrópu.